Dagblaðið - 06.08.1981, Side 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981
DB á ne vtendamarkaði
Dóra
Stefánsdóttir
meira birtar til gamans en til þess að
finna út raunverulega eyðslu á
hverjum stað.
Frá þeim stöðum sem merktir eru
með x-i kom aðeins einn seðill.
Athygli vekur að Kópavogur er í
þeirra hópi. öðru visi mér áður brá
því þaðan er vanur að koma mikill
fjöldi seðla. En svona lítur dæmið
út:
Lægsta meðaltalið var I þetta sinn fr;> Egilsstöðum.
Mosfellssveitin
hæst
Talan frá Mosfellssveit er í þetta
sinn hæst. 1296 krónur á mann í mat
og hreinlætisvörur. En úr Mosfells-
sveitinni barst bara einn seðill þannig
að þessi tala er kannski ekki mark-
tæk. Hæsta talan frá stað sem sendi
fleiri en einn seðil er frá Blönduósi,
877 krónur á mann.
Lægsta talan er frá Egilstöðum 410
Egilsstaðir lægstir
krónur á mann í mat og hreinlætis- hæðina af þeim stöðum sem sendu Munurinn er eins og sjá má af,
vörur. Þaðan kom einnig aöeins einn fleiri en einn seðil, 537 krónur á þessu töluverður. En eins og við
seðill. Hveragerði er með lægstu upp- mann í mat og hreinlætisvörur. höfum oft sagt frá eru þessar tölur
Akranes 730
Akureyri 615
Blönduós 877
Bolungarvík 864
Borgarnes 581
Egilsstaðir 410 x
Eskifjörður 688
Garðabær 706 x
Hafnarfjörður 741
Hella 861
Hellissandur 1005 x
Hnífsdalur 465 x
Húsavík 737
Hveragerði 537
Höfn 554
Keflavík 639
Kópavogur 574,
Mosfellssveit 1296x
Njarðvík 423 x
Ólafsvik 831 x
Patreksfjörður 654
Raufarhöfn 557
Reykjavík 725
Sandgerði 442 x
Selfoss 689
Seltjarnarnes 618 x
Tálknafjörður 793 x
Vestmannaeyjar 686
Vogar 607 x
Vopnafjörður 763 x
Þorlákshöfn 787 x
SÁRALÍTILL MUNUR
S7ingurin" MILLIFJ0LSKYLDNA
Kópavoginn
Þó aðeins einn seðill kæmi úr Kópa-
vogi var-það nægilegt til að tryggja að
vinningur júni-mánaðar fer i Kópa-
voginn. Vinningshafinn er Halla
Guðmundsdóttir, Melaheiöi 1. Hún
fær að velja sér vörur í verzlun
Gunnars Ásgeirssonar að upphæð 1700
krónur. Gunnar Ásgeirsson selur mikið
af búsáhöldum og treystum við okkur
ekki til aö velja eitt fram yfir annað
handa vinningshafanum. Þvi fær hún
að velja sér hlutinn sjálf. Hún má
einnig ef hún kýs heldur nota hann
upp í dýrari hlut úr sömu verzlun, t.d.
Volvo-bíl. -DS.
Talsvert hefurmeðaltaiið i eyðslu
lesenda Dagblaösins i mat og
hreinlætisvörur hækkað frá þvi í
maí. Júnítölurnar bera með sér að
mest virðast matarreikningarnir hafa
hækkað hjá stærstu fjölskyldunum.
Því er munurinn á milli stórra
fjölskyldna og lítilla alveg óvenju
litill.
Eins og fyrr eru það þó stóru
fjölskyldurnar sem hagstæðast koma
út. Má segja að talan lækki eftir því
sem fjölskyldan stækkar. Eina und-
antekningin frá þessu er að fjögurra
manna fjölskylda er með óhag-
stæðari tölu en tveggja manna.
Fjöldi seðla sem barst inn í
þessum mánuði var óvenju lítill. Við
höfum fengið bréf frá nokkrum
sem segja að sumarleyfi hafi
farið með allt bókhald úr skorðum. t
Virðist það alveg hafa farið með
bókhald nokkurra fastra
„viðskiptavina” sem við höfum
ekkert heyrt frá I þetta sinn. Þetta er
reyndar vaninn á hverju sumri að
fjðldinn dettur verulega niður en
síðar þegar sumarleyfum lýkur og ró
kemst á fólk fjölgar seðlunum aftur.
í heild lltur fjölskyldudæmið
svona út f þetta sinn. Aöeins einn
seðill barst frá einstaklingi.
1 manns 772
2manna 706
3 manna 694
4manna 740
5 manna 719
6 manna 658
7 manna 636
-DS.
FJögurra manna fjölskyldan sker slg
að þessu slnni úr og er næsthæst.
Aðeins elnstaklingurinn kemst upp
fyrirhana.
Hitaveitan ergóð
en kísill sezt í vask
UpplýsingaseöiUi og baðker
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendió okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |
andi i upplýsingamiðlun mcðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar |
fjölskvldu af sömu stærð og vðar. Þár að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis-
tæki. 1
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks.
Kostnaður í júlímánuði 1981
Matur og hreinlætisvörur kr.
G.A. skrifar:
Hérna fáið þið seðilinn minn fyrir
júní. Fjöldi heimilisfólks er svolítið á
reiki hjá mér. Við erum 5 manna fjöl-
skylda en í sumar er ég með mann-
eskju í hálfu fæði. Reyndar eru
börnin aðeins á aldrinum 4 mánaða
til 3 ára en þau þurfa sitt og ekkiei nú
ungbarnafæðið ódýrt eins og oft-
sinnis hefur komið fram hjá ykkur.
Já, dýrtíðin er ofboðsleg og eins gott
að vita í hvað peningarnir fara og
halda vel á spöðunum.
Ég er mjög ánægð með síðuna
ykkar og hve víða þið komið við. Þið
megið gjarnan halda áfram að birta
uppskriftir að ódýrum og góðum
hversdagsmat tii að auka á fjöl-
breytnina í matseldinni. Annars er
það svo með mitt heimafólk að það
er anzi fastheldið á gamlar venjur í
mataræði og tekur hverjum nýjum
rétti með mikilli tortryggni.
En af því að þið vitið nú bókstaf-
lega allt sem viðvíkur heimilishaldi þá
langar mig að fá góð ráð við einu.
Hérna er nýkomin hitaveita sem er
ótrúlegur munur frá því að vera með
olíukyndingu, bæði í kostnaði og því
að hafa alltaf nóg heitt vatn með
góðum krafti. En mér finnst setjast
húð innan á vaska og baðker og
gengur mér erfiðlega að ná henni af
með venjulegum hætti. Baðvaskur-
inn er til dæmis alveg orðinn mattur.
Svar:
Við þökkum góð orð í okkar garð.
Þvi miður er það svo að við vitum
ekki allt um heimilishald. Til dæmis
þetta með kísilinn sem við hérna á
gamalgrónu hitaveitusvæði könn-
umst við. Hvers kyns ræstiefni fást
reyndar í búðum sem draga verulega
úr þessum leiðinlegu áhrifum. Bezt er
að nota aðeins mjög fín efni þvi gróf
Raddir
neytenda
efni rífa upp húðina á postulíninu og
þá sezt enn meiri kísill í hana. í fljótu
bragði dettur mér í hug efnið Bath
Cleanser frá Izal. Það er f túbu og
grænt á lit. En vitaskuld eru til mörg
fleiri. Bezt er að þvo böð og vaska
reglulega upp úr svona efni og þá nær
húðin varla að festast að gagni.
Leiðbeiningastöð húsmæðra benti
okkur auk þess á að nota má klór-
blöndu ef þetta dugar ekki og ef bað-
kerið er hvítt. Þá er vatn og klór
blandað til helminga og klútur vættur
• í blöndunni og ráðizt á kísilinn með
honum.
Ef ekkert af þessu dugar eru síðan
menn sem hafa atvinnu af að hreinsa
svona lagað. - DS
/mnaö
kr.
Alls kr.
MKW
! Þrátt fyrir góðan ásetning fór allt í heimilishaldið
| Á.S. skrifa:
Þetta er i fyrsta sinn sem ég sendi
inn seðil. Ég er kannski ekki alveg _
É marktæk í þessu því þetta er aðeins
U. eyðsla mín. Ég bý með vinkonu
JT minni og skiptast innkaupin á ýmsa
vegu. öll útborguð laun mín i júní
fóru i heimilið, þó ég sé að reyna að
leggja fyrir til vetrarins. Þá fer ég í
skóla en vinn hálfa vinnu með
honum.
Stærstu liðirnir f „annað” eru
húsaleiga, bensin og ein vodkaflaska.
Svo vona ég að ég nenni að halda
þessu áfram og samvinnan verði góð
SVAR: Við bjóðum Á.S. velkomna í
hópinn og vonum að hún verði með
okkur sem lengst.