Dagblaðið - 30.04.1981, Side 28
— við sovézka her-
mennef kemurtil
innrásar
— hittirað máli
fulltrúa verkalýðs-
samtaka og
stjórnmálaflokka,
auk þessaðtalaá
1. maf-fundum
Nýja verölags- og efnahagsmálaf rumvarpið:
Fimm umræður eftir
og 11 stundir til stefnu
— Sjálf stæðismenn komu í veg fyrir kvöldf und f gær
— Lagapróf essorinn á öndverðum meiði við Geir
Lagaprófessorinn Jónatan Þór-
mundsson var meðal þeirra mörgu
sérfræðinga sem kvaddir voru á fund
fjárhags- og viðskiptanefnda Alþing-
is vegna umfjöllunar nefndanna um
nýja frumvarpið um verðlags- og
efnahagsmál. Þar var hann beint
spurður að því hvort hann væri sömu
skoðunar og Geir Hallgrímsson, að
lögbannsaðgerðir i verðlagsmálum
sem kveðið er á í frumvarpinu myndu
leiða þjóðfélagið inn á braut lög-
reglurikis.
„Nei, því fer fjarri,” svaraði laga-
prófessorinn afdráttarlaust að sögn
heimildarmanns DB.
Nefndafundir og þingfiokksfundir
um frumvarpið stóðu i allan gærdag
frá klukkan 8 að morgni til kvölds.
Nefndarálit sjálfstæðismanna reynd-
ist svo siðbúið að ekki varð af fyrir-
huguðum kvöldfundi. Þannig komu
sjálfstæðismenn í veg fyrir umræður
um málið í gærkvöldi.
Áformað er að hefja fund í neðri
deild kl. 13 í dag og gert er ráð fyrir
að umfjöllun neðri deildar um frum-
varpið geti verið lokið kl. 5—6. Þá er
áformað að efri deild hefji umræður
um frumvarpið. Vonast stjómarsinn-
ar enn til að það verði afgreitt sem
íög frá Alþingi í kvöld eða fyrri hluta
nætur.
Einhverjar orðalagsbreytingar á
frumvarpinu liggja i loftinu m.a. að
úr 5. grein falli þrjú orð sem kveða á
um misjafna bindiskyidu innláns-
stofnana. Hafði stjórnin i huga að
Útvegsbankinn og Landsbankinn,
sem þyngstar skyldur bera við sjávar-
útveginn, gætu sloppið léttar en aðrir
bankar við bindiskyldu. Nú munu
bankar hafa lagzt gegn slíkri heimild.
Einnig er hugsaniegt að aukning
heimildar til bindiskyldu verði bund-
in við ákveðna prósentu.
Stjórnarflokkarnir kvarta undan
að lítill agi sé nú í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins. Stjómendur þing-
flokksins fallist á samkomulag um
afgreiðslu mála en síðan virði aðrir
þingflokksmenn Sjálfstæðisflókksins
ekki gerðan samning stjórnenda
þingflokksins.
-A.St.
„Sendiherra” frjalsu verkalýössamtakanna íPóllandi á
Norðurlöndum kom til íslands í gærkvöldi:
Auövitaö mun
Umferðardeild lögreglunnar gerir þessa dagana mikla razziu á mótorhjólum bœj-
arins. Á þessum tíma reyna unglingamir mótorhjóHn eftir geymsluna í vetur og
hafa kvartanir borizt til lögregnunnar vegna hávaða um nœtur og skemmda á
viðkvœmum grasflötum. Um 30 hjól voru tekin i gœr, bœði vegna þess að eigend-
ur skorti próf svo og vegna lélegs ástands mótorhjólanna. Razzian heldur áfram
nœstu daga og á llklega þá enn efitir aðfjölga hjólunum l porti lögreglustöðvarinn-
ar við Hveifisgötu. Á myndunum má sjá röð af hjólum sem tekin voru af eigendum
í gœr. Á minni myndinni eru lögreglumennimir Rúnar Sigurpálsson og Eirikur
Beck ásamt svekktum eiganda hjólsins.
-ELA/DB-myndir S.
kvæmt. Bezt er auðvitað að heim-
sækja landið, sjá með eigin augum
hvað er þar að gerast og tala við fólk-
ið. Enginn pólitiskur stimpill er á
hreyfmgunni. Þarna er verið að hefja
byltingu án ofbeldis gegn sovétskipu-
laginu, gegn alræðinu sem ríkir á
öllum sviðum. Þama er ríkjandi
sósíalismi að nafninu til en almenn-
ingur hefur samt lítið sem ekkert að
segja um landsstjómina. Enginn vill
einkaeign á framleiðslunni í stað
ríkisrekstursins sem nú er. En fólkið
sjálft á að hafa mun meiri áhrif. Pól-
verjar riðu á vaðið. í framtíðinni
mun þessi bylting ná til allrar sovét-
blakkarinnar í Austur-Evrópu. Það
em margar ástæður fyrir að hreyfing-
in vaknaði einmitt í Póllandi. Ein er
sú að þar er jú mjög rik lýðræðis-
hefð,” sagði Jakúb Swieddki.-ARH.
um víð berjast
„Auðvitað er yflrvofandi hætta á
sovézkri innrás í PóIIand. Ég held
þó og vona að til þess komi ekki.
Sovétmenn tapa meiru en græða á
slíku. En komi til innrásar munu við-
brögð fólksins verða önnur en gerðist
í Tékkóslóvakíu 1968. Það verður
barizt við innrásarhermennina og
stór hluti pólska hersins mun berjast
við hlið okkar,” sagði Jakúb Swie-
ciciki, landflótta Pólverji sem kom
til Reykjavíkur í gærkvöldi. Hann er
fulitrúi KOR, samtaka andófsmanna
í heimalandinu, og „sendiherra”
Einingar, frjálsu verkalýðssamtak-
anna i PóIIandi, á Norðurlöndum
með aðsetri í Svíþjóð. Hann er jafn-
framt fulltrúi Einingar hjá aðalbæki-
stöðvum Alþjóðasambands frjálsra
verkalýðsfélaga í BrUssel og var þar í
borg í tvo mánuði fyrr á árinu.
Molb Maclcatl r»ra* mjgum yflr Dagblaðs-
fréttk af 0K1QÍ mála I PóHandi I gwkvtHd:
„Aflalatriðið fyrir fólk á Vuturiöndum mO skB|a
hvsð ar að garaat I Póllandl og valta oldcur alð-
farMagan atuflning." D-mynd: Atii Rúnar.
Næstu 6 mánuði verður hann í fullu
starfi fyrir Einingu í Stokkhólmi en
vonar að síðar á árinu fái hann leyfi
pólskra stjómvalda til að fara hdm.
Jakúb Swieddki er hér á landi í boði
Kommúnistasamtakanna og Verka-
lýðsblaðsins. Hann mun koma fram
og tala á útifundum baráttugöngu
launafólks og Rauðrar verkalýðsein-
ingar á morgun og á innifundi fullt-
rúaráðsins í Sigtúni annað kvöld.
Einnig mun hann koma fram i út-
varpi og sjónvarpi, eiga viðræður við
fulltrúa stjórnmálaflokkanna og
verkalýðssamtaka.
„Aðalatriðið fyrir fólk á Vestur-
löndum er að skilja hvaö er að gerast
í Póllandi og veita okkur siðferðileg-
an stuðning. Það er margt sem fjöl-
miðlamenn skilja ekki og segja ekki
rétt frá, annað er sannleikanum sam-
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
Stefnir ílokun dagvista
á höfuðborgarsvæðinu:
„Tilbúnar í
átök ef
þörf þykir
— segjafóstrurog
hafna einróma
„lokatilboði”
borgaryfirvalda
„Við erum tilbúnar í átök ef með
þarf og sættum okkur engan veginn við
það sem launamálanefnd borgarinnar
kallar lokatilboð sitt,” sögðu Marta
Sigurðardóttir og Arna Jónsdóttir,
fóstrur hjá ríki og Reykjavíkurborg í
morgun.
Á sameiginlegum fundi fóstra í
Reykjavík í Garðabæ og Hafnarfirði í
gærkvöldi var samþykkt einróma að
hvika hvergi frá fyrirætlunum um að
hætta störfum frá og með 1. mai hafi
samningar ekki tekizt. Haldinn var
óformlegur fundur með fóstrum hjá
ríkinu og viðsemjendum þeirra í gær-
kvöldi og talið líklegt að formlegur
fundur verði boðaður í dag. Að öðru
leyti er enginn hreyfing á samninga-
málum. f Garðabæ bauð bærinn
fóstrum 12. launaflokk sem byrjunar-
kaup og 13. flokk eftir 3 ár. Fóstrur
gerðu gagntilboð um sömu flokka-
skipan og bærinn bauð að viöbættum
14. flokki eftir 9 ára starf. Því hafnaði
bærinn. í Hafnarfirði hefur ekki verið
boðaður fundur fóstra og bæjaryfir-
valda. Hins vegar hafa fóstrur þar náð
samningi við Verkakvennafélagið
Framtíðina og nunnur sem reka barna-
heimili í bænum. Þar er byrjunar-
flokkurinn sá 12., 13. flokkur eftir 2ja
ára starf og 14. fl. eftir 7 ár. Bæði í
Hafnarfirði og í Garðabæ er fóstru-
námið látið jafngilda hækkun um dnn
launaflokk og byrjunarflokkurinn í
raunsá 13.
•ARH.
SnjóríEyjum
— mjög óvenjulegt á
þessum árstíma
Allt er nú á kafi i snjó í Vestmanna-
eyjum. Samfelld snjókoma var þar frá
því í gærmorgun og þar til í nótt. Er
Eyjamenn fóru á fætur í morgun var
snjólagið 15—20 sentimetra þykkt.
Mjög óvenjulegt er að snjói á þessum
árstíma i Eyjum.
Mjög góð aflabrögð hafa verið hjá
Eyjabátum að undanförnu, nánast
landburður af fiski dag eftir dag. Afla-
hæstur bátanna er Þórunn Sveinsdóttir
með 1298 tonn. Suðurey VE fylgir fast
á eftir með 1293 tonn og nokkrir bátar
eru með y fir 1000 tonn.
-FÓV, Vestmannaeyjum.
mmABW
Auglýsingadeild DB er opin til kl. 22
í kvöld en lokuð á morgun 1. maí. Opið
er á laugardag frá kl. 9—14 og á sunnu-
dag frá kl. 14—22. Næsta blað kemur
mánudaginn 4. mai.
diet pepsi
MINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU
Stinilas