Dagblaðið - 30.07.1981, Side 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JÚLt 1981.
17
Allt tilbúið fyrir þjóðhátíð í Eyjum:
KOMINÚ ÞEIR
SEM KOMA VIUA
„Eyjamenn eru nú sem óðast að búa
sig á þjóðhátiðina. Til dæmis hamfletti
ég lundann 1 gær,” sagði Ragnar Sigur-
jónsson fréttaritari DB í Vestmanna-
eyjum er hann var inntur eftir þvi
hvernig undirbúningur stærstu úti-
hátíðar verzlunarmannahelgarinnar
gengi.
Ragnar sagði að þjóðhátíðarskap
Bálkðsturinn er kominn á sinn stað á Fjósakletti. Um miðnættíð á föstudag koma nokkrir filefldir Týrarar skeiðandi með
Sigga Reim i burðarstól. Siggi sér siðan um að leggja eM að kestínum. Sú athðbi fær sæluhrollinn til að hrislast um bakið á
öllum sðnnum Vestmannaeyingum. Þá er þjððhátíðin örugglega komin i fullan gang og verður ekki aftur snúið.
Enn voru perurnar ekki komnar i Ijósastæðin né sælgætið og blððrurnar i hlUurnar, er Ragnar Sigurjónsson brá sér f Herj-
ólfsdal um siðustu helgi. Verið var að leggja járn á þðk og ganga frá ýmsu ððru.
Skreytingar á mannvirkjum i Herjólfsdal voru að þessu sinni I hðndum Sigurfinns
Sigurfinnssonar og Magnúsar Magnússonar. Hér málar Sigurfinnur þekkta figúru á
aðalsviðið. DB-myndir Ragnar Sigurjónsson.
Eyjamanna væri óðum að magnast, —
það er að segja þeirra sem ekki eru í
slíku skapi allt árið um kring. Búið er
1 - TYR ' '
að gera klárt I Herjólfsdal í öllum
helztu atriðum. Veitingatjaldið var
drifið upp á mánudagskvöld og mann-
virki önnur komin á sinn stað.
Feykilegur fjöldi skemmtikrafta
kemur fram á þjóðhátíðinni að þessu
sinni. Þar verða stjörnur fyrri hátíða,
svo sem Brimkló, Guðmundur Guð-
jónsson og Sigfús Halldórsson, Ási í
Bæ og Erling Ágústsson að ógleymdum
kynninum og brekkusöngstjóranum
Árna Johnsen. Meðal atriða sem ekki
hafa verið áður má nefna hljómsveit-
irnar Grýlurnar og Aríu, Presley-eftir-
hermuna Jack Elton og fleiri.
Þjóðhátíð var fyrst haldin í Vest-
mannaeyjum dagana 5.—7. ágúst árið
1874. Þar eð Herjólfur var ekki farinn
að ganga um það leyti og slæmt í sjóinn
er Eyjamenn hugðust fara á þjóðhátíð
á Þingvölium og fagna nýfenginni
stjórnarskrá ákváðu þeir að halda sina
eigin hátfð. Og enn, 107 árum síðar, er
haldin þjóðhátíð í Herjólfsdal í Vest-
mannaeyjum. -At
Herjólfsdalur verður að vanda Ijósum prýddur þegar fer að skyggja á kvðldin. Hér er
einni seriunni komið fyrir. Stíginn er fornfálegur að sjá. Tyrkir hafa ef tíl vill skilið
hann eftir hér um árið.
Fyrir rumu ári völdum við úr 4 gerðum af gos-
drykkjavélum á evrópumarkaði. SODA-MAT
varð fyrir valinu. þvi hún reyndist auðveldust
I notkun. Ekkert mas með flöskur eða aðra
kostnaðarsama aukahluti. þvi okkar reynsla
sýndi. að gosið hélst ekki I slikum flöskum.
Þu framleiðir gosdrykkinn beint i glasið á
svipstundu. s~s,(
Mikið úrval af gosdrykkja-kjörnum T) >
Eins árs ábyrgó á tækjum.
Fyllum jafnóðum á kolsýruhylkin. w^)
JJSer soða-mat
Meira en 1 árs reynsla á Islandi