Dagblaðið - 30.04.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
7
Gömlu slagorðin frá 1978 íhávegum höfð íHafnarfirðinum
á morgun:
VIUA „SAMN-
INGA í GILDI”
—og ..fagleg og óháð verkalýðssamtök”
„Séu verkalýðssamtökin sjálfum
sér samkvaem hljóta þau að fordaema
það að ríkisvaldið ógildi með lögum
gildandi kjarasamninga. Hér er um
slík grundvallaratriði að raeða að
aetla maetti að verkalýðssamtökin
risu upp og stæðu einhuga að mót-
maelum og baráttu fyrir því að knýja
fram til sigurs kröfuna „samningana
í gildi”,” segir Fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna í Hafnarfirði og
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar í 1.
maí-ávarpi sínu. Kröfur Hafn-
firðinga á baráttudegi verkalýðsins
eru hvorki margar né margbrotnar.
Þær eru einfaldlega: „Samningana í
gildi — fagleg og óháð verkalýðssam-
tök.” Dagblaðinu er ekki kunnugt
um aðrar verkalýðsaðgerðir 1. maí á
landinu þar sem þessi gömlu föUnu
slagorð frá 1978 eru í hávegum höfð.
Hafnfirðingar safnast saman tU
kröfugöngu við Fiskiðjuver Bæjar-
útgerðarinnar kl. 13.30 og síðan er
útifundur við Lækjarskólann sem
Hermann Guðmundsdson formaður
fulltrúaráðsins setur. Þá flytja ræður
Grétar Þorleifsson formaður Félags
byggingaiðnaðarmanna og Ólafur
Brandsson frá Starfsmannafélagi
Hafnarfjarðar.
Bólivía, en
Afganistan ekki
Engin bein krafa um „samningana
í gildi” er sjáanleg i 1. maí-ávarpi
fuUtrúaráðsins í Reykjavík og BSRB.
Þar segir að við blasi „enn á ný sú
staðreynd að stjórnvöld griþa inn í
gerð kjarasamninga þegar harðnar í
ári. Kreppunni er velt yfir á herðar
hins vinnandi manns. Reykvisk
alþýða mótmælir harðlega og varar
alvarlega við afskiptum ríkisvaldsins
af vísitölubindingu launa, líkt og átti
sérstað 1. marz.”
í kafla um alþjóðamál er varað við
auknum vígbúnaði hér á landi:
„Hinn eini raunverulegi skerfur
íslendinga tU friðar í heiminum er
herlaust land, án þátttöku í hernaðar-
bandalögum.” Lýst er stuðningi við
baráttuna „gegn því blóðuga
ofbeldi sem beitt er við að berja niður
verkalýðssamtök, m.a. í BóUvíu,
Argentínu, Guatemala og E1 Salva-
dor.”
Ennfremur er lýst samstöðu með .
baráttu frjálsu verkalýðshreyfingar-
innar. Herseta Sovétríkjanna í
Afganistan er ekki nefnd.
-ARH.
Viltu byggja
vandað
sumarhús?
Höfum hafið framleiðslu á mjög
vönduðum sumarhúsum með bandsag-
aðri standandi klæðningu, loft og
veggir eru klædd grenipanel.
Unnið næturog daga ífiski á Höfn:
VIKUKAUPH) ALLT
AÐ FJÖGUR ÞÚSUND
„Viltu ekki koma til okkar í vinnu?
Þú getur fengið allt að 4 þúsund krónur
á viku í kaup,” spurði Júlía Imsland
fréttaritari okkar á Höfn í Homafirði
er hún hringdi suður í gær.
Á Höfn er svo mikið að gera í fiskin-
um að unnið er nær sólarhringum
saman. Fólk mætir til vinnu í saltfiski
klukkan fjögur og fimm á morgnana
og er að til þetta 11—1 á nóttunni.
Svona hefur ástandið verið í allan april
þvi þó veiði lægi niðri í nokkra daga í
veiðibanninu dugði sá tími ekki til að
vinna þann fisk sem fyrir lá.
Á einum og hálfum sólarhring bárust
kaupfélaginu 1022 tonn af fiski og er
þá ótalið það sem Stemma fékk. Af
fiski kaupfélagsins fóru 100 tonn til
Djúpavogs. Hvanney hefur aflað mest
þennan tíma, 84 tonn, og missti þó eitt-
hvað af aflanum. Síðustu 20 daga á
hins vegar Gissur hvíti aflametið, 897
tonn. Þá 20 daga hefur kaupfélagið
fengið alls 5800 tonn.
Mikil ekla er á starfsfólki og má sem
dæmi nefna að 6 húsmæður úr Vestur-
Skaftafellssýslu hafa unnið i fiskinum
nótt og nýtan dag. Þó ku skap manna
vera Ijómandi gott og engin þreytu-
merki farin að sjást á mönnum. Þeir
þarna fyrir austan bjóðast til að kenna
þeim vinnubrögðin sem koma óreyndir
ívinnuþangað. DS/Júlia Imsland.
Húsin eru sett upp í verksmiðju og flutt
í heilu lagi, getum séð um flutning hús-
anna á staðinn.
Gerið verðsamanburð á sumarhúsum
áður en kaupin eru gerð. Sýningarhús á
staðnum.
SÍMI: 99-2333
AUSTURVEGI 38
800 SELFOSSI
N3ARÐVÍKURBÆR
BÆ3ARVERKFRÆÐINGUR
ÚTBOÐ
Njarðvíkurbær óskar eftir tilboðum í gangstéttagerð í
Njarðvík í sumar.
Aðalverkþáttur er steypa á um 5.000 fermetrum gang-
stétta.
' Útboðsgögn fást á skrifstofu undirritaðs, Fitjum, Njarð-
vík gegn 300 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á
sama stað, fimmtudaginn 7. maí 1981, kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingur.
NOTAÐIR BILAR:
504 station 7 manna dísil árg. ’80 ekinn 5
þús. km, með vegmæli.
504 GL dísil 1980
504 GL árg. 1979
504 GL árg. 1978
504 Ldísilárg. 1978
504 Lárg. 1977
504 sjálfskiptur árg. 1973
404 pick-up árg. 1977
Mazda 818 1600 árg. 1974
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 1-5
HAFRAFELL H/F
VAGNHÖFÐA 7 SÍMI 85211
BÆNDUR - SUMARBÚ STAÐAEIGENDUR
FOSS — ROTÞRÆR
Nú er rétti tíminn til að notfæra sér
auðvelda lausn á skólpvandamálinu.
• yz7^///~-W°
FOSS — ROTÞRÆR
eru úr trefjaplasti
og því níösterkar.
FOSS — ROTÞRÆR
þola mikinn þrýsting
og hafa langa endingu
FOSS— ROTÞRÆR
eru tilbúnar til notkunar,
léttar i meöförum og
auðvelt að setja þær niður
FOSS — ROTÞRÆRNAR
eru framleiddar í mörgum
stærðum, sem henta sumar-
bústöðum, bændabýlum og stærri sambýlum.
$ SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR
r . i r >. • i rv i #\ rv i r» n r\ * * t a » r» ■ k n ■ < ■ , / . n i
SUDURLANDSBRAUT 33 SIMI 8^033
OG KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT