Dagblaðið - 30.07.1981, Page 28
Sameinast um
400 íbúðir
á Akureyri
um eitt
videokerfi?
Svo kann að fara að innan skamms
verði á milli 300 og 400 íbúðir í Lunda-
hverfi á Akureyri tengdar saman inn á
eitt videokerfi. Mál þetta er nú á
athugunarstigi en á þriðjudagskvöld
var haldinn fundur með íbúunum þar
sem hugmyndin var kynnt. Er búizt við
að innan þriggja til fjögurra vikna liggi
frammi kostnaðaráætlun fyrir verkið.
Að sögn Helga Guðmundssonar,
^ins forvlgismanns hugmyndarinnar,
eru það tlu blokkir I hverfinu sem til
greina kæmi að tengja inn á sameigin-
legt videokerfi. Helgi sagði að ákveðið
hefði verið að bjóða verkið út, en hann
kvað tvo möguleika vera á tengingu
milli blokkanna. Annars vegar loftllnu
og hins vegar að grafa kapalinn I jörð.
Loftlínan væri þó talinn vænlegri
kostur en eina hindrunin væri sú að
gata aðskilur fjórar blokkir frá hinum
sex. Kvaðst Helgi þó ætla að engin
hætta stafaði af loftlinunni þar eð
blokkirnar væru fjögurra hæða.
-SA
Matareitrunin
á Sauðárkróki:
Ekki vitað
hvaða mat-
væli oliu
eitruninni
Hverfandi líkur eru nú taldar á þvi
að eiturefnið, sem olli matareitruninni
á Sauðárkróki fyrr í sumar, finnist i
einhverjum af þeim sýnishornum sem
send voru til Bandarlkjanna til rann-
sóknar.
Arinbjörn Kolbeinsson, yfirmaður
sýklarannsóknadeildar Landspitalans,
sagði í samtali við DB að enn hefðu
lokaniðurstöður rannsóknarinnar ekki
borizt og benti það til þess að ekkert
hefði fundizt í þeim matarsýnishornum
sem send voru utan til rann-
sóknar.Arinbjörn tók það þó fram að
vel gæti verið að sumarfrí starfsmanna
rannsóknastöðvarinnar hefðu valdið
því að rannsókninni hefði seinkað en
þar sem eitrunartilfelli af þessu tagi
væru sjaldgæf þá ynnu að öllu jöfnu
ekki nema tveir til þrír menn að þessum
rannsóknum. -ESE
Reykjanes:
506 milljónir
í skatta
Álagning opinberra gjalda á einstakl-
inga í Reykjaneskjördæmi liggur nú
fyrir og er ljóst að meðaltalshækkunin
nemur 57,77% frá fyrra ári. Útsvör
hækka um 59,1%, tekjuskattur um
66,4%, eignaskattur um 80% og að-
stöðugjöld um 66% að meðaltali. Alls
greiða skattgreiðendur I Reykjanesum-
dæmi rúmar 506 milljónir i opinber
gjöld á þessu ári. - ESE
Ekkert Alþýðublað í dag, ekkert Alþýðublað í gær:
Skálduð „frétt”
um aðalfund VR
— meðal ef nis í tölublaði Alþýðublaðsins sem ákveðið var að „salta” gegn
vilja Vilmundar
Deila blaðstjórnar og ritstjórnar
Alþýðublaðsins er enn óleyst. Blaðið
kom þvl ekki út 1 morgun og það
kom heldur ekki út í gærmorgun
þrátt fyrir að leiðari þess væri lesinn
að venju í morgunútvarpi. í formála
útvarpsleiðarans var sagt að innan
Alþýðuflokksins færu fram , .flóknar
umræður um það hvort rétt sé að .
taka afstöðu með eða móti fátæka
fólkinu sem er i Verzlunarmanna-
félagi Reykjavíkur og öðrum ámóta
félögum.” Svo var leiðari Alþýðu-
blaðsins frá því á þriðjudag endur-
tekinnl
Deilt er um efni blaðsins sem átti
að koma út i gærmorgun. Það átti að
vera næstsiðasta blaðið undir stjórn
Vilmundar Gylfasonar sem ritstýrir í
sumarleyfí Jóns Baldvins Hannibals-
sonar. Allt blaðið var skrifað í anda
svonefnds Aðalblaðs í Helgarpóstin-
um: „fréttir” og „viðtöl” sem eru
ekki alveg sannleikanum samkvæm.
Hugsuð sem gamanskrif með gagn-
rýnisbroddi I.
Meðal annars átti að birta skálduð
viðtöl við ímyndaðan fulltrúa neyt-
enda og við Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóra. Þá var frétt, sömuleiðis
skáldskapur, um aðalfund Verzl-
unarmannafélags Reykjavikur. Á
fundinn áttu að hafa mætt 7 manns.
Og svo var útvarpsdagskrá birt sem
átti við vikuna þar á undan.
Prentun Alþýðublaðsins var langt
komin þegar Bjarni P. Magnússon,
fulltrúi I blaðstjórn, kom í prent-
smiðju. Hann tók ákvörðun, í sam-
ráði við aðra blaðstjórnarmenn
(Jóhannes Guðmundsson og Björn
Friðfinnsson) um að koma I veg fyrir
dreifingu þessa ákveðna tölublaðs.
Upplaginu var komið fyrir i húsi úti i
bæ.
Vilmundur ritstjóri mótmælti
harðlega og taldi blaðstjórn ekki geta
tekið fram fyrir hendur ritstjórnar.
Garðar Sverrisson blaðamaður og
Helgi Már Arthursson ritstjórnarfull-
trúi styðja sjónarmið Vilmundar.
Ýmsir forystumenn Alþýðuflokks-
ins, þar á meðal Kjartan Jóhannsson
formaður, hafa haft bein eða óbein
afskipti af deilunni. Svo virðist sem
ritstjórnin standi fast á þeirri skoðun
að skáld-blaðið skuU útgefið. Blað-
stjóm er jafnhörð á að gefa það ekki
út.
- ARH
Harður árekstur varð á Kleppsvegi f gærdag er kókbifreið ók aftan á strætisvagn. Skemmdist kókbifreiðin mikið en engan
sakaði f bilnum. Strætisvagninn lét ekki eins mikið á sjá, plata á afturhluta hans gekk inn en aðrar skemmdir urðu óveru-
legar. Fjöldinn allur af kókkössum hentist af kókbilnum við áreksturinn og var gatan þakin glerbrotum en vaskir lögreglu-
menn tóku sér kústa i hönd og hreinsuðu burt öll vegsummerki eftir slysið. Árekstrar voru margir f umferðinni f Reykjavfk,
eða alls 20, en um slys á fólki var ekki vitað. - SA / DB-mynd Einar Ólason.
r
Urslit skoðanakönnunar á Akureyri:
Konur myndu ná meiri-
hluta í bæ jarstjórn kosið nú
„Þetta er ekki nein merkisskoð-
anakönnun, heldur var hún aðeins
gerð til gamans,” sagði Guöbrandur
Magnússon, ritstjóri Akureyrar-
blaðsins, er DB hafði samband við
hann vegna úrslita skoðanakönnunar
sem birtist í blaðinu á mánudag.
Samkvæmt henni myndu konur ná
meirihluta I bæjarstjórn Akureyrar ef
kosið væri I dag en konur ákváðu
sem kunnugt er fyrir stuttu að bjóða
fram sérstakan lista fyrir næstu kosn-
ingar.
Hringt var I 50 Akureyringa, eða
0,66% af þeim sem eru á kjörskrá, og
þeir spurðir hvaða lista þeir kysu ef
kosið yröi til bæjarstjórnar nú.
Rúmlega helmingur, eða 26, tóku af-
stöðu og skiptist fylgi milli flokkanna
þannig að Alþýðuflokkur fékk 4%
og fengi engan fulltrúa kjörinn,
Framsóknarflokkur fékk 15% og
fengi einn, Sjálfstæðisflokkur fékk
23% og fengi þrjá, Alþýðubanda-
lagið fékk 11,5% og fengi einn og
kvennaframboðið fékk 46% og fengi
sex fulltrúa kjörna. Það hálfa pró-
sent sem upp á vantar færi likiega til
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna.
Þeir 24, sem ekki svöruðu, skiptust
þannig að 15 voru óákveðnir, sex
neituðu að svara og þrir sögðust ekki
myndu kjósa.
Að sögn Guðbrands munar ekki
miklu að Framsóknarflokkurinn
fengi tvo fulltrúa i bæjarstjórn, sam-
kvæmt skoðanakönnuninni, og
myndi þá Sjálfstæðisflokkurinn eða
konurnar missa þann fulltrúa. -SA
frjálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 30. JÚLl 1981.
Staða f ræðslust jóra
á Norðurlandi eystra:
Ingólfur með
pálmann
íhöndunum
— eftir atkvæða-
greiðslu
ífræðsluráði
Ingólfur Ármannsson, yfírkennari
Gagnfræðaskólans á Akureyri, virðist
næsta öruggur með að fá stöðu
fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis
eystra. Á fundi fræðsluráðs hlaut hann
4 atkvæði, en Kristinn G. Jóhannsson,
ritstjóri íslendings, hlaut 2 atkvæði.
Ingvar Gislason menntamálaráð-
herra veitir stöðuna og er eindregið
búizt við að Ingólfur þurfi ekki að
kviöa ákvörðun hans. Sturla Kristjáns-
son, fráfarandi fræðslustjóri, tekur við
stjórn Þelamerkurskóla í Hörgárdal I
haust.
Sjö manns áttu að sitja fræðsluráðs-
fundinn. Hvorki aðal- né varafuiltrúi
frá Húsavík komust til hans. Varafull-
trúinn sendi skriflegt umboð sitt vegna
atkvæðagreiðslunnar. Það mun ekki
hafa verið tekið gilt þar sem umboðið
þurfti að berast frá aðalfulltrúanum.
- ARH
ÍDAG
ER SPURNINGIN:
t hvaða dáiki, á hvaða blaösíðu er
þessi smáauglýsing i blaðinu i dag?
Ódýrir laxa- og silungsmaðkar til
sölu. Uppl. f sima 36279.
Hver er auglýsingasfmi Dag-
blaðsins?
SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU
BLAÐSINS Á FÖSTUDAG
Vinningur vikunnar:
Myndsegul-
band
f rá Radfó-
búðinni
Vinningur i þessari viku er
myndsegulband jrá Radióbúðinni,
Skipholti 19 Reykjayík.
1 dag er birt á' þessum stað I
blaðinu spuming, tengd smáaug-
lýsingum blaðsins, og nafh hepp-
ins áskrifanda dregið út og birt i
smáauglýsingadálkum á morgun.
Fylgizt vel með, áskrifendur, fyrir
nœstu helgi verður einn ykkar
glœsilegu myndsegulbandi ríkari.
c ískalt
Seven up.
hressir betur.