Dagblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JÚLl 1981.
FRETTASYKIISLEND-
INGA 0G HÁDEGIS-
ÚTVARP í VEITINGA-
HUSUM — „og menn sitja stjarfir af spennu”
Grandvar skrifar:
Það má ætla að hvergi í heimi sé
eins náið fylgzt með fréttum í
fjölmiðlum og hér á landi. Þessu
tekur maður eftir með samanburði
þegar verið er á erlendri grund en
ekki síður ef tækifæri er til að
kynnast daglegu lífi fólks í ýmsum
löndum.
Dagbiöð og útvarp er eins konar
„lífselexír” fslendinga og svo mjög að
hver sjáandi maður er búinn að lesa
úr sér augun, ef svo má að orðið
komast, þegar fyrir hádegi með lestri
þeirra dagblaða sem út koma.
Utvarpið fer heldur ekki fram hjá
þeim er eyru hafa og heyrn nokkuð
óskerta. En það er afar hvimleitt
samt sem áður þegat útvarpshlustun
er orðin svo snar þáttur í lifi fólks að
það getur ekki setzt niður að
snæðingi nema hafa útvarpið opið —
eins og það er nú upplífgandi, eða
hitt þó heldur.
Það er sannarlega ekki lyst-
aukandi að setjast niður í mötuneyti
eða á veitingahúsi og hafa fyrir eyr-
unum tilkynningar um dánarfregnir
og jarðarfarir og fá svo
„einsönginn” í ábæti, eins konar
staðfestingu á að útför hinna látnu
muni fara fram, því svo ámátlegur er
„einsöngurinn” oftar en ekki að
manni finnst sem maður sé þegar
staddur við „begravelsið”.
Síðan koma Fréttir, sem blandast
vopnaglamri hnífapara við mat og
disk. Og menn sitja starfir af spennu
undir kaffidrykkjunni. Sú slökun
sem hjá siðuðum þjóðum fylgir mat-
málstima og neyzlu matar almennt
hverfur eins og dögg fyrir sólu hjá
fólki hér á landi vegna fylgispektar
landsins við radíóið.
Matmálstími hefur enda aldrei
verið slökunartími hjá íslendingum,
því strax og fréttum lýkur I útvarpinu
eru þeir komnir aftur af stað,
annaðhvort til þess að nota það sem
eftir er af matartímanum til að
verzla, fara í bankann, fara með eða
sækjabörnáhæli „Bambles”.
Enneitt
hvimleitt
keðjubréf
— „skrif sem
þessieru
refsiverö”
Oddný Olgeirsdóttir skrifar:
Mér barst I hendur eitt af þessum
hvimleiðu keðjubréfum. Það á að
koma frá Venezuela í S-Ameríku og á
ennfremur að vera skrifað af ein-
hverjum „trúboða, Sct. Antoine de
Sedi.
í bréfinu segir að það boði heppni
og þvi verði að gera 20 önnur slík og
senda í allar áttir, ella muni maður
verða fyrir óláni. Síðan er sagt frá
óförum þeirra er ekki hafa gegnt
þessu og m.a. er íslenzkur maður
nafngreindur, Björn Sveinbjörnsson.
Hann á að hafa lent í bílslysi, sloppið
með skrekkinn, þótt billinn hafi
eyðilagzt en síðar á B. að hafa fót-
brotnað, o.s.frv.
Þessu fylgja hótanir og bæn
Annars tel ég ástæðulaust að tíunda
þetta nánar.
Ég vil hins vegar koma þeim
eindregnu tilmælum á framfæri að
fólk svari ekki þessum þvættingi,
heldur komi þessu umsvifalaust á
næstu lögreglustöð.
Skrif sem þessi eru refsiverð, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar,
og því gerist maður samsekur með
því að dreifa slíkum ófögnuði.
Spennan I þjóðlífí fslendinga eirir
engu og engum. Þetta fylgir landan-
um hvert sem hann fer og hvar sem
hann er.
Sígild er sagan um sendifulltrúa
einn sem var staddur erlendis I boði
oDinberra aðila. Þetta var kvöld-
■ verðarboð i heimahúsi. Matur hafð:
verðið fram reiddur um sex-leylið.
Eitthvað fannst vini vorum frá
að
og
ljúka
við á
landinu kalda dragast
borðhaldinu og leit við
klukkuna.
Þegar klukkan var að verða sjö
fannst honum nógu langt gengið
hvað dróst borðhaldið. Hann stóð
upp frá borðum og spurði gestgjafa
hvort hann gæti ekki vísað sér á af-
drep þar sem hann gæti heyrt fréttir.
Klukkan væri nefnilega orðin sjö
„Það má ætla að hvergi f heimi sé eins náið fylgzt með tréttum I tjolnnoium og
hér á landi,” segir Grandvar.
Alt^
eitthvað
nýtt og
spennandi
T0R0NT0
5. ágúst (vikuferð), biðlisti
12. ágúst, biðlisti.
RIMINI
2., 12.,23. ágúst,
biðlisti, og 2. sept., biðlisti.
P0RT0R0Z
2., 12., 23. ágúst,
biðlisti. 2. sept., biðlisti.
DÖNSKU
SUMARHÚSIN
31.júlí, biðlisti.
7. ágúst, biðlisti.
14. ágúst, biðlisti.
21. ágúst, biðlisti.
Öll almenn ferðaþjónusta —
h var sem er og h vert sem er.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Lekavandamál
leysirþú
meðAquaseal
Aquaseal 40 Heavy Duty er sér-
staklega hentugt á flöt þök þar sem
pollar myndast gjarnan.
Aquaseal 88 er þykkur kíttismassi
með frábæra þéttieiginleika. Hentar
því vel'í samskeyti og sprungur.
Aquaseal Fiashing er sjálflímandi
þéttiborði með biklagi og álþynnu til
hlífðar. Sterkt lím sem grípur strax.
Hentarvel t. d. við reykháfa.
Aquaseal Waterproofing Tape.
Vatnsþéttilímband sem hentar víða. Á
bílþök, hjólhýsaþök, glerhús, - nán-
ast hvar sem er. Límbandið er þræl-
sterkt, harðnar ekki og fylgir ójöfnu
undirlagi.
Rétt ráð gegn raka
olís
OLÍUVERZLUN ÍSIANDS HE
HAFNARSTRÆTI 5 • REYKJAVIK
SÍMI 24220
Spurning
dagsins
Reyndust hugmyndir
þínar um ísland vera
róttar?
(Hópur fattaðra frá Noragl 1 haim-
sókn)
Berit Solstad: Já, en allt reyndist miklu
tilkomumeira. Stórkostlegt. . . .
Harald Hansen: Já, ég hafði lesið tölu-
vert um fsland.
Morten Andersen: Nei, það fer allt of
mikið fyrir hrauni, en við höfum notið
ferðarinnar; fólkið er elskulegt. Kinda-
kjötið ykkar er gott. Við höfum fengið
mikið af því.
Reidun Walle: Já, svo sannarlega. Hér
hef ég komið svo viða og séð svo
margt. Ég er afskaplega ánægð með
þetta ferðalag.
Krlstian Fredriksen: Nei, fólkið er enn
elskulegra en ég hafði gert mér vonir
um. Þetta er indælt land en ekki vildi
ég búa hér. Ég sakna skóganna.
Marlt Myhrt: Já, ég er mjög ánægð;
indælis fólk og mjög sérstæð náttúru-
fegurð.