Dagblaðið - 06.08.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
Raddir
lesenda
„ÆTTU NÚ BRETAR
AÐ VITA MUNINN Á
PÖNKIOG ROKKr
Happdrætti ættu
að birta vinninga-
skrársínareinum
þrisvar, f jórum
sinnum
— það erdýrtað
hringja utan af landi
4286-3599 skrifar:
Ég er hér með happdrættismiða frá
Geðverndarfélagi íslands en þar átti
að draga 5. júní. Jafnframt er ég með
happdrættismiða frá Félagi heyrnar-
lausra. Hjá þeim var dregið 1. júlí.
Nú höfum við ekki séð neina vinn-
ingaskrá frá þessum happdrættum.
Okkur finnst að aðilar sem standa
að happdrættum yfirleitt ættu að
birta vinningaskrár sfnar í dag-
blöðum landsins einum 3—4 sinnum
svo ekki þurfi að kosta heilmikla
fyrirhöfn að afla sér slíkra upplýs-
inga.
Flest þessara happdrætta birta
símanúmer sem hægt er að hringja í
en það er ekki kostnaðarlaust fyrir
fólk úti á landi því flest happdrættin
eru í Reykjavík.
Maður kaupir þessa miða af börn-
um sem eru að selja þá en sér sjaldan
vinningaskrárnar, því miður.
Fram-
kvæmdastjóri
Samtaka
grásleppu-
hrognafram-
leiðenda
kannar sölu-
möguleika
hrogna
umþessar
mundir
— erstaddurí
Bandaríkjunum
vegna þess
Nói Jónsson skrifar frá Grundar-
firði:
Vegna lesendabréfs, er nýlega birt-
ist í Dagblaðinu um hugsanlega sölu
á grásleppuhrognum til Japan, óska
ég eftir nánari upplýsingum um það
mál.
Ég er ekki einn um þetta. Við erum
margir hér á Snæfellsnesinu sem
eigum hagsmuna að gæta í þessu
efni og mig grunar að það sama eigi
við grásleppumenn vfða um land.
Svar:
DB leitaði til Samtaka grásleppu-
hrognaframleiðenda og spurði frétta
af sölu grásleppuhrogna. Þar varð
fyrir svörum Björn Guðjónsson,
stjórnarformaður samtakanna.
Björn sagði að Guðmundur Lýðs-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
grásleppuframleiðenda, væri staddur
i Chicago i Bandarikjunum um þess-
ar mundir til þess að kanna mark-
aðsmöguleika. Þar stæði nú yfir stór
matvælavörusýning.
Guðmundur mun koma heim um
miðjan þennan mánuð svo nánari
fregnir af samningaathugunum þess-
um verða ekki væntanlegar fyrr en
upp úr því.
-FG
Komiö og / / , /)
leitið nánarí J/ • lin m AAntn L P ingölfsstræti 12
upplýsinga wiolilvvljjuvl vu.j'. símar 12800 -14878
„Ætli þaö sé ekki bezt að skilgreina tóniist þeirra svona: Rokktónlist med pönk-
legu ivafi” skrifar Garri um Fræbbblanna. DB-mynd: Atli Rúnar.
—brezkapopp-
blaðið ZigSag
kallar
Fræbbblana
pönkara
Garri skrifar frá Noregi:
Fyrir stuttu birtist smáviðtal við
Valgarð Guðjónsson, söngvara
Fræbbblanna, þar sem hann mótmælti
harðlega að hljómsveitin væri ný-
bylgjuband. Hann sagði að þeir væru
rokkband og spiluðu eingöngu rokk.
Þar finnst mér Valgarður tala þvert
ofan í það sem hann hefur áður sagt.
Hann og félagar hans hafa margsagt
að þeir séu pönkarar og spili pönk-
tónlist. Og þegar plata þeirra, „Viltu
nammi, væna?”, var tekin til um-
fjöllunar I hinu virta poppblaði
Breta, Zig Zag, þá vildu Bretar kalla
tónlist Fræbbblanna Islenzkt pönk.
Ættu nú Bretar að vita muninn á
pönki og rokki. sfðan hef ég alltaf
haldið upp á Fræbbblana, því að mér
hefur fundizt þeir vera einu pönkar-
arnir sem við eigum I þessum bransa.
Ef þeir endilega vilja kalla sig rokk-
band þá er það auðvitað þeirra mál
en ég og áreiðanlega margir aðrir
lítum áfram á þá sem pönkara.
Ætli það sé þá ekki bezt að skil-
greina tónlist þeirra svona: Rokktón-
list með pönklegu fvafi.
A tíantic- vatnabátar
SÉRSTAKLEGA HAGSTÆTT VERÐ
Atlantic-vatnabðtarnir eru framleiddir samkvæmt þýzkum öryggisstaðli,
„sicherheitsnorm DIN 7871". Bátarnir eru allir með 4 lofthólfum og
öryggisventlum. Snúra er þrædd umhverfis bátana.
Atiantic bátarnir eru tilí ýmsum stærðum
verð 880 Amasonas
verö 1293 Kajak 320 cm, verð 1345
Loftdæla verð 153
Atlantic 30
Atlantic 40
Atlantíc 50
Atlantic 60
240x140 cm,
280x150cm,
310x165 cm,
340x165 cm,
verð 1550
verð 1775
Arar
veiö 215
Spurning
dagsins
Á að rífa gömlu
húsin f Aðalstræti?
■
Sigurður Svelnbjamarson, sjómaöur:
Já, ég held að þau megi ðll fara. Þetta
eru bölvaðir hjallar.
Ragnar Krfstjánsson, kennari: Þau
hús sem hafa sögulegt gildi cr rétt að
varðveita.
Sigríður Nieben, skrífstofumaður:
Mér er alveg nák væmlega sama.
Halldór J. Jónsson, safnvörður i
Þjóðminjasafni íslands: Nei, ég er á
móti þvl að rifa gömlu húsin i bænum.
Pálina Jónsdóttir, kennari: Nei, alla
vega ekki hús Skúla Magnússonar.
Rannveig Löve, kennari: Tilfinninga-
lega viðhorfið segjr mér að halda f þaö
gamla; hið vitsmunalega segir að það
geti orðið dýrt spaug.