Dagblaðið - 30.04.1981, Page 9
9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
i
Erlent
Erlent
I
Réttarhöld haf in í máli Yorkshire-morðingjans:
Hamrar, hnffar og
skrúfjám meðal
sönnunargagnanna
— Sutcliff e játar á sig þrettán morð og sjö morðtilraunir
Vörubílstjórinn Peter Sutcliffe
hefur játaö að hafa myrt þrettán kon-
ur á síðastliðnum sex árum og virðist
sem nú sé loks séð fyrir endann á
hinu umfangsmikla morðmáli sem
kennt hafa verið við „The Yorkshire
Ripper”.
Sutcliffe, sem handtekinn var í jan-
úarmánuði síðastliðnum, kom fyrir
rétt í London í gær í hinum sögu-
fræga Bailey réttarsal sem var þétt-
setinn fréttamönnum og öðrum
áheyrendum sem margir hverjir
höfðu staðið í biðröð alla nóttina til
að tryggja sér sæti.
Sutcliffe fór fram á sýknun á þeim
forsendum að hann hefði ekki verið
sjálfráður gerða sinna. Auk morð-
anna þrettán játaði Sutcliffe að hafa
gert sjö aðrar morðtilraunir.
Eftir að hafa hlýtt á lagalegar rök-
semdir ákvað dómarinn, sir Leslie
Boreham, að fresta réttarhöldunum
fram á næsta þriðjudag. Þá mun
dómurinn taka afstöðu til hvort geð-
rænt ástand Sutcliffes sé með þeim
hætti að hann sé sakhæfur.
Við réttarhöldin sem reiknað er
H
Vörubílstjórinn Peter Sutcllffe, 35
ára garaall, (með teppl yfir höföinu)
leiddur inn i dómshúsið. Myndin var
tekin er gæzluvarðshaldsúrskurður
var kveðinn upp yfir honum í janúar-
mánuði siðastliðnum.
með að standi í eina viku eru lögð
fram ýmis sönnunargögn, þar á
meðal nokkrir kúluhamrar, einn
kiaufhamar, öxi, búrhnífur, nokkrir
rýtingar, átta skrúfjárn og reipi.
Andrúmsloftið i réttarsalnum var
þrungið spennu. Um 800 fréttamenn
víðs vegar að úr heiminum höfðu sótt
um sæti við réttarhöldin en aðeins
tíundi hluti þeirra komst að.
Flest fórnarlamba Sutcliffes voru
vændiskonur og er hann var hand-
tekinn 2. janúar síðastliðinn var
vændiskona með honum i bifreið
hans. Sonia, 30 ára gömul eiginkona
Sutcliffes, var viðstödd réttarhöldin.
Kosningarnar í Suöur-Af ríku:
ÞJÓÐARFLOKKUR-
INN HÉLT VELLI
— en tapaði umtalsverðu fylgi
Þjóðarflokkur Pieters Botha, for-
sætisráðherra Suöur-Afríku, hélt velli í
þingkosningunum sem fram fóru þar í
landi í gær. Flokkurinn tapaði þó
umtalsverð.u fylgi bæði til hægri og
vinstri manna. Kosið var um 105 af 151
þingsæti og fékk Þjóðarflokkurinn
öruggan meirihluta eða 83 þingsæti.
Stjórnarandstöðuflokkurinn PFP,
sem vill binda enda á aðskilnaðarstefn-
una í landinu, vann tvö þingsæti af
Þjóðarflokknum. Hinn hægri sinnaði
þjóðernisflokkur HNP vann einnig
mikið fylgi af Þjóðarflokknum án þcss
þó að fá þingsæti. HNP-flokkurinn vill
ganga enn lengra í aðskilnaðarstefn-
unni en stjórnvöld landsins.
Þjóðarflokkurinn hefur verið nær
allsráðandi í stjórnmálum S-Afríku frá
1948.
Bobby Sands var enn í hungurverk-
falli í Mazefanglesinu á Norður-frlandi
í morgun og hefur fasta hans nú staðið
í sextíu og einn dag.
Svo virðist sem sendimanni páfa,
Pieter Botha forsætisráðherra.
séra John Magee, hafi mistekizt að fá
Sands til að hætta hungurverkfallinu
og sömuleiðis virðist honum hafa mis-
tekizt að fá brezka ráðamenn til að
fallast á einhverja þá málamiðlun sem
gæti bjargaðlífi Sands.
Sendimaður fékk engu breytt
Styrkið og fegríð líkamann
Dömur og herrar!
Ný 4ra vikna námskeið hefjast 4. maí. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértimar
fyrir eldri dömur og þær sem em slæmar í baki eða þjást af vöðva-
bólgum.
Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi —
Innritun og upplýsingar alla virka daga frá
kl. 13-22 í síma 83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njúisgötu 49 — Sími 15105
Ráðgjafi frá Mandeville of London
verður þessa viku hér á iandi á eftir-
tö/dum stöðum:
REYKJAVÍK Rakarastofan Klapparstig, sími 12725, mánudag 4.
mai, miðvikudag 6. maí, föstudag 8. maí.
AKUREYRI: Jón Eðvarð, rakarastofa, Strandgötu 6, simi 24408,
þriðjudag 5. mai.
KEFLAVIK Klippotek, Hafnargötu 25, simi 3428, fimmtudag 7.
mai.
Sjómannadagsráð
Vestmannaeyja
óskar eftir tilboðum frá hljómsveit til að leika fyrir dansi í
samkomuhúsi Vestmannaeyja um sjómannadagshelgina,
bæði laugardag og sunnudag.
Ennfremur vantar tilboð frá diskóteki í litla sal.
Tilboðum sé skilað fyrir 15. mai til Sjómannadagsráðs
Vestmannaeyja, Pósthólf 500, Vestmannaeyjum.
Lausstaða
Staða lektors (50%) i greiningu og röntgenfræði í tannlæknadeild Há-
skóla íslands er laus til umsóknar. Staðan verður veitt til þriggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vis-
indastörf sín, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6, ÍOI
Reykjavík, fyrir 25. maí nk.
Menntamálaráðuneytið,
27. apríl 1981.
REIKNISTOFA BANKANNA
óskar að ráða starfsmenn:
1. Kerfisfræðing/forritara
2. Kerfisforritara
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamennt-
un á tölvu-, viðskipta- eða stærðfræðisviði eða
hafi víðtæka starfsreynslu.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1981.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Reiknistofu bankanna á Digranesvegi 5, Kópa-
vogi.