Dagblaðið - 30.07.1981, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JULl 1981.
Sumargleðin syngur:
„Spilum sem ein heild”
—enda jaf nmargir f ótboltaliði
— Sumargleðin á Norðurlandi um helgina
Sumargleöin er aö sjálfsögðu á ferð-
inni um þessa helgi sem aðrar. í kvöld
verður skemmtun með þeim lagsmönn-
um í Vfkurröst, Dalvík og dansað af
krafti fram eftir nóttu. Á föstudags-
kvöld skemmta þeir félagar Akur-
eyringum i Sjálfstæöishúsinu og á
laugardagskvöld í Skjólbrekku,
Mývatnssveit.
Klukkan 14 á sunnudag verður
fjölskylduskemmtun með Sumargleö-
nni í nýjum samkomusal i Aðaldal er
Ýdalir nefnist. Er það f fyrsta skipti
sem skemmtun er í þvi samkomuhúsi.
Á sunnudagskvöldið endar Sumar-
gleðin þessa helgi með skemmtuii og
dansleik i Skúlagarði í Kelduhverfi.
Aö sögn Þorgeirs Ástvaldssonar
hefur Sumargleöin fengið einstaklega
góðar viðtökur á ferðalögum sínum í
sumar. „Þaö er llka alveg sérlega góð
stemmning okkar á milli,” sagði
Sumargleðin syngur fyrir Norðlendinga um helgina og verður m.a. með fjölskyldu-
skemmtun.
Þorgeir og bætti við: „Við erum 11
saman — eða eins og fótboltalið — og
það riöur á að viö spilum sem ein
heild”.
Þetta er ellefta sumarið sem Sumar-
gleðin er á ferðinni þannig að þarna
eru reyndir kappar á ferö. Að visu eru
þeir Þorgeir Ástvaldsson og Magnús
Ólafsson nýliðarnir í hópnum þar sem
þeir hafa aðeins verið í þessu í tvö
sumur — þeir eru þó örugglega ekki
verri fyrir það. Inn á skemmtun Sumar-
gleðinnar kostar 80 krónur. Ef dans-
leikur er einnig er aðgangseyririnn 180
krónur.
-ELA.
Mikid um dýrðir á Laugahátíð:
INNLENDIR 0G ERLENDIR
SKEMMTIKRAFTAR SÝNA
Utangarðsmenn og Bubbi eru komnir frá útlöndum og um helgina roklta þeir f
Félagsgarði f Kjós. DB-mynd Sig. Þorri.
Utangarðsmenn og Bubbi í fyrsta skipti eftir
heimkomuna:
ROKKAÐ AF KRAFTI
í FÉLAGSGARÐI
Utangarðsmenn, ásamt Bubba
Morthens, koma fram nú um helgina á
mikilli rokkhátiö sem haldin veröur i
Félagsgarði Kjós 1 fyrsta skipti eftir
utanlandsferðina. Dansleikir verða öll
kvöldin, föstudag, laugardag og sunnu-
dag frá kl. 22.
Auk Utangarðsmanna koma fram
hljómsveitirnar Spilafffl og Tauga-
deildin. Fyrir utan dansleiki á
kvöldin verða skemmtanir á laugardag
og sunnudag.
Sætaferðir verða frá Umferðarmið-
stöðinni og tjaldstæði eru á staðnum.
Inn á hvern dansleik kostar 120 krónur
en rokkaðdáendum og Öörum standa
til boða afsláttarmiðar á alla dansleik-
ina þrjá og er verð þeirra 270 krónur.
Síödegisdagskráin er opin hverjum sem
er ókeypis. -ELA.
—auk dansleikja með hljómsveitinni Start
Mikill viðbúnaður hefur farið fram á
Laugum i tilefni Laugahátíðarinnar
sem hefst kl. 18,00 á morgun. Það er
Héraðssamband Suöur-Þingeyinga sem
stendur fyrir hátiðinni og rennur ágóöi
af henni til nýs Iþróttavallar á staðnum
og annarrar æskulýðsstarfsemi.
Hljómsveitin Start, ásamt Pétri
Kristjánssyni, skemmti: gestum á dans-
leikjum föstudag -, laugardags- og
sunnudagskvöld. Kl. 14,00 á laugardag
og sunnudag verða siðan skemmtidag-
skrár þar sem ýmislegt merkilegt verður
að sjá og heyra.
Byrjað verður á fimleikasýningu en
að henni lokinni verður hjólaskauta-
sýning. Eftirherma og búktalari mæta
á svæðiö, fallhlffasýning verður og
þýzkur dansflokkur frá borginni
Portovest Alicia sýnir dansa.
Þá verður teflt með lifandi taflmönn-
um og meöal þeirra sem mæta til leiks
er einn stórmeistari og einn alþjóða-
meistari. Það eru þeir Alexei Suetin og
Jón L. Árnason.
Lögð er áherzla á að allir geti
skemmt sér saman á Laugahátfð en
enginn mismunur gerður á aldri.
Enginn inngangseyrir er inn á sjálfa
skemmtunina en tjaldstæði verða seld á
50 krónur. Inn á dansleikina kostar 120
krónur en síðdegisskemmtunin er
ókeypis.
-ELA.
Húnaver:
V0NÁ
FJÖLDA
FÓLKS
— hljómsveitin Gautar
leikuráþremur
dansleikjum
Forráöamenn Húnavers hafa ákveðið
aö bjóða gestum sinum upp á sólskin
um helgina, hvort sem veðurguöunum
líkar betur eða verr. í Húnaveri verða
dansleikir föstudags, laugardags- og
sunnudagskvöld og það er hljómsveitin
Gautar frá Siglufiröi sem sér um fjörið.
Gautar er sú hljómsveit sem hvað
oftast hefur leikið i Húnaveri og svo oft
að Stefán Hafsteinsson, framkvæmda-
stjóri Húnavers, hefur ekki tölu á.
Húnaversgleði hefur verið um verzl-
unármannahelgina i fjöldamörg ár og
sagði Stefán að stemmningin væri af-
bragðs góð. Hann sagðist eiga von á
fjölda fólks. Tjaldstæði við Húnaver
eru ókeypis. Inn á dansleikina kostar
120 krónur hvert kvöld.
-ELA.
Hljómsveitin Start skemmtir gestum á Laugahátfð.
DB-mynd Sig. Þorri.
Gott fólk — Góð laun
Röskar og áreiðanlegar stúlkur, eldri en tvítugar,
óskast á skrifstofu og í verzlun.
Uppl.ísíma 91-81199.
LAUS STAÐA
Við Fjölbrautaskólann á Akranesi er laus til umsóknar staða kennara í
stærðfræði. Æskilegt er að umsækjandi geti kennt forritun og tölvufræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir
20. ágúst nk. — Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaróðuneytið,
23. júlí 1981.
RALA
. ;I
RITARI
íjh-.
'iiri' ?<■
t ó; v».i.|i„_J • ;'N|
Rannsóknastofnun landbúnaðarins óskar að
ráða ritara nú þegar. Góð kunnátta í vélritun og
ensku nauðsynleg. Kunnátta í einhverju Norður-
landamáli æskileg. Laun skv. launakerfi ríkisins.
Patreksfjörður:
STEFÁN P. MÆTIR
TIL LEIKS Á NÝ
— skemmtir ífélags-
heimilinu um helgina
Patreksfirðingar og þeir sem eru
gestkomandi þar þurfa ekki að kviða
aðgerðaleysinu um helgina. Hin
vinsæla hljómsveit Stefáns P. mætir til
leiks í félagsheimilinu, eins og undan-
farin ár og kætir skap Vestfirðinga.
Hljómsveitin hefur undanfarin
sumur skemmt landsmönnum við
góðar undirtektir og væntanlega verður
sama upp á teningnum nú. Hljómsveit-
in á sína aðdáendur á Vestfjörðum þar
sem hún hefur komið þar reglulega yfir
sumarmánuðina.
Dagskrá hljómsveitarinnar verður
gömul og ný hressileg lög og allt gert til
að hafa kvöldin sem fjörugust. Fyrri
dansleikurinn verður á föstudagskvöld
Upplyfting skemmtir
á Borgarf jarðargleði
—einnig verður keppt í hamborgaraáti
Það er hljómsveitin Upplyfting sem Við samkomuhúsið eru tjaldstæði fyrir
skemmtir þeim er ætla að lyfa sér upp á feröafólk.
Borgarfjarðargleðinni um helgina. Auk þess sem fólk skemmtir sér með
Hljómsveitin leikur föstudags-, laugar- Upplyftingu verður boðið upp á keppni
dags- og sunnudagskvöld i Logalandi. i hamborgaraáti.
og sá síðari á laugardagskvöid og er
aðgangseyrir 120 krónur.
-ELA
Stefán P. og hljómsveit hafa veríð fasta-
gestir á Patreksfirði um verzlunar-
mannahelgar.
Sumarpistill af Ströndum:
Akureyrarmjólkin
súmar hreint ekki
— byrjað að béra Ijá í gras um mánaðamótin
Sláttur byrjar almennt f Árneshreppi
um mánaðamótin júlí/ágúst. Einstaka
bændur eru þó búnir að slá lóöir
kringum hús sin. Talsvert kal er í
túnum. Nokkrir bændur hafa þegar
keypt hey.
Hér er sannkölluð forsetaveðrátta,
hiti hefur komist i 19 stig i blfðunni
undanfarna 8 daga.
Árneshreppsbúar þurfa ekki að
kvarta yfir súrri mjólk líkt og Reykvik-
ingar. Og þeir sem ekki eiga beljur fá
mjólkurvörur frá Akureyri. Akureyrar-
mjólkin reynist sérstaklega vel. Siðasti
sopinn úr 10 lítra mjólkurkassanum er
jafngóður og sá fyrsti. Það getum við
hjónin borið um. Við eigum ekki ísskáp
i sumarbústaðnum og eigum hvern
mjólkurkassa í 8—10 daga.
Ungmennafélagið, slysavarnafélagið
og kvenfélagið halda ætíð 3 böll á
hverju sumri hérna. Hið fyrsta var
haldið fyrir hálfum mánuði, hið næsta
er annað kvöld, föstudagskvöld. Þyrlar
frá Hólmavik sjá um fjörið. Að venju
verður fjölmennt á verzlunarmanna-
helgarballinu. Gamlir íbúar Árnes-
hrepps flykkjast á heimaslóðir akandi
eða fljúgandi. Þeir halda til i barna-
skólanum og geta eldað sér þar mat að
vild.
Fólkið er þegar byrjað að streyma á
Strandirnar. Og hér fara menn á böllin
til aö skemmta sér. -Regfna Gjögri