Dagblaðið - 27.05.1981, Page 5

Dagblaðið - 27.05.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. MAl 1981. 5 Ráðizt með loftborum að heimili sjúklings — vimupallar reistir innan um húsgögn á stofugólfínu — íbúiim að heiman í endurhæfingu Verkamenn voru í óða önn í fyrra- dag að brjóta niður með loftborum, vegg á litlu húsi sem stendur á baklóð skammt frá Hafnarbíói. Ekki þætti slíkur atburður fréttnæmur ef ekki væri fyrir það að hér var verið að brjóta niður heimili manns. Maðurinn sem býr í húsinu á við áfengisvandamál að etja og dvelst um þessar mundir af þeim sökum í Hlað- gerðarkoti en það er endurhæfingar- stofnun sem Hvítasunnusöfnuðurinn rekur fyrir drykkjusjúklinga. í húsinu voru flestar eigur mannsins, svo sem sjónvarp, húsgögn og föt enda hefur hann greitt leigu af því fram til 1. júni og, að þvi er Dagblaðið kemst næst, ekki enn verið sagt upp leigu- samningi. Er ljósmyndari Dagblaðsins mætti á staðinn var lögreglan komin á vettvang og búin að stöðva frekara niðurbrot. Ættingi drykkjumannsins sem hugðist sækja föt hans hafði kallað á lögregl- una er hann sá hvað um var að vera. Lögreglumönnunum ofbauð að sjá þá lítilsvirðingu sem friðhelgi heimilis- ins var þarna sýnd. Hafði einn þeirra á orði að hann hefði aldrei séð annað eins. Á stofugólfinu var búið að reisa vinnupail til að hægara yrði að brjóta niður vegginn. Haft hafði verið fyrir því að breiða yfir húsgögnin sem annars hefðu farið illa því mikið ryk og brot úr veggnum voru um allt. Til stendur að hefja framkvæmdir á grunni húss sem reisa á við hliðina og virðist sem gamla húsið hafi veriðfyrir. -KMU. Norræn trimmlandskeppni fatlaðra: KEPPNIN NAUÐ- SYNLEG TIL AÐ ÝTA OKKUR ÚT í GÖNGU Lögreglumönnunum, sem komu að, ofbauð sú litilsvirðing sem friðhelgi heimilisins var þarna sýnd. Þeir þurftu ekki að kvarta undan veðrinu íbúar Blindraheimilisins við Hamrahlíð er þeir héldu í sína daglegu göngu í hádeginu í gær. Hópurinn fer á hverjum degi eftir hádegisverð í göngu um nágrennið. Er það gert til að safna stigum i norrænu trimmkeppni fatlaðra sem senn er á enda. „Við leggjum yfirleitt af stað eftir hádegismat og þegar við komum til baka bíður okkar kaffið,” sagði Elísa- bet Kristinsdóttir einn íbúanna í spjalli við blaðamann DB.,,Það er ósköp gott að þessi keppni skuli vera, hún ýtir á eftir okkur út. Það er nauðsynlegt að fá þessa hreyfingu,” sagði Elísabet. Venjulega eru um lOmannsí göng- unni og tveir sem hjóla. Einnig hafa þau farið í sund og þá í Árbæjarlaug- ina. Ólafur Þór Jónsson er hvað dug- legastur að drifa íbúana út en hann hefur verið í stjórn íþróttasambands Ólafur Þór Jónsson á reiðhjólinu ásamt aðstoðarmanni sinum i þetta skiptið, Ásdfsi Þórðardóttur. Blindraheimilið hefur tvö sUk reiðhjól til umráða og á von á tveimur til þremur i viðbót. DB-myndir Sig. Þorrí. fatlaðra í tvö ár. Ólafur vinnur alltaf í hádeginu þannig að hann safnar stigum á kvöldin. , ,Það var aUtaf farið í göngu eftir há- degi hér áður fyrr. Gangan lagðist niður en núna fengum við tækifæri til að endurvekja hana,” sagði Olafur. BlindraheimUið hefur nú til umráða tvö tveggja manna reiðhjól og tvö til þrjú í viðbót eru í pöntun. Ólafur er mikill þjólreiða- maður og hefur hann fengið systurson sinn til að stýra hjólinu. Á næstunni verður efnt til Norðurlandakeppni i hjólreiðum og verður Ólafur einn þátt- takandi af fjórum frá BlindraheimU- inu. Til að undirbúa sig fyrir þá keppni hjólaði hann um alla höfuðborgina á hjólreiðadaginn, m.a. út áGranda. „Við þurfum að hjóla 25 km i keppninni og þurfum þvi að æfa okkur. öll íþróttaiðkun er tU góða og svona keppnir hafa örvað áhuga hjá föduðum fyrir íþróttum,” sagði Ólafur um það leyti sem hann hélt af stað. í þetta skipti ætlaði hópurinn upp f öskjuhlið. -ELA. Ásgerður Ólafsdóttir blindraráðgjafi (til hægrí) ásamt Elisabetu Kristinsdóttur (I miðið) og Rósu Guðmundsdóttur, spjalla um keppnina áður en haldið er af stað. —segja íbúar Blindraheimilisins \uimm Lagt af stað I göngu frá Blindraheimilinu I góða veðrínu I gær. Hálftima ganga á dag gefur stig I keppnina en henni lyaur nú um'helgina. Auglýsing frá vióskiptabönkunum Athygli er vakin á því, að umsóknarfrestur um skuldbreytingu lausaskulda húsbyggjenda rennur út um þessi mánaðamót. Umsóknareyðublöð liggja frammi í bönkunum og verður tekið á móti umsóknum fram á mánudag 1. júní n.k. ALÞÝÐUBANKINN H/F SAMVINNUBANKI ÍSLANDS H/F BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKIÍSLANDS IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS H/F VERZLUNARBANKI ÍSLANDS H/F LÁNDSBANKI ÍSLANDS QJ t

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.