Dagblaðið - 30.07.1981, Síða 5
5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JÚLl 1981.
KarWflarnar sem Marta kom með.
Eins og sjá má eru þær vægast sagt
ekki fríðar á vangann.
DB-mynd Bj.Bj.
Reykvísk húsmóðir
spyr:
Af hverju
mega Reyk-
víkingar ekki
kaupa kartöf I-
ur að norðan
— þaðermargtsem
norðanmenn þurfa
að kaupaað sunnan?
Marta Bergmann húsmóðir,
Kleppsvegi 92, kom i heimsókn á
Neytendasíðu DB eftir árangurs-
lausar og örvæntingarfullar tilraunir
til að útvega ætar kartöflur á borð
fjölskyldunnar.
Fyrst hafði hún farið í matvöru-
búðina sína i Glæsibæ, SS, og keypt
þar poka af kartöflum, fimm pund,
stimplaðan 6. júlí, merktan rauðar
islenzkar.
„Þegar ég kem heim og tek upp
pokann þá eru þær spíraðar og linar
og ekki nema ein og ein nothæf.
Stuttu seinna fór ég aftur í búðina og
ætlaði nú að reyna nýja tegund, gull-
auga, stimplaðar 9. júlí.
En þær reyndust alveg jafnlélegar.
Þá gafst ég upp og notaði hrisgrjón
i staðinn. En í kvöld ætlaði ég að
hafa gesti og bjóða upp á kartöflu-
salat svo ég dreif mig inn í Græn-
metisverzlun ríkisins. Þar eiga þeir að
hafa beztu kartöflur landsins.
Ég fór með pokana tvo sem ég
hafði keypt í kjörbúðinni og ætlaði
að skila þeim aftur en fékk þau svör
að kartöflurnar mundu hafa
skemmzt i búðinni þar sem ég hafði
keypt þær.
Satt að segja varð ég hálfergileg við
þessa afgreiðslu, því kartöflurnar
sem voru á borðinu þarna í Græn-
metisverzluninni sjálfri voru algjört
skepnufóður. Kannski mætti nota
þær í kartöflumús eða franskar, en
mér finnst þær ekki boðlegar á al-
mennum markaði.”
Hún sagðist siðan hafa talað við
verzlunarstjórann þar sem hún keypti
kartöflurnar og sagðist hann vera
óánægður með það sem hann þyrfti
að bjóða neytendunum, kartöflur
með sentimetra löngum spfrum.
„Mér bjóðast ágætis kartöflur frá
Dalvík,” sagði þessi verzlunarstjóri,
,,en þori ekki að taka þær því þá verð
ég sektaður af grænmetisverzlun-
inni.”
,,Ég skil ekki af hverju Reykvík-
ingar mega ekki kaupa kartöflur að
norðan,” sagði Marta, ,,það er ekki
svo lítið af vörum sem Akureyringar
þurfa að kaupa að sunnan.
Stefnir í metþorskaf la:
ÞEIM GULA MOKAÐ UPP
—einkum fyrir Austurlandi þar sem er vaðandi bæði þorskur og ýsa
Þorskafli landsmanna frá áramótum
nálgast nú 430 þúsund tonna markið
hægt og sígandi. Um síðustu mánaða-
mót var heildarþorskaflinn orðinn 308
þúsund tonn og það sem af er júlí-
mánuði hefur aflinn verið góður,
einkum út af Austfjörðum. Þar hefur
aflahlutdeildin aukizt mest á undan-
förnum árum og er þar nú mokfiskirí.
Austfjarðatogararnir ellefu eiga flestir
eftir að fara einn og tvo túra áður en
þorskveiðidagar þeirra á timabilinu til
ágústloka eru uppurnir.
Vestfjarðatogarar eru allir á
„skrapi”, þ.e. karfa-, ufsa- og ýsu-
veiðum, enda stunduðu þeir þorsk-
veiðar stfft fyrstu daga mánaðarins og
luku sfnurn 2? dögum strax í upphafi.
Veiddist ágætlega. Togarar á Norður-
landi eru flestir að hefja sinar þorsk-
veiðar á tímabilinu og hefur gengið
ágætlega það sem af er. Sömu sögu er
að segja af togurum Reykvikinga og
annarraá Suður-og Suðvesturlandi.
Allt óvíst um
heildaraflann
Jón B. Jónasson, deildarstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, segir allt of
snemmt að segja til um það hvort
heildarafli ársins fari fram úr þeim 430
þúsund tonnum af þorski sem leyft
hefur verið að veiða. „Mestur hluti
aflans hefur fengizt á fyrstu mánuðum
árzins, á hinni eiginlegu vertíð,” sagði
hann í viðtali við DB. „Bátaaflinn er
alltaf verulegur hluti af heildaraflanum;
i fyrra var bátaaflinn t.d. 207 þúsund
lestir og þar af fengust ekki nema um
40 þúsund lestir siðari hluta ársins.
1980 barst á land mesti þorskafli frá
upphafi, um 420 þúsund lestir. Nú er
ekki gott að segja hversu mikið á eftir
að koma á land. Júli og ágúst hafa að
jafnaði verið góðir aflamánuðir og
aflinn virðist vera mjög góður einmitt
núna.”
Óhemju fiskur
fyrir Austurlandi
Það var gott hljóð 1 Ólafi M. Ólafs-
syni útgerðarmanni í Fiskvinnslunni á
Seyðisfirði: „Það hafa allir veitt vel
hérna, bæði færa- og línubátar og eins
togararnir. Að langmestu leyti, eða um
95%, er þetta þorskur og ýsa. í þessum
mánuði hefur verið mikil ýsugengd á
miðunum hér fyrir utan — og miðin
eru nú orðin önnur en fyrr. Ég held að
það hafi aðeins einu sinni í allan vetur
og sumar verið farið norður fyrir
Langanes. Nú siglum við bara beint hér
út og það er óhemju fiskur fyrir öllu
Austurlandi. Ég hef trú á að það verði
það ( framtíðinni lika — hvað sem allir
fiskifræðingar segja. Ég er nú vanur að
taka því öllu með fyrirvara,” sagði
180 tonnum af þorski af Vestfjarðamiðum landað úr Bjarna Benediktssyni í Reykja-
vfkurhöfn i gær. DB-mynd: S.
pn
»' /j
Brúðhjónunum Karli Bretaprinsi og lafði Diönu Spencer bárust margar gjafir 1 gær
en fyrir hönd fslenzku þjóðarinnar afhenti forseti Íslands, Vigdfs Finnbogadóttir,
brúðhjónunum að gjöf olfumálverk af Hofsá. Nánar tiltekið er myndin af Tungu-
selshyl, en Karl prins hefur oftsinnis veitt f þeim hylnum. Myndina málaði Eiríkur
Smith að boði forseta íslands. t gjafabréfi, sem myndinni fylgdi, er að finna upplýs-
ingar um Tunguselshyl og um listamanninn en á ramma málverksins er skjöldur, þar
sem gefanda og tilefnis er getið.
Ólafur.
Marteinn Jónasson, útgerðarstjóri
hjá Bæjarútgerð Reykjavikur, var
einnig hress yfir aflabrögðum þegar
tiðindamaður Dagblaðsins ’ræddi við
hann. „Bjarni Benediktsson var að
koma inn með 180 tonn af þorski af
Vestfjarðamiðum og Jón Baldvinsson
kom inn fyrir nokkru með um 200 tonn
af sömu miðum,” sagði Marteinn.
„Við eigum eftir að koma með talsvert
meira í land, þvi sumir af okkar sex
togurum eru ekki byrjaðir á sínum
þorskveiðum á þessu tímabili og tveir
togarar eru búnir með helming tfmans,
um 11 daga.”
Marteinn sagði að nægur og góður
afli væri einnig í „skrapinu”, sem
togararnir sinntu inn á milli þorskveiði-
túranna. „Minni skipin hafa komið
með fullfermi eftir vikuferð,” sagði
hann, ,,og stærri togararnir eftir heldur
lengri tíma.”
Að glœðast f yrir
norðan
Afli Norðurlandstogara er nú mjög
að glæðast, að sögn Vilhelms Þor-
steinssonar, framkvæmdastjóra Út-
gerðarfélags Akureyringa. „Þetta
hefur verið heldur litið þar til núna að
Harðbakur var að koma inn með 260
tonn og annað skip kemur á morgun
með annað eins. Mest hefur þetta nú
verið karfi og ýsa,” sagði Vilhelm.
Hann sagði að togararnir ættu eftir
talsvert af dögum til þorskveiða til
ágústloka og útlit væri fyrir að afli yrði
nægur — til þessa væri hann um 15%
meiri en í fyrra. „Friðunaraðgerðir síð-
ustu ára eru að skila sér núna svo ekki
verður um villzt,” sagði Vilhelm, „og
aflabrögð eru góð en það er ekki nóg
þvi frystingin er rekin með tapi og það
þýðir að afkoma frystihúsanna er
slæm. Það fæst einfaldlega ekki nóg
fyrir aflann.”
Vestfirðingar
á skrapi
Jón Páll Halldórsson i Norðurtanga
á Ísafirði sagði litdð um að vera þar um
slóðir því Vestfjarðatogarar væru
flestir á „skrapi”. „Þeir tóku út sfna
þorskveiðidaga í býrjun júlí og þá var
aflinn ágætur,” sagði Jón Páll. „Mér
sýnist að aflabrögð séu mjög svipuð og
í fyrra hvað varðar togarana en bát-
arnir eru aftur á móti miklu aflahærri i
þorskinum.” Hann sagði að aflinn á
„skrapinu” væri góður, þannig hefði
Guðbjörg komið inn á sunnudags-
kvöldið með um 200 tonn af karf, ýsu
og ufsa.
Hlutur Vestfirðinga í heildarþorsk-
aflanum hefur farið nokkuð minnk-
andi undanfarin ár og er nú kominn
niður úr fjórðungi i tæpan fimmtung,
að sögn Jóns B. Jónassonar deildar-
stjóra f sjávarútvegsráðuneytinu.
En þótt togararnir stundi nú þorsk-
veiðar af kappi eru minni bátarnir
komnir i straff til og með 4. ágúst að
boði sjávarútvegsráðuneytisins. Bannið
tekur til allra þorskveiða annarra en
togara, sem falla undir „skrapdaga-
kerfið,” og handfæraveiða báta sem
eru 30 tonn og minni. Það að þorsk-
veiðar eru bannaðar þýðir þó ekki að
engan þorsk megi draga úr sjó á tíma-
bilinu heldur að hlutfall þorsks í afla
hverrar veiðiferðar má ekki vera hærra
en 15%.
1. september hefst síðan þriðja og
síðasta „þorskveiðitímabilið” í ár —
á þvi verður togurum gert að vera á
„skrapi” i r.i'. minnsta kosti fjörutfu
daga. -ÓV.
kindahakki
Kjöthleifur með
eplafyllingu
150 g reyktflesk
500 g kindahakk
2 egg
4 msk haframjöl
2 laukar
1 dl mjólk,
salt, pipar
1 búnt steinselja
1 epli
1/2 tsk karrý
1. Stilliðofninná200°C.
2. Saxið fleskið smátt. Takið u.þ.b. 1/3 frá og geymið.
Hrærið saman hakki, eggjum, haframjöli, rifnum
lauk, mjólk, salti og pipar.
3. Látið helminginn af kjötdeiginu í smurt ofnfast mót.
4. Blandið saman reykta fleskinu,sem tekið var frá,
söxuðu epli, saxaðri steinselju, 1 /2 rifnum lauk og
látið ofaná kjötdeigið í mótinu. Stráið karrýinu yfir.
Hyljið fyllinguna með því sem eftir er af kjötdeiginu.
5. Penslið kjötdeigið að ofan með bráðnu smjöri.
Skerið 1 /2 laukinn sem eftir er í hringi og raðið þeim
ofaná.
6. Bakið í 40-50 mín. eða þar til kjötið er gegnbakað.
Borið fram með kartöflum, laukfeiti og hrásalati eða
öðru meðlæti eftir smekk.
Verð aóeins 29,90 kr/kg
FRAMLEIÐENDUR