Dagblaðið - 30.04.1981, Side 24
36
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
Rúnar Bj. Jóhannsson fulltrúi jjármálaráðherra í
stjóm Flugleiöa.
„ Vona að ég geti látið
eitthvað gott af mér leiða
Rúnar Bj. Jóhannsson er annaö
nýtt nafn sem heyrðist fyrst nú fyrir
aðalfund Flugleiða hf. {siðustu viku.
Hitt nafnið er Kári Einarsson sem
viðtal var við hér á sfðunni i gær.
Rúnar er fulltrúi fjármálaráðherra i
stjórninni, en Kári /ulltrúi sam-
gönguráðherra.
Rúnar Bj. Jóhannsson hefur
starfað hjá Rikisendurskoðun frá
áramótun 1979-1980 sem deildar-
Stjóri. Áður var hann við vinnu i
Kaupmannahöfn, eöa eftir aö hann
lauk námi þar 1 rekstrarhagfræöi
1978.
„Ég er fæddur á Akranesi 13.
nóvember 1949, og þar er ég uppal-
inn. Ég fór i nám i Samvinnuskólann
á Bifröst og síðan fór ég til Reykja-
víkur að læra endurskoðun,” segir
Rúnar. Hann er kvæntur Ebbu
Arnórsdóttur og eiga þau sextán
mánaða tvíbura. Rúnar er mikill
skokkari enda fþróttir eitt af áhuga-
málum hans.
— En hvernig leggst það f þig að
setjast f stjórn Fluglelða?
„Það leggst ágætlega i mig. Mér
fínnst spennandi aö fá að kynnast
þessu og vona bara að ég geti látið
eitthvað gott af mér leiða. Ég held að
með þvi að beita sér og leggja vinnu
sina af mörkum ætti maður að geta
komið einhverju til leiöar. Staða
Flugleiða er erfið og næstu mánuðir
og næsta ár skipta sköpum i þvi hvaö
verður i framtíðinni,” segir Rúnar.
,,Það er margt sem þarf að gera á
næstunni eftir þvi sem segir i
rekstraráætlun fyrir næstu mánuði.
Sjálfur hef ég lengi haft áhuga fyrir
málefnum Flugleiöa, lærði meira að
segja hjá endurskoðanda þeirra,
Guðna Gislasyni. Að visu var hann
þá hjá Loftleiðum.
Þá komu Flugleiðir einnig við sögu
hjá mér á meðan ég var i námi i
Kaupmannahöfn. Ég sá um flug fyrir
íslendingafélagið. Meöal annars með
þvi að gera samninga viö skrifstofuna
um hópferðir til íslands.
Einnig haföi ég afskipti af Flug-
leiðum sl. haust sem ráðgjafi Baldurs
Óskarssonar og Birgis Guðjónssonar
er þeir könnuðu rekstrarstöðu fyrir-
tækisins. Þau afskipti urðu meðal
annars til að ég var valinn i stjómina
auk annars. Má þar nefna að ég er
starfsmaður fjármálaráðherra sem
deildarstjóri hér i Rikisendurskoðun
inni og einnig það að ég er flokks-
bundinn i Alþýðubandalaginu,”
sagði Rúnar Bj. Jóhannsson.
-ELA
Rúnar Bj. Jóhannsson situr i stjórn Flugleiða sem fulltrúi fjérmáiaráó-
herra. Hár er hann á skrrfstofu sinni hjá rikisendurskoðun.
DB-mynd Einar Ólason.
Islenzk kona vekur athygli í Winnipeg
fyrir höggmyndir:
„ Var beðin að kennafrœgri
listakonu að móta í leir”
— segir Anna Bára Árnadóttir sem nú er ífríi á heima-
slóðum
Drekkhlaðinn kom báturínn í höfn með 7 tonn af fiski. „ Veiðin er alltafað
aukast, "segir úrsmiðurinn...
Cr úrsmíðinni í sjómennskuna:
siðuna.
Anna hóf nám hjá Listaháskólan-
um í Winnipeg fyrir þremur árum og
hefur vakið mikla athygli þar i borg.
Var meðal annars komið upp einu af
verkum hennar á skólalóðinni tíl
sýnis, sem er afar sjaldgæft. Þá var
Anna fengin tíl að kenna frægri Usta-
konu i Kanada mótun. Og hún hefur
hlotíð hæstu einkunnir i öllum sinum
greinum og þykir afburða nemandi.
Anna Bára er nýkomin hingað tíl
lands tíl að gangast undir læknismeð-
ferð. Hefur hún hugsað sér að vera
hérlendis fram á haust. „Þetta er
mjög erfitt nám en skemmtilegt. Til
dæmis er hver kennslutimi samfleytt f
þrjá tima og skylda er að taka 6—9
kennslutfma á viku. Auk þess verður
nemandi að taka 4—5 námskeið yfir
veturinn. Næsta vetur fer ég inn í sér-
fag og þá verður kennslan enn
erfiðari. Þá verður hún lika meira
verkleg,” segir Anna.
„Annars er mjög gott að vera
námsmaður i Kanada. Aðstaöa fyrir
böm er frábær og ókeypis fyrir börn
námsmanna á dagheimiU. Hins vegar
vandast máUð þegar náminu er lokið,
þvi ógjörningur er að fá atvinnuleyfi.
Núna er eiginmaður minn búinn í
sinu námi og aUs óvfst hvort hann fær
vinnu. Þetta er vegna þess hve mikiö
atvinnuleysi er i Kanada. Náms-
mönnum erlendis frá hefur fækkað
mikið út af atvinnuleysinu. Ég er eini
Íslendingurinn í Ustaskólanum sem
kem beint frá íslandi. Og ennþá á ég
tvo vetur eftir í skólanum,” segir
Anna Bára.
Margar sýningar hafa veriö
haldnar á verkum önnu I skólanum
en hún hefur ekki haldið einkasýn-
ingu enn sem komið er. Mjög sjald-
gæft er að konur leggi fyrir sig högg-
myndalist, en Anna heggur bæði i
stál og stein. Þá hefur hún einnig
fengizt við keramik, málun og tau-
þrykk.
-ELA
„Þetta er lífið ”
— segir Ulrich Falkner sem keypti
bát til að fá tilbreytingu í
hversdagslífið
„Ég hafði alltaf mikinn áhuga
fyrir aö læra höggmyndaUst. Ég vann
hjá Samvinnubankanum áður en ég
fór utan, en áður hafði ég verið tvö ár
i Listaskólanum Myndsýn, sem siðan
var lagður niður. Einnig var ég um
tlma i Ásmundarsal. Er við fluttum
til Kanada fyrir þremur og hálfu ári
var það vegna þess að eiginmaður
minn, Jónas Þór, var að fara i nám.
Fyrsta árið okkar í Kanada var ég
húsmóðir, en við eigum tvær dætur
sem nú eru 5 og 7 ára,” sagði Anna
Bára Árnadóttir i samtaU við Fólk-
Anna Bára Árnadóttir hefur vakið mikla athygh í Winnipeg fynr verk sin.
Hár er hún ásamt dœtrum sínum tveimur Katrínu SifÞór tilhœgri og Elsu
MaríuÞór.
DB-mynd Bjarnlerfur.
Stundum verða menn leiðir á ævi-
starfinu og kjósa að fá tilbreytingu
um stund. Þó er þaö vafalaust sjald-
gæft að menn sem aUa tfö hafa unnið
við afar fínlega vinnu rífi sig upp,
kaupi bát og fari á sjóinn.
Þetta gerði úrsmiðurinn kunni, Ul-
rich Falkner. Hann langaöi í smátíl-
breytingu, keyptí sér 29 tonna bát,
Arnarborg RE 27, og er nú skipstjóri á
bátí sinum með fimm menn í vinnu.
Sveinn Þormóðsson ljósmyndari DB
var á röltinu um höfnina i vikunni er
hann sá bátinn koma drekkhlaðinn af
fiski tíl hafnar. Þar var úrsmiðurinn
að koma i land með 7 tonn af fiski, er
veiddist rétt utan við höfnina.
„Þetta er dásamlegasta Uf sem ég
hef komið nálægt, þetta er lifið,”
sagði Ulrich, er hann steig i land sæil
og glaður eftir útíveruna. ,,Við
höfum aflað mjög vel, veiðin er alltaf
að stórlagast.”
Ulrich var þó ekki eins ánægður
með þá ákvörðun að leyfa eigi veiði
með snurvoð. „Það verður tíl að
drepa niður aUa veiði,” sagöi hann.
„En ég er bjartsýnn, veiðin er alltaf
að aukast og þetta starf er skemmti-
legasta tUbreytíng,” sagði úrsmiður-
inn. Sjómennsku ætíar hann þó ekki
að stunda nema um tíma þvi verzlun-
in kallar og viðskiptavinirnir.
-ELA
...og sæll og gtaður eftir útiver-
una brosir hann á móti sjómennsk-
unni og Hfinu.
DB-myndir S.