Dagblaðið - 06.08.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
Fá Islendingar
olíu f rá Noregi?
— iðnaðarráðherrar landanna ræða gagnkvæma samvinnu
í iðnaðar- og orkumálum
— Það verður ekki hvikað frá
þeirri stefnu rikisstjórnarinnar að
fslendingar eigi meirihluta í þeim
fyrirtækjum eða verksmiðjum sem
kunna að verða reistar hér á landi, en
það útilokar ekki að samstarf verði
haft við önnur lönd í orku- og
iðnaðarmálum, sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra m.a.
á blaðamannafundi sem boðað var til
í tilefni af komu norska iðnaðar-
ráðherrans, Finn Kristensen, hingað
til lands.
Norski ráðherrann er staddur hér-
lendis í opinberri heimsókn i boði
v__
Hjörleifs Guttormssonar en
Hjörleifur var í sams konar heimsókn
í Noregi í janúarmánuði sl. og átti þá
viðrasður við þáverandi iðnaðar-
ráðherra Norðmanna og fleiri fyrir-
menn á sviði orku- og iðnaöarmála í
Noregi.
í viðræðum ráðherranna hérlendis
vera komið viða við en
höfuðáherzlan lögð á að efla núver-
andi samstarf landanna á sviði
iðnaðarmála. Kom fram almennur
vifji hjá ráðherrunum um að efla þetta
samstarf, bæði hvað varðar
almennan iðnað, en sérstaklega þó í
sambandi við orkufrekan iðnað. Var
rætt um gagnkvæm skipti á
tæknilegum upplýsingum,
rannsóknar- og þróunarstarfsemi,
markaðsmál og svo hráefnismál
iðnaðar.
Á fundinum kom fram að fslenzka
iðnaðarráðuneytið hefur beitt sér
fyrir viðræðum við norsk iðnaðar-
fyrirtæki, þar á meðal Elkem, Norsk
Hydro, Saga Petrokjemi og Dyno
Industrier, um hugsanlega samvinnu.
Einnig sagðist Hjörleifúr hafa átt
viðræður við forráðmenn Statoil,
norska ríkisolíufélagsins, um
möguleika íslendinga á að fá keypta
oliu frá Norðmönnum og að sögn
II
\
Finn Kristensen og Hjörleifur Guttormsson. DB-mynd: Gunnar örn.
Hjörleifs var vel tekið í þá hugmynd,
þó að ekkert hafl verið bundiö fast-
mælum. Hjörleifur ítrekaði þá
skoðun sin að íslendingar ættu aö
leita fyrir sér um oliukaup frá fleiri
en einu og fleiri en tveimur löndum
og þvf væri hann þeirrar skoðunar að
hefja bæri viðræður við Norðmenn.
Norski iðnaðarráðherrann, Finn
Kristensen, sagöi að norsk stjórnvöld
hefðu mikinn áhuga á auknum
tengslum á milli fslands og Noregs á
sviði orku- og iðnaðarmála og það
væri hans skoðun að erlendri
samkeppni yrði bezt mætt með því að
Norðurlöndin stæðu saman í þessum
málum.
Finn Kristensen mun næstu daga
skoða ýmis fyrirtæki hérlendis í fylgd
með fulltrúum iðnaðarráðuneytisins,
en í för með ráðherranum er eigin-
kona hans og fulltrúar úr norska
iðnaðarráðuney tinu.
-ESE.
Forhitun á nýmjólk
bönnuð og undanþág-
ur felldar úr gildi
—ný reglugerð verður væntanlega tilbúin í mars
„Mjólkursamsölunni hefur verið
gert að fara að reglugerð um mjólk og
mjólkurvörur og eru þvi allar
undanþágur óheimilar. Nýmjólk,
undanrennu og rjóma skal samkvæmt
því dagstimpla þrjá daga fram í tímann
og sýrðar mjólkurvörur sjö daga,”
sagði Hrafn V. Friðriksson for-
stöðumaður heilbrigðiseftirlits rlkisins í
samtali við DB i gær.
,,Þá var ennfremur ákveðið að frá
og með deginum á morgun, 7. ágúst,
skyldi bönnuð forhitun á nýmjólk sem
send er frá Borgarnesi og Selfossi. Sú
ráðstöfun ætti að gera mjólkina
ferskari og auka gæði hennar. Þá
óskaði samstarfsnefndin sem skipuð var
efdr því að mjólkursamsalan merkti
gerilsneyðingardaginn á vörur sínar.
Það ætti að geta gengið fyrir sig án þess
að til þurfi að koma reglugerðarbreyt-
ing og ég á von á að mjólkurbúin taki
þá nýlundu upp sem fyrst,” sagði
Hrafn V. Friðriksson.
Að sögn Hrafns stóð endurskoðun á
reglugerðinni um mjólk og mjólkurvör-
ur sem nú er I notkun yfir á árunum
1978 og 1979 og var ríkisvaldinu afhent
sú greinargerð i júlí 1979. Land-
búnaðarráðuneytið hafði því næst
skýrsluna til athugunar í tæpt ár, en
sfðastliðið haust óskaði heilbrigðiseftir-
litið eftir þvi að fá skýrsluna. í vor at-
hugaði heilbrigðiseftírlitið aftur skýrsl-
una með hliðsjón af þeim breytingum,
sem gerðar höfðu verið á henni í land-
búnzðarráðuneytinu og vfðar. í fram-
haldi af fenginni reynslu í mjólkurmál-
um í sumar og nýjum upplýsingum sem
fram hafa komið verður endurskoðun
reglugerðarinnar nú flýtt og kvaðst
Hrafn V. Friðriksson reikna með að ný
reglugerð gæti verið tilbúin í marz í
vor. Sagði hann að þetta mál yrði
væntanlega tekið upp af nýrri sam-
starfsnefnd, sem skipuð verður á næst-
unni.
Gerð nýrrar reglugerðar er vanda-
samt og mikiö verk og mörg sjónarmið
verður að sætta í þessu efni. Sagði
Hrafn að þótt reglugerðin sem slik yrði
tilbúin næsta marz, gæti liðið nokkur
timi áður en öll ákvæði hennar væru
komin I framkvæmd.
-SA.
Sams konar þjónusta og
að panta hótelgistingu
fyrir viðskiptavinina
— segir Guðni Þórðarson hjá Iscargo um Búlgaríu-
ferðirnar sem flugfélagið auglýsti
Skyldi maðurinn vera inni eða úti og hvoru megin glersins ætli myndasmiðurinn
standi? Já, það er ekki nóg með að hið efnislega amstur ætli mannfólkið lifandi að
drepa, heldur reyna vondir menn með myndavélar einnig að rugla það I kollinum. Er
það nokkur furða þótt gamla manninum finnist öruggast að standa grafkvrr, með
hendur I vösum f stað þess að velta fyrir sér hvernig völundarhúsið Jörð lítur út?
DB-mynd: G„... Jrn.
—Upphafið að þessum ferðum er að
hollensk ferðaskrifstofa I Amsterdam
bað Iscargo að selja fyrir sig i ferðir til
Búlgaríu, sem skrifstofan býður upp á.
Við töldum okkur það fullheimilt, enda
um sams konar þjónustu að ræða og
þegar við pöntum bílaleigublla og
hótelgistingu fyrir farþega okkar, sagði
Guðni Þórðarson hjá Iscargo, er DB
hafði tal af honum i gær.
Samgönguráðuneytið bannað Iscargo
að auglýsa ferðirnar þar sem flug-
félagið hefur ekki ferðaskrifstofuleyfi.
— SAS hefur í áraraðir selt í ná-
kvæmlega sams konar ferðir hér á landi
með dönsku ferðaskrifstofunni
Globetrotter og hefur SAS ekki heldur
ferðaskrifstofuleyfi. Að þessum
viðskiptum SAS hefur aldrei neitt
verið fundið, og við skulum ætla að
islenzkt flugfélag hafi ekki minni rétt
í sinu eigin landi en útlenskt.
Auglýsingarnar eru aftur ekkert
sérstakt kappsmál og við hétum
samgöngumálaráðuneytinu þvi að
auglýsa ekki Búlgariuferðirnar aftur og
þau orð höfum við haldið í bili. Við
höfðum aldrei hugsað okkur að fara í
strið við ferðaskrifstofur eða önnur
flugfélög. Ef hins vegar einhver
viðskiptavina Iscargo bæði okkur að
panta fyrir sig i ferð til Búlgaríu,
myndum við að sjálfsögðu gera það og
það er töluverður fjöldi sem ætlar að
fara til Búlgariu með þessari hollenzku
ferðaskrifstofu sagði Guðni Þórðar-
son hjá Iscargo.
STOÐSTOLLINN
Heilsunnar
Góður stóll sem léttir
vinnu og eykur vel-
líðan. Bakið er fjaór-
andi og stillanlegt og
gefur mjög góóan
stuóning. Halli set-
unnar er breytanlegur
og hæðarstillingin
sjálfvirk.
Fáðu þér Stoðstólinn
heilsunnar vegna.
vegna
STÁLIÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÖPAVOGI, SÍMI 43211
-SA.