Dagblaðið - 30.07.1981, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981.
Ása Hauksdóttir lauk nýlega námi
ífatahönnun í Kaupmannahöfn:
Ein af vinnuteikningum Asu af leðurbuxum og hlússu.
Japaninn Takeo Yamashita setti
sér sérkennilegt takmark þegar hann
lauk námi 1 grafiklist. Hann ákvað að
ferðast um heiminn og mála fiska á
veggi. Fiska af ýmsum gerðum 1
öllum regnbogans litum.
„Ég er nú orðinn 28 ára gamall og
reikna með að eiga eftir að ferðast
um næstu tólf árin áður en ég lýk
ætlunarverki mínu,” sagði Yamas-
hita, er blaðamaður DB hitti hann að
máli. Þá hafði honum enn ekki tekizt
að finna vegg sem hann mátti mála á.
Helzt hafði hann 1 huga að fá að
skreyta fiskiðjuver eða einhverjar
aðrar byggingar tengdar fiskiðnaði.
En viti menn: skömmu slðar bauð
Emil Hjartarson 1 TM-húsgögnum
Japananum afnot af einum vegg á
annarri verzlun sinni í Sfðu-
múlanum. Emil tók einnig að sér að
útvega allt efni til verksins.
Takeo Yamashita kom hingað til
lands fráGrænlandi. Næsti áfanginn
á ferð hans um veröldina verður
Egyptaland. Dvöl hans hér verður
um tvær vikur. Hann sagði að þvi
miður væri það ómögulegt fyrir sig
að staldra við lengur vegna dýrtíðar-
innar á íslandi. Hann vonaðist þó til
þess að geta komizt út á land í eina
fjóra daga áður en hann leggur upp
til Egyptalands. En hann langar
meðal annars til að llta á íslenzku eld-
fjöllin.
Heimsfiskur Takeo Yamashita nær
frá Hawaii eyjum til vesturstrandar
Bandaríkja og Kanada — lengri
leiðina. Auga fisksins I Tokyo,
heimaborg hans. Reykjavík og
Narssarssúag á Grænlandi mynda
efsta hluta bakuggans. Meðal
annarra staða sem Yamashita hefur
komið við á eru Kaupmannahöfn,
bæir í Finnlandi, Las Palmas á
Kanaríeyjum, Aþena i Grikklandi og
fleiri.
-ÁT-
Sérhœföi
sig í hönnun
á leðurfatnaði
„Þessi skóli — Margrethe skole í
Kaupmannahöfn — er talinn einn
hinn bezti sinnar tegundar í
Skandinavíu og menntunin sem
nemendur sækja þangað er
alþjóðlega viðurkennd,” sagði Ása
Hauksdóttir sem lauk prófi í fata-
hönnun frá Margrethe skole í vor.
Hún stóð sig þar með ágætum og
varð þriðja hæst á lokaprófínu með
tíu í aðaleinkunn. Hæst er gefið 13.
Dúxinn náði ellefu í einkunn.
,,Ég held að hiklaust megi mæla
með þeim lærdómi og reynslu sem
maður fær þarna,” sagði Ása. Auk
hennar voru eintómir Danir í
skólanum. Reyndar byrjaði þar ein
brezk stúlka og önnur einhvers staðar
frá : Afríku en hvorug lauk námi. í
hittifyrra lauk þaðan prófi önnur
íslenzk stúlka, Ingunn Helgadóttir að
nafni.
„Margrethe skole hefur verið
starfræktur í 44 ára og margir góðir
fatahönnuðir hafa útskrifazt
þaðan,” sagði Ása. „Þekktastur
þeirra er þó án efa Margit Brandt.
Hún er komin á toppinn og rekur
eigin verzlanir víða um heim.
Ása kvaðst aðallega hafa sérhæft
sig í leðurfatnaði. Vinnumappa
hennar bar þess líka vitni. Þar
kenndi ýmissa grasa sem komu leik-
manni nýstárlega fyrir sjónir. — En
skyldi vera pláss fyrir menntaða fata-
hönnuði á vinnumarkaðinum hér á
landi. Ása Hauksdóttir var að lokum
spurð þeirrar spurningar.
„Já, alveg hiklaust,” svaraði hún.
„Menntun í fataliönnun býður upp á
ýmislegt hér á landi. Ýmist getur
maður starfað sjálfstætt eða leitað
eftir vinnu hjá einhverjum þeirra
fyrirtækja sem framleiða eigin
fatnað.
Ég ætla að nota það sem eftir er
ársins til að hugsa mig um hvað ég
ætla að taka mér fyrir hendur,”
sagði Ása. ,,Það er tvennt að brjótast
um I mér þessa stundina. Annað
hvort að opna eigin skóverzlun hér
meö eigin leðurfatnað sem aukagetu.
Nú, og svo væri einnig gaman að fara
til Parísar og mennta sig meira.”-ÁT-
IsSlIIUKSSil! ©e
MALAR FISKA A VEGGI
VÍÐA UM HEIMINN
— Sé dregin lína milli viðkomustaðanna mynda þeirrisafisk
Takeo Yamashita með
myndabók sina. Þar
má sjá ýmsar gerðir af
fiskum og sumar harla óvenjulegar.
Einnig eru þar rnyndir af listamann-
inum við verk sin viða um heim.
DB-mynd Sigurður Þorri.
Þarna sést glögglega hvernig viðkomustaðir Yamashita um viða veröld mynda
risafisk. Trjónan byrjar á Hawaii, augað er i Tokyo og sporðurinn vestast i
Ameriku. Kort: Björn Björnsson, Þjóðviljinn.
Ása Hauksdóttir klædd leðurkjól með belti. Hvort tveggja er gert samkvæmt
teikningum hennar. Eftirtektarvert er að á fötunum eru hvorki tölur né hnappar
hcldur töskulásar.
Japaninn Takeo
Yamashita fœst við
óvenjulegt
verkefni:
Flcira ,
FOLK
:x m v- « *■; m > ■ * c: u >■ v:» t:- tc v
, 8 g .t % s; * g A. félK * S
i ‘ *•- ' ? , SgS
f * a § Í>
73.321
... “r*
jr> 'f. *.5s \
». * S. x- yJ
lilil
lllp
í S-..S., ..T..
« Í5
l< £ & % %
mu
Sfilig
hm
Alitaf er landinn að baka útlending-
inn. Um daginn voru Japanir að fatta
að Islendingar verða nú allra þjóða
langlífastir, karlar 73,4 ára og konur
79,3 ára. Þetta þótti þeim súrt í broti
því í siðustu könnun voru Japanir
sjálfir efstir í báðum flokkum. En hér
að ofan stendur þetta sem sagt svart á
hvítu, að því er fréttaritari DB í Japan,
Baldur Hjaltason, segir okkur. Á eftir
íslendingum koma Japanir, Svíar og
Norðmenn í kariaflokki en í kvenna-
flokki fylgja í kjölfar okkar Japanir,
Norðmenn og Svíar. Þessar staðreyndir
og forsendur þeirra geta menn svo
kynnt sér í greininni.
Vegna
kvörtunar
Ef hringt er í Mjólkursamsöluna í
Reykjavík og beðið um einhvern af
yfirmönnunum eöa um samband við
mjólkurfræðinga, þá spyr stúlkan á
símanum: — Er það vegna kvörtunar.
Hvort henni er það fyrirlagt af yfir-
mönnum eða mjólkurfræðingum eða
hvort þetta eru eðlileg viðbrögð byggð
á reynslu undanfarinna daga er ekki
vitað.
Sanitasöl og
auglýsingar
Yfir tvennu hafa Vestmanneyingar
að klaga um framkvæmd íþróttafélags-
ins Týs á næstu Þjóðhátíð, sem hefst
nú á föstudaginn. Þar verður eingöngu
hægt að kaupa öl og gosdrykki frá
Sanitas og þykir það mörgum súrt í
broti. Sér í lagi þeim sem hafa vanizt á
að geta valið úr blandtegundum að
eigin vild. Hitt atriðið er að nú í fyrsta
skipti er farið að skreyta Herjólfsdal
með auglýsingu. Hún er staðsett á litla
danspaliinum og er frá ferðaskrifstof-
unni Útsýn.
fleira ,
FOLK