Dagblaðið - 06.08.1981, Page 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
Höfum við enga tilfinningu fyrír
verðmætum náttúru landsins?
safna útlendingar hvers kyns sérkennilegum náttúrufyrirbrigðum svo til óátalið?
Náttúruunnandi skrifar:
Hafa íslendingar enga tilfinningu
fyrir verðmætum náttúru landsins?
Þessi fyrirspurn kemur fram af
þvi, að sffellt berast milli manna
fregnir af útlendingum, sem ferðast
um háiendi og fjöll á íslandi og
safna, óátalið, að því bezt verður séð,
hvers kyns sérkennilegum náttúru-
fyrirbrigðum. Ekki sízt dýrmætum
steinum, sem náttúran hefur verið að
skapa í nokkrar milljónir ára.
Þessi verðmæti hafa tvöfalt gildi
fyrir fslendinga í nútið og framtfð;
fegurðar- og notagiidi. Tækniþróun
hefur gert kleift að smiða alls kyns
dýrmæta listmuni, úr steinum eins og
bergkrystal, zeolítum, jaspisum og
mörgum fleiri. Þegar að þvi kemur
að islenzkir skartgripasmiðir og lista-
menn verða þess umkomnir að nota
þessi verðmæti verða kannski túristar
farnir með slík , .hráefni” úr landi.
Erlendir ferðamenn fá ekki að
gramsa 1 gimsteinanámum Afriku og
Indiands, er það? í hinum frægu
Cheddar-hellum í Wales þar sem
dropasteinsmyndanir hafa skapað
álfahallir, öllum ævintýralýsingum
furðulegri, fá ferðamenn að visu að
skoða allt af hjartans lyst — en hafa
ekki einu sinni leyfi til að taka ljós-
myndir, hvað þá að brjóta,sér mola
til minja.
ÞAÐ ER OKKAR AÐ GÆTA
LANDSINS OG VERÐMÆTA
ÞESS — þarf að herða eftirlit með útlendingum?
Vegna bréfs um að útlendingar
safni hér steinum og öðrum náttúru-
gripum, svo til eftirlitslaust, leitaði
DB álits Sigurðar Þórarinssonar jarð-
fræðings.
u
Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur
telur hvers kyns brottnám náttúru-
gripa hafa ágerzt mjög eftir að
Smyrili kom til sögunnar.
DB-mynd H.V.
„Sérstaklega tel ég lítinn vafa á að
þetta hafi ágerzt mjög eftir að
Smyrill kom til sögunnar,” sagði
Sigurður, , ,og þvi er nauðsynlegt að
hafðar séu um borð í því skipi til-
kynningar um að samkvæmt
íslenzkum lögum sé bannað að taka
t.d. steina úr landareignum, nema
með skriflegu leyfi eigenda.”
Teigarhorn við Berufjörð og
Helgustaðanáma utan við Eskifjörð
eru t.d. verndaðir staðir samkvæmt
náttúruverndarlögum og þaðan má
því ekkert taka af sliku. Áð Teigar-
horni eru ábúendur en því er ekki að
fagna hvað nánasta nágrenni Helgu-
staðanámu varðar og minnti
Sigurður á að það er okkar íslend-
inga að gæta landsins og verðmæta
þess.
-FG
í öðrum löndum fá ferðamenn að skoða allt af hjartans lyst en ekki að taka með
sér hvað sem þeim þóknast. DB-mynd: Ragnar Th.
Hvar eru hinir þjóðlegu, fræðandi þættir? ~s£fiug
Siggi flug, 7877-8083, skrifar:
Ég hlustaði á drepleiðinlegan þátt
Ó.R. sem hét eitthvað á þessa leið:
„Hljómlist með ívafi”.
Mér fannst þátturinn ganga fyrst
og fremst út á það að spyrja fólk (af
öllumaldri og kynjum) að því hvort
það saknaði þessa (rúmlega) sjón-
varpslausa júlímánaðar. Mér fannst
þátturinn vera gerður til þess að sýna
að það gerði svo sem ekkert til hvort
sjónvarpið væri opið í júlímánuði
eða ekki og voru ýmsir heiðursmenn
látnir segja álit sitt á því. Þar á meðal
ein rúmlega eitt hundrað ára heiðurs-
kona.
Videobandið kom lika við sögu því
þeir sem vildu horfa á sjónvarp í júlí
keyptu sér bara tæki, videotæki, fyrir
einar litlar 19 þúsund nýkr. og þar
með var sá vandi leystur.
Rikisútvarpið er nú rúmlega 50
ára og flest af þvf, sem það lofaði í
upphafi. hefur það svikið. Útvarpið
átti að vera til mikils menningarauka
fyrir þjóðina, þar átti að kenna
erlend tungumál o.s.frv. íslenzkan
átti auðvitað að sitja i fyrirrúmi til
þess að hin íslenzka menning hyrfi nú
ekki i bannsettan Kanann (síðar
meir) og að enskan yrði ekki
þjóðmál okkar er fram liðu stundir.
íslenzkan okkar fær nú algeran
lágmarkstima í útvarpinu; það geta
allir séð og heyrt sem á útvarpið
hlusta.
Nú eins og stendur eru engin erlend
tungumál kennd í Rfkisútvarpinu.
Hvar eru hinir þjóðlegu fræðandi
þættir sem útvarpa átti, þjóðlegar
söguro.þ.h.?
Ég skal segja ykkur hvað við erum
að borga fyrir, það eru auglýsingar,
því útvarpið er löngu orðin peninga-
stofnun (á hausnum). en sem i æ
ríkara mæli fyllir dagskrána af aug-
lýsingum. Takið t.d. hádegisút-
varpið, eitt lag fyrir fréttir er bezt
lætur.
En það var þetta með videotækin
gamla fólksins og þess fólks sem
bundið er við innisetur allan guðs-
langan daginn. Það hefur áreiðanlega
ekki ráð á að fá sér videotæki. Því
finnst kannski dagurinn lengi að líða,
og svo kvöldið. Er verið að hugsa um
það? Nei.
Sjónvarpið lofaði líka ýmsu, svo
sem kennslu i t.d. landafræði og ótal-
mörgu, tungumálum o.s.frv. Allt
þetta hefur verið svikið. Sjónvarpið
var sett á stofn af tómum rembingi og
er að berjast af eintómum rembingi
við þetta litla sem það útvarpar.
Útvarp og sjónvarp eru nú aðeins
fyrir starfsfólkið sjálft. Það þarf að
fá orlof í júli, allir i einu (sjónvarp).
En það er fólk sem er búið að slfta sér
út fyrir þessa sjónvarpsmenn og
leggja af mörkum ekki svo lítinn auð
í rikisbúið, þessu fólki er gleymt.
Fyrir það er hver dagur öðrum lengri
og stundum þreytandi. Sjónvarp gæti
létt þessu gamla og lasburða fólki
stundirnar, það vita þeir sem reynt
hafa.
Gamla fólkið er lfka Islendingar,
og sumir þeir beztu.
Mér datt þetta (svona) í hug.