Dagblaðið - 06.08.1981, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
[[ Erlent Erlent Erfent Erlent
International Herald Tribune fjallar um mál Kortsnojs gegn „Gúlaginu”:
Ákvöröun Friðríks Ólafssonar
kann aö valda straumhvörfum
um afstöðuVesturlanda til mannréttindabrota f Sovétríkjunum — í fyrsta sinn sem alþjóðleg
íþróttasamtök dirfast að bjóða trúarsetningu Kremlyerja byrginn
Viktor Kortsnoj og Friðrik Ólafsson. FIDE hagnýtir sér nú einkunnarorð sin i
fyrsta sinn í 57 ár.
„Þetta er 1 fyrsta sinn sem alþjóð-
leg íþróttasamtðk dirfast að bjóða
byrginn þeirri trúarsetningu Kreml-
verja að sérhvert vandamál varðandi
mannréttindi í Sovétrfkjunum sé al-
gjört innanríkismál og afskipti utan-
aðkomandi aðila jafngildi óþolandi
íhlutun í innanrikismál Sovétríkj-
anna.” Þannig segir meðal annars í
grein sem birtist í dagblaðinu Inter-
national Herald Tribune fyrir
Anatólf Karpov heimsmeistari: „Það
er andstætt reglunum að taka upp
leiki.”
skömmu. Greinin er rituð í tilefni af
FIDE-þinginu i Atlanta á dögunum
og þeirri umfjöllun sem þar átti sér
stað varðandi fjölskyldumál Viktors
Kortsnoj og einvígi hans við heims-
meistarann í skák, Anatólí Karpov. í
greininni er farið lofsamlegum orð-
um um þá ákvörðun Friðriks Ólafs-
sonar forseta FIDE að fresta ein-
víginu um einn mánuð í þeim tilgangi
að knýja Sovétmenn til að leyfa fjöl-
skyldu Kortsnojs að fara úr landi
þannig að aðstaða keppenda geti
talizt jöfn er þeir setjast að tafl-
borðinu.
í greininni segir að ákvörðun Frið-
riks Ólafssonar beri hugrekki vitni og
kunni að verða til eftirbreytni og
valda straumhvörfum varðandi af-
stöðu manna á Vesturlöndum til
mannréttindabrota í Sovétríkjunum.
í greininni er saga Kortsnoj-
málsins rakin nokkuð og Friðrik
Ólafsson er þar kallaður aðalverjand-
inn í máli „Gúlagsins” gegn Viktor
Kortsnoj.
„Frá upphafi hafa einkunnarorð
sambandsins (FIDE) verið „gens una
sumus” sem merkir „við erum öll
sömu ættar”. Einkunnarorðin lögðu
til tveir framúrskarandi skákmenn
árið 1924 en þeir voru báðir brott-
fluttir frá Rússlandi. En það hefur
tekið FIDE 57 ár að hafa praktisk not
af þessum einkunnarorðum. Það var
gert í þágu annars rússnesks flótta-
manns, stórmeistara sem hefur ærna
ástæðu til að taka einkunnarorðin til
sin,” segirfgreininni.
Síðar segir greinarhöfundurinn,
Leopold Unger: „Kortsnoj mætir nú
heimsmeistaranum Anatólí Karpov
öðru sinni þegar heimsmeistaratitill-
inn er f húfi. En aftur kann áskorand-
inn að hafa sálfræðilega lakari að-
stöðu, alveg eins og í Baguio á Fil-
ippseyjum árið 1978. Kortsnoj kann
að neyðast til að halda til Meranó á
ítalfu (þar sem einvígið á að fara
fram) án „kóngsins og drottningar-
innar” eins og hann hefur sjálfur
orðað það, þ.e. hann getur þurft að
mæta Sovétmeistaranum í keppni um
heimsmeistaratitilinn á sama tíma og
konu hans og syni er haldið f gíslingu.
Þau hafa ekki fengið að fara úr landi
frá því hann flúði landið árið 1975.
Nú hafa Sovétríkin þó gefið til kynna
að Kortsnoj-fjölskyldan fái að fara.
Ólafsson, hinn fsienzki forseti
skáksambandsins, ætlar sér að sjá til
þess að keppnin fari heiðarlega fram.
Hafandi í huga að einkunnarorð
sambands hans eru ekki aðeins
nokkur orð úr útdauðu tungumáli,
þá ákvað hann að fresta upphafi ein-
vígis þeirra Kortsnojs og Karpov um
einn mánúð, frá 19. september til 19.
október.
Frestunin átti að veita Moskvu
aukamánuð til að finna leið til að láta
fjölskyldu Kortsnoj lausa án þess að
bíða álitshnekki.”
Um þessa ákvörðun Friðriks segir i
greininni að hún hafi verið
„mannúðleg”. Sfðan segir: „Moskva
tók ákvörðuninni mjög illa. í stað
þess að taka mannúðlega á Kortsnoj-
málinu og af yfirvegun lýsti hún yfir
heilögu stríði gegn FIDE. Sovézka
skáksambandið hefur sakað herra
Ólafsson um að brjóta gróflega
reglur FIDE.
Karpov, sem venjulega heldur sig
utan við slfka hluti, ákvað nú að
leggja orð f belg. Hann sakaði Korts-
noj um að hafa „hafnað fjölskyldu
sinni í Sovétríkjunum” og Ölafsson,
sem einnig er stórmeistari, sakaði
hann um að hafa gleymt þvf að það er
andstætt reglunum „að taka upp
leiki” . . . Hin fruntalegu viðbrögð
Sovétmanna koma ekki á óvart. Þau
eru pólitfsk.”
Mótmælaaðgerðir verkamanna i Varsjá i gær voru hinar umfangsmestu i Póllandi i fjóra mánuði.
ÞÝÐINGARMIKLAR VIÐRÆÐ-
UR HJÁ PÓLVERJUM íDAG
— Meira en hálf milljón verkamanna í Varsjá fóru í tveggja
klukkustunda verkfall í gær
Pólsk stjórnvöld og Eining, samband
hinna óháðu verkalýðsfélaga í landinu,
munu hefja viðræður f Varsjá í dag um
margvfsleg ágreiningsefni. Fundurinn
kemur f kjölfar verkfalls verkamanna í
Varsjá og nágrenni í gær. Þá er talið að
meira en hálf milljón verkamanna hafi
lagt niður vinnu f tvær klukkustundir.
Verkfallið í gær var hið umfangs-
mesta 1 Póllandi f meira en fjóra
mánuði. Því lauk á sama tfma og bif-
reiðastjórar afléttu mótmælaaðgerðum
sfnum 1 miðborg Varsjár. Um 200 öku-
tæki höfðu stöðvað alla umferð um
tvær aðalgötur miðborgarinnar f 50
klukkustundir vegna þess að lögreglan
stöðvaði mótmælaför þeirra í átt til
höfuðstöðva Kommúnistaflokksins.
Eining taldi sig hafa unnið mikinn
áróðurssigur með þessum aðgerðum þó
um síðir væri látið undan lögreglunni.
Talsmenn Einingar sögðu að það væri
ekki þess virði að efna til átaka vegna
kröfunnar um að fá að mótmæla fyrir
utan höfuðstöðvar Kommúnistaflokks-
ins. Hins vegar yrði ekkert gefið eftir i
þýðingarmeiri málum og miklu varð-
aði hverjar lyktir viðræðnanna yrðu í
dag.
STARFSMENN EL AL
BODA „HVÍLD” HJÁ
ÖLLUM FLUGFÉLÖGUM
á sabbatsdögum vegna þeirrar
ákvörðunar Stjórnar Begins að
stöðva flug El Al
Starfsmenn fsraelska flugfélagsins E1
A1 ákváðu í gær að stöðva allt flug til
og frá Israel á laugardögum ef ríkis-
stjórnin bannaði flugfélaginu að starfa
á sabbatsdegi (hvíldardegi) gyðinga.
Starfsmenn úr öllum deildum flug-
félagsins komu saman til að ræða það
ákvæði í stjórnarsáttmála hinnar nýju
rfkisstjórnar Begins og þriggja trúar-
legra flokka þar sem Begin féllst á að
banna allt flug fsraelska flugfélagsins á
sabbatsdögum.
Heimildir innan E1 A1 segja að þetta
ákvæði muni kosta flugfélagið 45 til 50
milljón dollara á ári og talsmenn starfs-
mannafélagsins segja að það muni
leiða til uppsagna starfsmanna.
Eitan Rosenman formaður félags
flugvélvirkja sagði eftir fundinn: „1
ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp
eftir undirritun stjórnarsáttmálans
höfum við ákveðið að á sérhverjum
sabbatsdegi eða öðrum gyðinglegum
helgidögum sem samkomulagið nær til
munum við koma í veg fyrir brottför
og lendingu sérhverrar flugvélar sér-
hvers flugfélags.”
MARGIR FLUGUM-
FERÐARSTJÓRAR
SNÚA AFTUR TIL
VINNU SINNAR
—vegna hótana Reagans forseta
Reagan forseti hefur gefið flugum- flugumferöarstjóra hefur enn á ný
ferðarstjórum nýjan lokafrest til að hafnað kröfum rikisstjórnarinnar.
mæta til vinnu fyrir miðjan dag i dag Fimm leiðtogar flugumferðarstjóra
ellaverðiþeimvikiðúrstarfi. voru í gær handteknir og læstir bak
Stjórnin sagði að f gær hefðu við lás og slá.
hundruð flugumferöarstjóra mætt
aftur til vinnu eftir að byrjað var að Opinberir starfsmenn í Bandarikj-
senda út uppsagnarbréf til þeirra. unum hafa ekki verkfallsrétt og er
Roberto Poli formaður samtaka verkfall flugúmferðarstjóra ólöglegt.