Dagblaðið - 06.08.1981, Qupperneq 8
Trúarbrögð eflast í Kína á nýjan leik:
GUNNLAUGUR
A. JÚNSSON
„Menningarbyltingin hjálpaði
mér að verða betri prestur”
— Kirkjur víða troðfullar í Kína og stjómvöld láta
trúariðkun fólks nú af skipt alausa
Rauðu varðliðarnir, sem brenndu
niður hina glaesilegu rússnesku
orþódox-kirkju í miðborg Harbin i
menningarbyltingunni, hafa líklega
ímyndað sér að með því hefðu þeir
endanlega gert út af við allt trúarlíf í
þessariborgí Norðaustur-Kina.
Þar sem kirkjan stóð er nú um-
ferðargata og ekki sjást nein merki'
um kirkjuna. En núna fimmtán árum
síðar eru tvær starfandi kirkjur i
Harbin og þær eru jafnan fullar
af fólki og fimm munkum hefur verið
leyft að snúa aftur til búddhamuster-
isinsástaðnum.
Harbin var eitt sinn þekkt sem
„Moskva austursins” vegna hins
mik'a riólda rússneskra íbúa þa' En
Rússarnir eru nú næstum allir á bak
og burt og frá byrjun menningar-
byltingarinnar og þar til á næsta ári
voru kirkjurnar lokaðar.
Núna státar Harbin af tveimur
starfandi kirkjum, einni mótmæl-
endakirkju og annarri kaþólskri og
uppi eru áform um að opna þriðju
kirkjuna, fyrir þá sem eru orþódox-
ar-trúar.
Séra Jacques Guo Shouxin, prestur
kaþólsku kirkjunnar, segir að rúss-
nesk-orþódox prestur hafi þegar
verið skipaður og kirkja safnaðarins
verði reist innan skamms.
Líklega verða næstum eingöngu
Kínverjar í söfnuðinum þar sem ekki
eru nema um fjörutíu Rússar eftir í
Harbin. Sérá Guo segir að guðsþjón-
ustur safnaðarins muni verða fluttar
á kirkjulegu slavnesku máli.
Skriftaö hjá kaþólskum presti 1
Beijing.
Séra Guo, sem er 62 ára gamall,
var þjálfaður til starfa af frönskum
trúboðum í nágrannahéraðinu Jilin.
Kirkja hans, sem áður var rússnesk-
orþódox, var opnuð á ný um síðustu
jól og hann er einn þriggja presta í
Harbin sem syngja messu á hverjum
sunnudegi.
Um 150 manns voru viðstaddir
morgunguðsþjónustu klukkan átta
einn sunnudag fyrir skömmu en séra
Guo segir að á sérstökum hátíðum
séu allt að 700 manns ( kirkjunni.
Margt ungt fólk er meðal kirkju-
gesta og flest segist það koma frá
kaþólskum fjölskyldum. Sumir ráða
yfir nýprentuðum sálmabókum sem
pantaðar hafa verið frá Shanghai en
aðrir syngja upp úr gömlum og
snjáðum bókum sem varðveittar hafa
verið innan trúaðra fjölskyldna árum
og áratugum saman.
v___
„Þessi hús eru eign kirkjunnar og
við erum staðráðin í að ná þeim
aftur,” segir séraGu.
Öfugt við það sem á sér stað i
kirkjunum tveimur í Harbin þá er
litið um það að almenningur komi
saman til guðsdýrkunar í búddha-
musterinu þar og opinberlega er það
raunar ekki opið almenningi enn sem
komiðer.
En fólki er hleypt inn i musteri
„hinnar miklu gleði” eins oe bað
heitir (Jile Si) ef það knýr þar dyra.
Musterið, sem stofnað var árið
1924, er líklega það búddhamusteri
sem síðast var tekið í notkun í Kina
að nýju. Það varð fyrir
miklum skemmdum á tímum
menningarbyltingarinnar og einn
munkanna, Ci Fa 68 ára gamall, segir
að allar búddhastytturnar f musterinu
hafi verið eyðilagðar af rauðu varð-
liðunum.
Ci Fa mátti þola ýmiss konar
niðurlægingu á timum menningar-
byltingarinnar. Meðal annars var
hann leiddur um götur Harbin af
rauðu varðliðunum öðrum til viðvör-
unar. En nú telur hann stjórnvöld
sýna trúmálum fólks hæfilegt af-
skiptaleysi.
Eitt sinn var einnig talsvert stórt
gyðingasamfélag í Harbin. Þar var
einkum um að ræða Rússa og Pól-
verja sem flúið höfðu frá Rússlandi
undan ofsóknum á keisaratímanum.
Sennilega eru ekki neinir gyðingar
lengur í Harbin og aðalsamkundu-
húsi þeirra i borginni hefur verið
breytt í skrifstofu og aðeins Davíðs-
stjarnan á glugga hússins vitnar um
fyrri notkun þess.
(Reuter)
Margar kirkjur voru lagðar í rúst á timum menningarbyltingarinnar. Myndin er af mótmæiendakirkju i Nanjing.
Hópur íslendinga var viöstaddur guðsþjónustu i mótmælendakirkju á páskadag. Eins og myndin sýnir vel var þar þröngt setinn bekkurinn og margir urðu að
standa. DB-mynd: Magnús Karel.
prestur.”
Séra Gu segist hafa verið prestur i
Harbin síðan 1943 en frá 1966 og þar
til á síðasta ári var kirkja hans notuð
sem lögreglustöð.
Auk sunnudagsguðþjónustunnar
þá stendur kirkjan fyrir vikulegum
fundum kvenna og bibliunámskeiði
sem um 200 manns sækja á föstu-
dagskvöldum.
Séra Gu viðurkennir að mánaðar-
laun hans séu um helmingi hærri en
mánaðarlaun verkamanns, um 100
yuan á mánuði (57 dollarar). Laun
hans eru greidd af leigu húsa sem er í
eigu kirkjunnar.
Eignir kirkjunnar voru gerðar upp-
tækar á tfmum menningarbyltingar-
innar en hefur smám saman verið
skilað aftur upp á síðkastið.
Þó að kaþólsku kirkjuna i Harbin
prýði myndir af Maríu mey og
krossinum eins og í kaþólskum kirkj-
um annars staðar þá tilheyrir hún
sambandi kaþólskra kirkna i Kína
sem vilja vera óháðar Vatikaninu og
viðurkenna ekki kennivald páfans.
Þetta kemur meðal annars fram í
því að allar kaþólskar guðþjónustur (
Kína eru fluttar á latínu þrátt fyrir
nýlega stefnumörkun Vatikansins um
að guðþjónustur skuli fluttar á
móðurmálinu.
Mótmælendakirkjan í Harbin er
minni en sú kaþólska en bekkurinn er
ekki siður þéttsetinn þar. Séra Gu
Shaotang, 69 ára gamall prestur,
mótmælendakirkjunnar, segist hafa
verið þvingaður til að vinna í verk-
smiðju á tímum menningarbyltingar-
innar en trú sína hafi hann aldrei
misst.
„Þessi bitra reynsla styrkti trú
mína á Guð,” segir hann. „Menn-
ingarbyltingin var góð reynsla fyrir
mig og hjálpaði mér til að verða betri
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent