Dagblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Þýðingarmikill sigur Reagans í þinginu:
DEMÓKRATAR GENGU
í LIÐ MEÐ FORSETA
— ogtryggðu þannigframgang umdeilds skattalækkunar-
Ronald Reagan.
frumvarps hans
Reagan Bandaríkjaforseti sagöi i
gærkvöldi að Bandaríkin stefndu nú í
átt til nýrrar auðsældar eftir að full-
trúadeild Bandaríkjaþings hafði sam-
þykkt hið umdeilda skattalækkunar-
frumvarp hans. Skattalækkunin er
mjög þýðingarmikill þáttur 1 efna-
hagsstefnu Reagans og það kom
mjög á óvart að hún fengi slikt
brautargengi í fulltrúadeildinni sem
raun varðá.
Atkvæðagreiðslan kemur í kjölfar
mikillar baráttu Reagans forseta fyrir
þvi að fá demókrata, sem eru í meiri-
hluta i deildinni, til að styðja frunr1
varpið. Til þess að frumvarpið næöi
framaðganga þurfti Reagan að fá at-
kvæði 27 demókrata auk atkvæða
repúblikana. Hann gerði gott betur
en það. Alls greiddu 48 demókratar
atkvæði með frumvarpinu og er það
talinn mikill persónulegur sigur fyrir
forsetann sem hvorki hafði sparað
tíma né fyrirhöfn til að vinna þing-
menn demókrata á sitt band.
Ýmsir leiðtogar demókrata
kvörtuðu undan því, eftir að úrslitin
voru kunn, að Reagan hefði fengið
atkvæði margra demókrata út á að
lofa að styðja frumvörp er vörðuðu
fylki viðkomandi þingmanna.
í öldungadeildinni, þar sem repú-
blikanar ráða ríkjum, var aldrei
neinn vafi á úrslitum. Þar hlaut
frumvarpið 89 atkvæði gegn aðeins
11.
I
REUTER
8
FIDE
SAMÞYKKTI
AÐILD PLO
Alþjóðaskáksambandið, FIDE, sam-
þykkti á fundi sinum i gærkvöldi að
veita Frelsissamtökum Palestinu-
manna, PLO, aðild að sambandinu til
bráðabirgða.
44 fulltrúar greiddu atkvæði meö
aðildinni en þrir voru á móti, fulltrúar
Svíþjóðar, Skotiands og Danmerkur.
Israel, sem mælti gegn bráðabirgða-
aðild af tæknilegum ástæðum, og
Bandaríkin sátu hjá.
Aðild til bráðabirgöa felur það í sér
að PLO fær öll réttindi aðildarrikja
nema atkvæðisrétt. Fram að þessu hafa
aðeins viðurkennd ríki getað fengið
aðild að sambandinu.
POLSKAR HUSMÆÐUR
í MÓTMÆLAGÖNGU
— matvælaskorturinn veldur mótmælum um allt landið
Búizt er við að þúsundir húsmæðra
muni í dag ganga i gegnum miðborg
Lodz, næsistærstu borgar Póllands, til
að vekja athygli á matvælaskortinum i
landinu, sem að undanförnu hefur
valdið mótmælum um allt landið.
Baráttan gegn tómum verzlunum,
hertri kjötskömmtun og fyrirhuguðúm
verðhækkunum á matvælum komst á
nýtt stig f gær þegar kom til
skyndiverkfaila i aö minnsta kosti
þremur verksmiðjum f Varsjá.
Einstakar deildir innan Einingar,
sambands hinna óháðu verkalýðsfélaga
í landinu, skýrðu frá vaxandi erfiðleik-
um við að halda reiöi fólksins i skefjum
Erlendar
fréttir
vegna matvælaskortsins og útvarpið í
Varsjá varaði fólk við því að láta til-
Finningamar hlaupa með sig i gönur.
Varsjár-útvarpið viðurkenndi að
verzlun væri orðin hin mesta kvöl en
minnti jafnframt á að mótmæli og
verkföll gætu ekki fyllt búðarhillurnar.
Pólska þingið mun i dag hefja
tveggja daga umræður um efnahagsá-
standið I landinu. Jafnframt var fyrir-
hugað að leiðtogar Einingar kæmu
saman til að ráða ráðum sínum.
Skæruliöar
réðustá
strætisvagn
íísraet
ísraelska sjónvarpið skýrði frá
því í gær að skæruiiðar Palestfnu-
araba hefðu skotið á strætisvagn
skammt frá Jerúsalem og sært
fjóra ísraelsmenn. Þetta er I
fyrsta sinn síðan vopnahléð varð í
Líbanon fyrir sjö dögum að
skæruliðar láta til sin taka (Isra-
el. Áöur höfðu ísraelsmenn skýrt
frá því að þeir hefðu skotið niður
sýrlenzka þotu yftr Lfbanon.
Bani-Sadr
fékk hæli í
Frakklandi
írönsk stjómvöld hafa krafizt
þess að Bani-Sadr, fyrrum forseti
landsins, sem flúði með flugvéi til
Frakklands, yrði framseldur til
Irans. Frakkar hafa veitt Bani-
Sadr hæli með þeim skilyrðum að
hann héldi sig frá stjórnmála-
starfsemi. Áður hafði hann lýst
þeirri von sinni að hann gæti
hvatt til andspyrnu gegn stjórn
Khomeinis.
Skákþing Norðurlanda:
Helmers hefur nú
tekiö forystuna
— Guðmundur teygði sig of langt gegn
Raaste og á tapaða biðskák
Skák 6. umferðarinnar i úrvals-
flokki, sem tefld var í gær, var tví-
mælalaust milli Guðmundar Sigur-
jónssonar og Finnans Raaste. Staða
þeirra tók snemma á sig óijósa mynd
og áhorfendur voru ekki á eitt sáttir
hvor stæði betur að vigi. Eftir
nokkrar vendingar í miðtaflinu var
eins og Finninn væri að ná yfirhönd-
inni, en þá gaf hann skiptamun fyrir
tvö peð, sem að öðru jöfnu hefði
aöeins átt að nægja til jafnteflis.
Hins vegar var eins og Guðmundur
hefði vanmetið fórnina, því hann lét
hjá líða að þvinga fram jafntefli og
rétt (lok setunnar lék hann illa af sér.
Skákin fór i bið, en ef Raaste hittir á
rétta biðleikinn getur Guðmundur
lagt niður vopnin.
Úrslit úr öðrum skákum í úrvals-
flokki urðu þessi:
Ornstein — Kristiansen 1 /2-1 /2
Höi — Heim 1/2-1/2
Helgi — SchUssler 1 /2-1 /2
Hansen — Helmers 0-1
Margeir—Rantanen ’ 1-0
Ornstein og Kristiansen tefldu
Leningrad afbrigðið af hoilenskri
vörn og virtist Kristiansen fá þægi-
lega stöðu framan af. Eftir óná-
kvæmni hans seig Ornstein á, en með
nákvæmri vörn tókst Kristiansen að
halda sinu. Er skákin átti að fara i
bið sömdu kapparnir um jafntefli.
Heim þótti heppinn að sleppa lif-
andi úr skák sinni við Höi — jafn-
tefliskóng mótsins. Hann fékk mun
þrengri stöðu og náði með naurrind-
um andanum aftur eftir stöðugan
þrýsting Danans.
Jafntefli Schusslers var að þessu
sinni 17 leikir. Helgl hafði hvítt en
komst ekkert áleiöis gegn Tarrasch-
vörn Svíans. Helgi haföi orö á því
eftir skákina aö SchUssler hefði ,,elt
hvert einasta peð”.
Hansen, Færeyingurinn ungi,
ætlar að verða seinheppinn á mótinu.
Gegn Helmers átti hann lengi jafn-
tefiismöguleika, en arkaði meö kóng
sinn beint út i rauðan dauðann, þar
sem ekkert blasti við nema mátið. í
skákinni kom upp endataflsstaða þar
sem hvor um sig hafði hrók og biskup
og tvö peö á drottningarvæng, en
Helmers hafði þrjú á kóngsvæng,
gegn tveimur peðum Færeyingsins.
Mislitir biskupar voru á borðinu og
staðan keimlik stöðunni úr skák
ofanritaðs við Byrne á Reykjavikur-
skákmótinu 1980. Hvítur á erfiða
vörn fyrir höndum, en ef hann gefst
ekki upp þótt i móti blási gæti hann
náð skiptum hlut.
Margeiri tókst nú ioks aö sýna sitt
rétta andlit, eftir slaka byrjun á
mótinu. Skák hans við finnska stór-
meistarann Rantanen var í jafnvægi
lengi framan af. Margeir fórnaði
peði og eftir 34. leik hans Hcl var
staöan þannig:
jjrf jj.jgl''.jij J
■ ..m mI i
m
Rantanen, sem orðinn var naumur
á tima, lék illa af sér:
34. — Ha2? 35. Hxc5 Hxd2 36. Bc4!
Kg7
Ef 36. — Hd4 37. d6+ Kg7 38.
Hc7 + Kh6 39. Bd5 og vinnur.
37. Hb5 Hd4 38. Hxb7 + Kh6 39. Bfl
Rantanen féll á tima. Eftir 39. —
g5 40. Hf7 Rg6 41. f3! hefur hvitur
góða vinningsmöguleika. 41. — B3 er
svarað með 42. Hb7.
Biðstaðan i skák Guðmundar
(hvítt) og Raaste.
abcdefgh
Svartur lék biðleik. Eftir 41. —
Bd4! virðist öllu lokið.
Kvennaflokkur
Islensku stúlkurnar stefna hrað-
byri á efsta sæti. 15. umferð urðu úr-
slit þau að Sigurlaug vann Grahm,
Áslaug og Ólöf gerðu jafntefli, en
skák Assmundssen við Stewart fór i
bið og hefur sú siöarnefnda peði
meira i hróksendatafli. Ebba sat yfir.
Staðan eftir 5. umferð er þessi:
1.—2. Sigurlaug Friðþjófsdóttir og
Áslaug Kristinsdóttir 3 1/2 v. af 4.
3. ÓlöfÞráinsdóttir3 v. af 4.
4. Stewart og Assmundssen 11/2+1
bið.
6.-7. Ebba Valvesdóttir og Grahm
1/2 v.
Aörir f lokkar, staðan
Úrvalsflokkur:
1. Helmers4 1/2 v.
2. Ornstein4 v.
3. Guðmundur 3 1/2 + bið.
4. —5. Schilssler, Kristiansen 3 1/2 v.
Margelr Pétursson að talH vM
Rantanen frá Finnlandi. Margeir
sýndi nú loks sitt rétta andlit og
sigraði finnska stórmeistarann.
DB-myndLBj.Bj.
6.—8. Helgi, Höi, Heim 3 v.
9. Raaste2 1/2 + bið.
10. Rantanen 2 1/2 v.
11. Margeir2v.
12. HansenOv.
I meistaraflokki er Daninn Karls-
son efstur með 4 1/2 v. af 5 mögu-
iegum, en íslendingar eru í efstu
sætum i opnum flokki. Arnór
Björnsson hefur 5 v. af 5, Bjarni
Magnússon og Guðmundur Gislason
hafa 4 v. og biðskák og Jón Úlfljóts-
son hefur 4 v. ásamt fleirum.
í kvöld er aðeins teflt i úrvalsflokki
á Skákþingi Norðurlanda og hefst
taflið kl. 18 i Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Sovéski stórmeistarinn
Aieksei Súetin litur siðan inn um kl.
20 og heldur fyrirlestur um vinnuað-
ferðir skákmeistarans.