Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 19.05.1981, Qupperneq 9

Dagblaðið - 19.05.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 19&1. d Erlent Erlent Erlent Erlent Tennisstjarm játar kynvillu — Billie Jean King var í lesbísku sambandi við ritara sinn í 7 ár FÓLK Ef einhvern tímann hefur verið lá- deyða umhverfis tennisstjörnuna Billie Jean á það alla vega ekki við undan- farin tæp tuttugu árin. Átján ára gömul gerði hún sér lítið fyrir og vann sigurvænlegasta keppandann í kvenna- flokki á Wimbledonmótinu á fyrsta degi. Síðan hefur Billie Jean verið í sviðsljósinu fyrir frammistöðu og íuæði, jafnt í íþrótt sinni sem á öðrum sviðum. Hún hefur gert tennisíþrótt- inni ómetanlegt gagn með skipuiags- hæfileikum sínum og á drýgstan hlut í að hafa hafið allar greiðslur til kepp- enda upp í æðri veldi en áður tíðkaðist. Hún hefur verið óbangin við að víkja út af troðnum slóðum; var t.d. meðal kvenna í sviðsljósinu er viðurkenndu að hafa gengizt undir fóstureyðingu þegar umræður um þau mál stóðu sem hæst. Nýverið kom hún þó flestum í opna skjöldu er hún viðurkenndi opinberlega að hafa verið í lesbisku sambandi við ritara sinn fyrrverandi, Marilyn Barn- ett. Tilefnið var að hin 33 ára gamla Barnett stefndi Billie Jean King (37 ára) fyrir rétt og krafðist lífeyris er vera skyldi í samræmi við tekjur tennis- stjörnunnar. Barnett kvað samband þeirra hafa staðið í ein 7 ár og varð æf þegar King hjónin hugðust selja hús eitt sem Barnett taldi keypt sérstaklega handa sér. Fyrstu tvo dagana eftir stefnuna vís- aði Billie Jean King ákærum þessum á bug með öllu; þær væru rakin ósann- indi. Þá boðaði hún til blaðamanna- fundar og játaði að hafa staðið í les- bísku sambandi við Barnett en það til- heyrði liðinni tíð. Eiginmaður hennar, lögfræðingurinn Larry King, var við hlið hennar á fundinum. Billie Jean kvað samband þeirra hjóna aldrei hafa verið betra en nú en þau hafa verið gift f 16 ár. „Hann er mér elskhugi, eigin- maður og minn bezti vinur,” sagði hún. Billié Jean King sagðist ekki hafa hugmynd um hvernig tennisleikarar al- mennt myndu bregðast við henni eftir þetta. Þekkt nafn i íþróttinni, Wendy Turnbull frá Ástralíu, sagði að fólk hlyti að dást að kjarki hennar. Önnur „tenniskona”, Pam Shriver, sagði kyn- villu ekki algenga í íþróttinni en bætti við að Billie Jean hefði gert svo mikið fyrir tennis að hún yrði alltaf dáð sem tennisleikari og manneskja, hvað sem öðru liði. Danny Kaye erindreki Barnahjálparinnar. Þarna er hann í Helsinki. Danny Kaye fœr viðurkenningu — fynr framlag sitt til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna Wateler-friðarverðlaunin, sem Carnegie-stofnunin út- hlutar, fóru í ár í fyrsta sinn til skemmtikrafts, Danny Kaye. Stofnunin sagði að Danny Kaye fengi verðlaunin fyrir framlag sitt til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðánna. Kaye hefur í mörg ár starfað að málefnum þurfandi barna víðs vegar í heiminum og í raun virkað sem eins konar sendiherra Barnahjálparinn- ar. Wateler-friðarverðlaunin voru fyrst veitt árið 1927. Þau eru kennd við þýzkan millj- ónamæring, J.G.D. Wateler, sem vildi að eignir sínar rynnu til góðs málefnis eftir sinn dag. Tennisstjarnan Biilie Jean King ásamt eiginmanni sínunt. I.arry, á hlaðamannalund inum þegar hún játaði lesbískt samband við fyrrverandi ritara sinn, Marilyn Barnett. Larry Hagman gefinn minkapels — er nú loðinn frá hvirfli til ilja Larry Hagman, sem leikur J.R. Ew- ing í Dallas þáttunum, mun hafa verið „módel” í auglýsingum fyrir minka- pelsframleiðanda nokkurn. Kappanum hlýtur að hafa tekizt þokkalega að skila af sér því verkefni sem og öðrum því fyrirtækið bauðst til þess að senda frú Hagman eitt stykki pels, án reiknings vitaskuld — og þann pels ekki af verri sortinni. Larry Hagman sagði hins vegar að hún ætti nú svoleiðis en sig hefði lengi langað í einn. Og viti menn, framleið- andinn sá til þess að draumurinn rætt- ist; gaf Hagman S30.000 minkapels, síðan og með hettu, svo ekki ætti honum að verða kalt á næstunni. Sumum finnst stórstirnið, íklætt ger- seminni, minna einna helzt á tunnu en dæmi nú hver sem betur getur. Larry Hagman í $30.000 pelsinum sinum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.