Dagblaðið - 30.04.1981, Blaðsíða 8
Jörð ti/sö/u
Jörðin Hafurstaðir í A-Hún. er til sölu.
Hlunnindi: lax- og silungsveiði og malar-
tekja, bústofn og vélar geta fylgt. Uppl. í
síma 95-4737.
Auglýsing
Bókasafnsfræðingur óskast til starfa í bókasafni
Kennaraháskóla íslands frá 1. júní 1981 til ára-
móta. Upplýsingar í síma 32290 á skrifstofutíma.
Lausar stöður
Ráðgert er að veita á árinu 1981 eftirfarandi rannsókna-
stöður til 1 —3 ára við Raunvísindastofnun Háskólans.
a) stöðu sérfræðings við efnafræðistofu. Sérfræðingnum
er einkum ætlað að starfa að rannsóknum í lífrænni
efnafræði.
b) stöðu sérfræðings við jarðfræðideild jarðvísindastofu..
Sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa að aldurs-
ákvörðun á bergi.
c) stöðu sérfræðings við jarðeðlisfræðideild jarðvísinda-
stofu.
Sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa að rannsóknum
í jöklafræði.
d) stöðu sérfræðings við reiknifræðistofu.
e) tvær stöður sérfræðinga við stærðfræðistofu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsækj-
endur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvarandi há-
skólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir.
Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa en
kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomulagi
milli deildarráðs verkfræði- og raunvísindadeildar og
stjórnar stofnunarinnar og skal þá m.a. ákveðið hvort
kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu viðkomandi starfs-
manna.
Umsóknir ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um
menntun og vísindaleg störf skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 25. maí nk.
Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1 —3 dómbærum
mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og
visindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu
umslagi sem trúnaðarmál og má senda þær beint til
menntamálaráðuneytisins. mm , ,m
Monntamalaraðuneytið,
22. mprH 1981.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
Erlent
I
0
Erlent
Ronald Biggs, lestarræningjanum mikla, var fagnaö vel af sex ára gömlum syni sinum, Mikhael, er Biggs kom til Rio de
Janeiro um síðustu helgi. Biggs hafði þá sloppið með skrekkinn er yfirvöld á Barbadoseyjum neituðu að framselja hann
brezkum yflrvöldum eins og almennt hafði þó verið búizt við. Biggs á óafplánaðan þrjátiu ára fangelsisdóm i Bretlandi vegna
þátttöku sinnar f lestarráninu mikla 1963. Fyrsta degi sfnum f Rio de Janeiro eyddu þeir feðgar á baðströndinni.
Hagur Francois Mitterrands vænkast enn:
GAULUSTAR LÝSA
YFIR HLUTLEYSI
— afstaða f lokksins veldur Giscard forseta miklum áhyggjum
Hagur frambjóðenda sósíalista,
Francois Mitterrand, í síðari umferð
frönsku forsetakosninganna sem fram
fara 10. maí næstkomandi vænkaðist
enn í gær er Gaullistaflokkurinn RPR
ákvað að taka ekki afstöðu f kosning-
unum. Áöur hafði Kommúnista-
flokkurinn lýst yfir stuðningi viö
Mitterrand.
Vitað er aö Giscard d’Estaing forseti
þarf á öllum þeim atkvæðum að halda
sem Chirac, frambjóðandi Gaullista,
fékk í fyrri umferö kosninganna (um 18
prósent). Franska sjónvarpið sagði I
gær að þessi afstaða gaullista gæti
hæglega þýtt að Mitterrand, sem nú er í
framboði til forseta í þriðja sinn, fari
með sigur af hólmi hinn 10. maí.
Bernard Pons, framkvæmdastjóri
RPR, sagði að gaullistar skyldu hafa
samvizkuna að leiðarljósi I sfðari um-
ferð kosninganna. Áður hafði Jacques
Chirac, leiötogi flokksins, lýst því yfir
að hann hygðist sjálfur kjósa Giscard
en kvaðst ekki mundu ráöleggja kjós-
endum sinum hvernig þeir ættu að
greiöa atkvæði.
Vaxandi fjöldi gaullista hefur lýst þvf
yfir að þeir ætli að kjósa Mitterrand í
sfðari umferðinni. Giscard gerir sér tók hann að biðla til gaullista. ,,Ég
augljóslega grein fyrir þeirri hættu sem einn er fær um að tryggja þá hefð sem
hann er staddur í og þegar f gærkvöldi De Gaulle hershöfðingi kom á. ”
Francois Mitterrand greiðir atkvxði í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna.
Sigurlíkur hans hafa nú aukizt veruiega.
Enn breytingar í forystu pólska
Kommúnistaflokksins:
Pinkowski sparkad
úr flokksstjórninni
Leiðtogar pólskra kommúnista
ákváðu í gær, að víkja Jozef Pinko-
wski úr framkvæmdastjórn Kommún-
istaflokksins. Auk þess var ákveðið að
halda flokksþing í júlímánuði næst-
komandi.
Brottrekstur Pinkowski, sem var við
stjórn f Póllandi fyrstu sex mánuðina
eftir að verkföll verkamanna hófust, er
talinn liður f þeim málamiðlunum sem
hafa átt sér stað á milli verkamanna og
stjórnvalda að undanförnu.
Tveir verkamenn voru nú skipaðir i
framkvæmdastjórn flokksins. Skipa
hana nú ellefu menn í stað tiu áður.
Ríkisútvarpið lýsti þeirri breytingu sem
„fyrsta skrefinu í þá átt að færa full-
trúa hinnar vinnandi stéttar til æðstu
metorða.”
Fundur miðstjórnar flokksins sem
haldinn var f gær einkenndist mjög af
kröfum óánægðra fulltrúa um að full-
trúum óbreyttra borgara yrði fjölgað.
Jozef Plnkowskl, fyrrum forsætlsráö-
herra.
Hergagna-
flutningar
Sýrlendinga
til Líbanon
Abdel-Hallm Khaddam utan-
rfkisráðherra Sýrlands er væntan-
legur aftur til Beirdt innan fárra
daga með tlllögur að lausn átak-
anna f Llbanon. ísraelskar þotur
gerðu árás á landsvæði f Lfbanon f
gær fjórða daginn f röð og særð-
ust 24 menn f stórskotaliðsbar-
dögum f Suður-Lfbanon. Sýrlend-
ingar hafa brugðizt við árásum
ísraelsmanna, sem f fyrradag
skutu nlður tvær sýrlenzkar
þyrlur, með þvf að flytja sovézkar
loftvarnabyssur til Lfbanon.