Dagblaðið - 06.08.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
FORSETAFRÚNNI06
4 BÖRNUM BJARGAÐ
Brezkum lækni tókst I gær að
frelsa eiginkonu Dawda Jawara og
fjögur börn úr klóm uppreisnar-
manna 1 Gambíu. Þeim hafði verið
haldið sem gfslum ásamt þrjátíu
öðrum frá þvi uppreisn vinstri manna
var gerð í landinu í síðustu viku.
Lafði Thielal N’Diaya forsetafrú
sagði fréttamönnum í gærkvöldi að
tveir uppreisnarmanna hefðu farið
með hana og fjögur börn hennar á
sjúkrahús vegna þess að börnin voru
komin meðhita.
Hún sagði að einn lækna sjúkra-
hússins hefði fengið uppreisnarmenn-
ina til að leggja vopnin frá sér vegna
þess að þau kynnu að valda skelfingu
meðal sjúklinganna. Tveir aðrir
Evrópumenn hefðu þá gripið upp-
reisnarmennina og síðan hefðu her-
sveitir Senegalmanna komið á vett-
vang og handtekið mennina tvo.
Gíslarnir voru teknir i síðustu viku
þegar vinstrisinnar reyndu að ræna
völdum i landinu er Dawda Jawara
forseti var staddur í Bretlandi til að
vera viðstaddur brúðkaup Karls prins
og lafði Diönu Spencer.
Athugið!
Á fimmtudögum
eru allar deildir
opnar til
ki. 22
JON
LOFTSSON H/F
HRINGBRAUT 121
SÍMI 10600
Karl prins og lafði Diana Spencer, prinsessa af Wales, veifa til áhorfenda er þau stiga
um borð i konungssnekkjuna Britanniu. Þau eru nú á siglingu um Miðjarðarhaf og
hefur fréttamönnum gengið illa að fylgjast með för þeirra og greinir mjög á um hvert
ferðinni er heitiö.
Sendiherra Frakk-
lands heim f rá íran
Frakkar tilkynntu i gær að þeir
hefðu kallað sendiherra sinn heim frá
íran. Áður hafði útvarpið i Teheran
skýrt frá þvi að sendiherranum hefði
verið vísað úr landi vegna þeirrar
ákvörðunar frönsku stjórnarinnar að
neita að framselja Bani-Sadr fyrrum
íransforsetatil írans.
Við bjóðum einstök
greiðslukjör, alltniðurí
20% útborgun
og ejtirstöðvar lánum
við allt að 9 mánuðum
Hefnd fyrir morð-
in á ÓL f Miinchen?
Palestínski skæruliðaforinginn Abu
Daoud liggur helsærður á sjúkrahúsi í
Varsjá eftir banatilræði sem honum var
sýnt þar síðastliðinn laugardag. Pal-
estínumenn sögðu að hér væri um að
ræða fyrsta banatilræði þessarar teg-
undar í löndum Varsjárbandalagsins.
Þeir sögðu ísraelsmenn bera ábyrgð á
tilræðinu. Talsmaður ísraelsstjórnar í
Tel Aviv neitaði hins vegar aðild ísra-
elsmanna að málinu.
Fréttin um banatilræði Abu Daoud
barst svo seint út vegna þess að í fyrstu
var ekki ljóst hver hann væri.
ísraelsmenn hafa sakað Abu Daoud
um að hafa átt hlut að morðunum á
ellefu israelskum íþróttamönnum á
ólympíuleikunum í Munchen áriö 1972.
Daoud mun hafa verið nýkominn til
Varsjár er skotið var á hann á gistihúsi
þar í borg. Tilræðismaðurinn, sem
sagður var á aldrinum 20—22 ára,
komst undan í bíl sem beið hans fyrir
utan hótelið.
írskirskæru-
liðar sprengja
írskir skæruliðar sprengdu sprengjur
í sex borgum á Norður-írlandi á einni
klukkustund i gærkvöldi. Sjö manns
særðust í sprengingunum og mikið tjón
varð, að þvi er opinberir aðiiar sögðu.
Matvörur — fatnaður
Flestir þekkja okkar lága verð á matvörum og
ná bjóðum við einnig ýmsar gerðir fatnaðar á
sérstöku markaðsverði.
1 sumar verður lokað á laugardögum. Á föstu-
dögum er opið til kl. 22 I matvörumarkaði,
rafdeild og fatadeild, — Allar aðrar deildir
opnar til kl. 19.
Nú þatf ekki að moka snjóskaflana
frá til að komast inn.
HURÐIRNAR 0PNAST BEINTUPP
(Sveiflast ekki út)
LAUFLÉTT 0PNUN
í allt upp að 12 vindstigum
Einangraðar bílskúrshurðir úr valinni juru
VERKSTÆÐISHURÐIR 0G SKEMMUHURÐIR ÚR STÁLI
FYRIRLIGGJANDI:
Stærð: breidd 2,70 m, hæð 2£0 m.
Complett með hurðarjárnum og læsingum kr. 3500,00
Drifbúnaður með og án fjarstýr-
ingar fyrir allar gerðir hurða.
Verð frá kr. 2675,00 Komið og
skoðið uppsetta hurð hjá okkur.
Afgreiðslufrestur 6—8 vikur.
Dæmi um verð: Óeinangraðar 12.900
Stærð: breidd 5 m, hæð 4,30 m. Einangraðar 20.300
t( (Miflafl vifl gengi í júní)
Verð complett með járnum,
læsingum og þéttiköntum
SÉRFRÆÐINGAR I HURÐABUNAÐI
ASTRA
Síðumúla 32 - Simi 86544.
Anwar Sadat.
Sadatvill
aðild PL0
—að friðarumræðum
íMiðausturlöndum
Anwar Sadat Egyptalandsforseti
hvatti Ronald Reagan í gær til að
viðurkenna Frelsissamtök Palestínuar-
aba, PLO, sem aðila að nýjum tilraun-
um til að koma á varanlegum friði i
Miðausturlöndum.
Reagan mun ekki hafa svarað tillög-
unni þegar í stað. Alexander Haig utan-
rfkisráðherra sagði hins vegar að PLO
yrði að viðurkenna tilverurétt ísraels
áður en Bandaríkin breyttu afstöðu
sinni til PLO.
REUTER
ÍÖLLU
DEILDUM
TIL KL. 22
ÍKVÖLD
Byggingarvörur —
Teppi — Raftæki —
Rafljós — Húsgögn