Dagblaðið - 30.04.1981, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
Verkamenn óskaststrax
í byggingarvinnu
Uppl. í síma 71730 og á kvöldin í síma
23398.
Reynir h/f.
Byggingarfélag.
Staða framkvæmdastjóra
Bæjarútgerðar Reykjavíkur er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. október nk.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist borgarstjóranum í Reykjavík
fyrir 16. maí nk.
Bæjarútgerð Reykjavíkur.
SVÖLU-
KAFfí
Svölurnar, félag fyrrverandi og núverandi
flugfreyja, halda sína árlegu kaffisölu í Súlnasal
Hótel Sögu föstudaginn 1. maí. Húsið opnað kl.
14.00.
Glæsilegar veitingar
Tízkusýningar
Skyndihappdrætti
Stórglæsilegir vinningar, þ.á m. flugfarseðlar,
leikföng o.fl.
Allur ágóði rennur til líknarmála.
Grillstaðir og hótei
Til sölu Toastmaster grillhella og djúp-
steikingarpottur. Selst ódýrt. Uppl. i síma
97-7426.
Viltu bvggja
í sumar ?
Húseiningaverksmiðjan SAMTAK HF. á
Selfossi framleiðir margar gerðir ÓÐAL-
einbýlishúsa úr völdum viðartegundum.
Húsin eru samsett úr 30-40 einingum,
auðflytjanleg hvert á land sem er.
Enginn ætti að útiloka timbur þegar
reisa á einbýlishús. Hringið í dag og fáið
sent í pósti, teikningar, byggingarlýsingu
og verð húsanna.
UHUSEININGAR I 800 selfossi
Norræn trimmlandskeppni fatlaðra byrjar á morgun:
STUBLUM 0LL AÐ
SIGRIÍSLANDS
styðjum fatlaða til leiks og veitum þeim tækifæri til
hollrar útiveru og hreyf ingar
Á morgun, 1. maí, hefst norræn
trimmlandskeppni fatlaðra af fullum
krafti. Sigurður Guðmundsso'n-'skóla-
stjóri, sem er framkvæmdastjóri
keppninna ,sagði í gær að haft hefði
verið samband við fjölda félaga og
samtök fatlaðra um allt land og mikill
áhugi væri á keppninni.
Talið er að allt að tíundi hver maður
á landinu búi við fötlun af einu eða
öðru tagi svo það er stór hópur fólks
sem getur lagt bessari norrænu trimm-
landskeppni lið og á þann hátt stuðlað
að sigri íslands. Rétt er að benda á að
ekki aðeins þeir sem búa við langvar-
andi fötlun eiga rétt á að taka þátt í
keppninni heldur líka þeir sem eru
haldnir tímabundinni fötlun svo sem
vegna handleggsbrots eða skamm-
vinnra veikinda.
Keppt er í göngu, sundi, skokki,
hjólreiðum, hjólastólaakstri og róðri,
þannig að flestir fatlaðir ættu að geta
fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Hver
þátttakandi getur tekið þátt í einni
grein hvern dag og er miðað við að ver-
ið sé við æfingar i 30 mínútur í hvert
sinn og þá með nauðsynlegum hvíld-
um.
íþróttasamband fatlaðra hvetur alla
sem geta stuðlað að þvi að ísland sigri í
þessarri keppni eða unnið að því á einn
eða annán hátt að auðvelda fötluðum
að taka þátt í þessari fyrstu lands-
keppni fatlaðra. Tilgangur keppninnar
er að auka skilning og áhuga fatlaðra á
íþróttum og útiveru. Með einfaldleik
sínum gefur keppnin nær öllu fötluðu
fólki möguleika á þátttöku og þar með
hollri hreyfingu.
-JR.
Um framkvæmd keppninnar
Allir þeir sem á einn eða annan
hátt eru fatlaðir hafa möguleika á að
taka þátt í norrænu trimmlands-
keppninni. En hvert er hægt að snúa
sér?
öll ungmenna- og íþróttafélög svo
og skólar hafa fengið bréf þar sem
óskað er að skipaður sé trúnaðar-
maður og að séð sé um að sundlaug
og aðrir slíkir staðir séu viðbúnir
þessari framkvæmd. Allir spítalar,
dvalar- og hjúkrunarheimili eiga að
hafa trúnaðarmenn. Allir skólar og
stofnanir fatlaðra eru með í fram-
kvæmd keppninnar.
Undirbúningsnefnd skorar á alla
þá sem taka vilja þátt í keppninni að
fá á þessum stöðum þátttökuskírteini
og láta skrá þátttöku i hvert sinn sem
þeir eru með.
Sérstaklega skal vakin athygli á að
allar sundlaugar Reykjavíkur svo og
Melavöllurinn sjá um þátttöku.
Þá er mönnum einnig bent á skrif-
stofu Sjálfsbjargar að Hátúni 12, en
þar verður stór hópur fólks sem hefur
keppnina 1. maí kl. 10 fyrir hádegi í
hjólastólum, reiðhjólum, gangandi
og í sundlauginni.
Fatlaðir hafa sýnt það og sannað að þeir eru engir eftirbátar annarra í íþróttum
og leik og nú gefst tækifæri til að styðja við bakið á þeim og stuðla að glæsilegri
þátttöku íslcndinga í þessari fyrstu norrænu trimmlandskeppni.
Þannig litur opnan I þátttökukortinu út. í reitina vinstra megin skráir trúnaðarmaður keppninnar 1 hvert sinn þátttöku við-
komandi keppanda. Að lokinni keppninni fær svo hver keppandi sent viöurkcnningarskjal fyrir þátttökuna.