Dagblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 20
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNl 1981.
*
BÍLHRÆ ENDANLEGA RÚSTUD
—og á eftir veifaði ökumaðurinn glaðlega
til agndofa áhorfenda
Koma ameríska ökuþóraflokksins Hell Drivers til landsins nýlega vakti
mikla athygli og flykktist fólk til að sjá ofurhugana sýna listir sínar, bæði í
Reykjavík og á Akureyri. Þegar DB-menn fylgdust með sýningu á Melavellin-
um í Reykjavík sýndu liðsmenn flokksins að þeir láta sér ekki alK fyrir bijósti
brenna — þeir létu sig til að mynda hafa það að eyðileggja tvo bíla. Eins og að
drekka vatn. Þó er kannski ósanngjarnt að tala um „bíla" í því sambandi, því
um var að ræða hálfgerð hræ, sem Vaka, Bílapartasalan og fleiri lögðu til.
Hvað mesta athygli vakti síðasta sýningaratriðið, svokallað „T-Bone
Crash". Þá var bílhræi lagt þversum á akbrautina og pallur upp að því. Þar upp
á var öðmm bíl ekið og beint á þann sem fyrir var. Annars er óþarfi að hafa
um það mörg orð, Ijósmyndir Einars Ólasonar skýra atriðið betur.