Dagblaðið - 06.08.1981, Síða 14
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
15
Iþróttir
Hörkugott meistaramót ífrjálsum íþróttum:
Tveir reyndu við nýtt
íslandsmet í hástökki
— Stefán Friðleifsson og Unnar Vilhjáimsson stukku báðir 2.06 metra. íslandsmet
Oddnýjar Árnadóttur í200 m hlaupi. Fjölmörg meistaramótsmet sett
„Þeir hafa rofifl múrinn, þessir
strákar, eftir að hafa verið um tima að
fást við tvo metrana. Og annað sem er
meira vert. Þeir voru ekki hræddir við
methæðina. íslandsmet er innan seil-
ingar hjá þeim báðum,” sagði Jón Þ.
Ólafsson, ísiandsmethafinn i hástökki,
2,10 m 1963, eftir að Austfirðingarnir
Stefán Friðleifsson og Unnar Vilhjálms-
son höfðu reynl að bæta íslandsmet
hans á meistaramótinu i gær á Fögru-
völlum. Báðir stukku 2,06 m og siðan
var hækkað i 2,11 m. Báðir áttu góðar
tilraunir vlð methæðina, einkum þó
Stefán. Hann varð íslandsmeistari, fór
yfir 2,04 og 2,06 i fyrstu tilraun.
Notaði færri tilraunir, en Unnar setti
nýtt unglingamet. Eldra metið, 2,04 m
átti Guðm. Rúnar Guðmundsson, FH.
Bezta hástökkskeppni, sem háð hefur
verið á Laugardalsvelli og árangur pilt-
Holaíhöggi
KLP í 5. sinn
Kjartan L. Pálsson blaðamaður og
landsliðseinvaldur i golfinu lék holu i
höggi á Nesvellinum i gærkvöld. Það
var á sjöttu braut og i fimmta skipti
sem KLP leikur holu i höggi. Fyrst fyrir
fjórum árum og hefur nú leikið þennan
ótrúlega leik oftar en nokkur annar
íslendingur. Tvivegis á Nesvelli, tvi-
vegis í Hafnarfirði og einu sinni á golf-
velli i Dublin á íriandi. -hsím.
anna mjög góður i kuldanum um tiu-
leytið i gærkvöld. Maður var gegn-
kaldur i frakka og með treflli
„Ég meiddist i körfubolta fyrir
nokkrum árum og það taföi fyrir
árangri mínum í hástökkinu en þrátt
fyrir það hef ég alls ekki lagt körfubolt-
ann á hilluna. Ég átti bezt áður tvo
metra og bætti mig þvi um sex senti-
metra, svo hér er um verulega framför
að ræða. Vonast til að ég geti bætt
þennan árangur fljótt,” sagði Stefán
eftir keppnina. Hann er 23ja ára Aust-
firðingur en starfar nú i Reykjavik.
„Jú, það er rétt, ég dreg aðeins fót-
inn í uppstökkinu en vonast til að mér
takist að laga það fljótlega,” sagði
Unnar eftir að hann hafði bætt
unglingametið íslenzka f 2,06 m. Hann
er að verða tvítugur og átti bezt áður
2,03 metra. Bætti sig því um þrjá senti-
metra. Báðir eru piltarnir að verða
stórgóðir hástökkvarar eins og bezt
kom I ljós í gær, þegar þeir reyndu við
methæðina. Þar munaði ekki miklu.
Þeir eiga ekki langt að sækja hæfileik-
ana í iþróttum. Feður þeirra, Vilhjálm-
ur Einarsson, skólameistari, og Frið-
leifur Stefánsson, tannlæknir, voru
landsliðsmenn saman i þrístökki fyrir
um 25 árum. Árangur Stefáns og
Unnars er jafn meistaramótsmeti Jóns
Þ. Ölafssonar frá 1966.
Hörkugott mót
Meistaramót íslands i frjálsum
íþróttum, sem hófst í gærkvöld á
Fögruvöllum, var hörkugott - mót.
Bezta frjáisiþróttamót hér í háa herrans
tíð og keppni víða skemmtileg. Þar
kom vel í ljós sú mikla grózka, sem nú
er i frjálsum fþróttum á íslandi eins og
reyndar hefur vel komið fram í skrifum
hér í blaðinu i sumar. Greinilegt ef vel
er haldið á málum, að það stefnir í nýja
gullöld hér á landi í frjálsum íþróttum.
Fleiri og fleiri afreksmenn bætast stöð-
ugt í hópinn. Veður var gott, þegar
keppni hófst i gær en kólnaði mjög
með kvöldinu. íþróttafólkið lét það
ekki hafa áhrif á sig. Það var eins og
íslandsmet Einars Vilhjálmssonar strax
í byrjun hrifi aðra til dáða.
Fleiri fslandsmet voru sett og
meistaramótsmetin féllu í fjölmörgum
greinum. Oddný Árnadóttir, ÍR, setti
íslandsmet í 200 m hlaupi. „Ég fór
ekki að taka hlaupin svo mjög alvar-
lega fyrr en ég fluttist til Reykjavíkur
fyrir rúmum tveimur árum úr Norður-
Þingeyjarsýslunni. Bættur árangur var
hvati til að gera enn betur,” sagði
Oddný eftir methlaupið, ákaflega geð-
þekk ung kona, 23 ára að aldri. Hún
vakti athygli í fyrrasumar og sigraði
örugglega í 200 m hlaupinu í gær. Var
langsterkust á lokasprettinum í
skemmtilegasta 200 m hlaupi kvenna,
sem háð hefur verið hér á landi. Strax i
undanrás náði Oddný betri tíma en
íslandsmetið, hljóp á 24,78 sek.
Meðvindur var þá of mikill.
í úrslitahlaupinu var meðvindurinn
löglegur, 1,5 sekúndumetrar, og enn
BÓK í BLAÐFORMI
É)'
VERÐ
24,00 KR.
HEFTI
mmm
Bremsulaus í
Bröttubrekku
Bls. 25
Skop............................ 2
Vandamál drykkjukvenna .... 3
Mesti fjármálamarkaður heims . 8
Djarfur myndasmiður............ 14
Kapp er best með forsjá...... 21
Bremsulaus í Bröttubrekku ... 25
Sumarið hennar Llsu frænku c. . 31
Völundarhúsið ................. 38
Varðkötturinn.................. 39
Unglingar og krefjandi
íþróttir..................... 46
Hugsuníorðum .................. 52
Ég sé greinilega! ............. 53
Með morgunkaffinu ............. 58
Dauði, elduroglíf.............. 60
Börn og foreldraerjur.......... 67
Úrvalsljóð..................... 72
Ég er óður x eyjar............. 78
Ungverski hringurinn rofinn . . 83
Með fingur á kjarnorkugikknum 100
Dýrmætar minjar um rauðskinna 108
Hin hlið raunheimsins......... 115
Þú verður gleðikona eða...... 124
Vandamál
drykkjukvenna
Bls. 3
Hin hlið
raunheimsins
Bls. 115
Bókin: Ungverski
hringurinn rofinn
Bls. 83
bætti Oddný árangur sinn. Hljóp á
24.63 sek. en eldra íslandsmetið átti
Helga Halldórsdóttir, KR, 24,96 sek.
Sett í fyrra. Með handtímatöku er
íslandsmet Ingunnar Einarsdóttur, ÍR,
frá 1976, 24,6 sek. Ef um slfka tíma-
töku hefði verið að ræða í gær hefði
Oddný bætt það met verulega. Auð-
vitað á að strika þau íslandsmet út.
Láta rafmagnstímatökuna eina ráða
gildandi íslandsmetum. Úrslit í hlaup-
inu.
1. OddnýÁrnad., ÍR, 24,63
2. Valdís Hallgrímsd., KA, 24,78
3. Helga Halldórsd., KR, 24,79
4. SigriðurKjartansd., KA, 25,01
5. SigurborgGuðmundsd., Á, 25,19
„Tek þessu rólega"
,,Ég ætla að taka þetta mót heldur
rólega. Er ekki alveg búinn að jafna
mig eftir tognunina og stefni á að ná
góðum árangri á Reykjavíkurleikunum
í næstu viku,” sagði Oddur Sigurðs-
son, KR, fyrir 200 m hlaupið. Hann
sigraði þar þó fyrirhafnarlftið en
keppnin um næstu sæti minnti mann á
200 m hlaupin á Melavellinum gamla
fyrir góðum 30 árum. Tími Odds var
21.64 sek. — meðvindur aðeins of mik-
ill. Sigurður Sigurðsson, Á, varð annar
á 22,03 sek. Egill Eiðsson, UÍA, var
harðari en íslandsmethafinn Vilmund-
ur Vilhjálmsson, KR, á lokametrunum
og stórbætti árangur sinn. Hljóp á
22,13 sek. sem er ágætt hjá pilti vel
innan við tvítugt. Vilmundur varð svo
fjórði á 22,19 sek. íslandsmet hans er
21,23 sek. en meiðsli hafa mjög sett
strik i reikninginn hjá Vilmundi síðustu
árin. En hann er að koma aftur.
800 m hiaupið var lika skemmtilegt
með tiu keppendum. Gunnar Páll
Jóakimsson, lR, sigraði örugglega á
1:54,19 min. Magnús Haraldsson, FH,
varð annar á 1:56,13 mín. og bætir sig
nú mjög i hverju hlaupi. Nýtt ungiinga-
met hafnfirzks hlaupara. Guðmundur
Sigurðsson, bráðefnilegur Eyfirðingur,
varð þriðji á 1:56,57 min. Hefur léttan
og skemmtilegan hlaupastíl og er lík-
legur til mikilla afreka. Sigurður P.
Sigmundsson, FH, sem er að vinna upp
hraða fyrir lengri hlaupin og heldur
fljótlega utan til keppni í þeim á Eng-
landi, varð fjórði á 1:59,98 min. Erling
Aðalsteinsson, KR, sem hélt uppi hrað-
anum fyrri hringinn, fimmti á 2:01,31
sek. Bráðefnilegur, ungur hlaupari.
Stefán Hallgrímsson, KR, hljóp vel i
400 m grindahlaupi á 52,87 sek.
Meistaramótsmet hjá Stefáni. Aðal-
steinn Bernharðsson, UMSE, annar á
54,36 sek. Þórdfs Gisladóttir, ÍR, setti
mótsmet í hástökki, 1,78 m. Var í sér-
flokki. í 110 m grindahlaupi sigraði
Helga Halldórsdóttir, KR, á 14,72 sek.
Jón Oddsson, KR, i langstökki með
6,94 m. Kári Jónsson, HSK, annar,
6,78 m, og Friðrik Þor Óskarsson, ÍR,
þriðji. Stökk 6,76 m. Ágúst Ásgeirs-
son, iR, varð íslandsmeistari i 5000 m
hlaupi á 15:25,8 mln. í sérflokki.
Hrönn Guömundsdóttir ( 800 m hlaupi
á 2:14,96 mín. Sveit KR í 4x100 m
boðhlaupi karla á 42,70 sek. Mótsmet
og sveit KA i 4x 100 m boðhlaupi
kvenna 49,70 sek. Akureyrarmet.
Mótið heldur áfram í kvöld kl. 19.00
og þá verður keppt i mörgum skemmti-
legum greinum. -hsím.
Fjórir keppa
Fjórir íslendingar verða meðal kepp-
enda á Evrópumeistaramóti ungllnga i
frjálsum fþróttum i Utreckt i Hollandi
20.—24. ágúst næstkomandi.
tris Grönfeldt, UMSB, keppir i
spjótkasti, Helga Halldórsdóttir, KR, f
100 m grindahlaupi — átti sjötta bezta
árangur á vegalengdinni i fyrrasumar i
Evrópu meðal ungllnga — og 200 m
hlaupi, Ragnheiður Ólafsdóttir, FH, f
1500 m hlaupi. Allt íslandsmethafar.
Þá keppir Austflrðingurinn EgUI Eiðs-
son i 400 m hlaupi. Sveinn Sigmunds-
son gjaldkeri FRÍ og Ólafur Unn-
steinsson Uðsstjórl verða keppendum
Íslands tU halds og trausts á mótinu.
1 ....................................... "
1
Einar Vilhjálmsson horfir á eftir spjótinu i metkastinu.
DB-mynd Einar Ólason.
Islandsmetið íspjótkasti stórbætt:
EINAR K0MINN í
HEIMSKLASSANN!
— Kastaði 81,23 metra á meistaramótinu
„Ég veit ekki hverju ég á að þakka þessa miklu
framför. Ég hef æft skynsamlega uppi i Reykholti
þar sem ég stundaði kennslu f vetur og hef fengið
punkta frá góðum mönnum. En ég hef þó að
mestu þurft að stóla á sjálfan mig og haga mér
eftir þeim aðstæðum sem hafa verið fyrir hendi.
Ég hef fengið styrk til háskólanáms i læknisfræði i
Bandarfkjunum næsta vetur. Stefni að þvi að ná
góðum árangri i spjótkastinu á bandariska há-
skólamótinu næsta sumar,” sagði Einar VU-
hjálmsson, Ungmennaf. Borgfirðinga, eftir að
hann hafði stórbætt íslandsmetið f spjótkasti á
meistaramótinu f gærkvöld. Kastaði 81,23 m en
eldra metið, sem hann áttl sjálfur og sett var i
fyrrasumar, var 76,76 metrar. Á nokkrum árum
hefur hið kunna íslandsmet Jóels Sigurðssonar,
ÍR, sem stóð vist f ein 25 ár, 66,99 m, verið bætt á
fimmtánda metra.
Með þessu afreki sínu, 81,23 m, er Einar Vil-
hjálmsson kominn i „heimsklassann” í spjótkast-
inu. Þar eru oft meiri sveiflur en í öðrum greinum
frjálsra íþrótta. Og þetta er aðeins áfangi hjá
Einari. Ef að líkum lætur á þessi piltur, sem nýlega
varð 21 árs — stúdent 1980 — eftir að stórbæta
árangur sinn. Hann hefur aUa burði til þess, kast-
krafturinn og snerpan hjá þessum örvhenta spjót-
kastara hreint með ólíkindum. Ákaflega geð-
þekkur íþróttamaður og vel gefinn, sonur Vil-
hjálms Einarssonar skólameistara, þess mikla af-
reksmanns i íþróttum.
„Ég er alveg hættur í handknattleiknum, meidd-
ist þar fyrir klaufaskap sl. vetur, og þau meiðsli
háðu mér verulega framan af keppnistimabilinu.
Þess vegna kemur þessi góði árangur mér talsvert á
óvart nú,” sagði Einar ennfremur. Hann átti tvö
köst betri en gamla íslandsmetið. Byrjaði á þvi að
kasta 75,30 m. Gerði ógilt í 2. tilraun. Þá 81,23 m,
siöan ógilt. Fimmta tilraun 77,15 og sú sjötta og
siðasta 74,82 m. Greinilegt að við höfum eignazt
nýjan afreksmann i frjálsum iþróttum, afreks-
mann sem liklegur er tU mikilla afreka í framtið-
inni. Kornungur maður og kastarar eru venjulega
beztir 25 ára og reyndar langt fram yfir þritugt.
Hreinn við 20 metra
Árangur i öðrum kastgreinum á meistaramótinu
1 gærkvöld var nokkuð góður. Hreinn Halldórs-
son, KR, varð íslandsmeistari áttunda árið i röð.
Varpaði 19,84 m. Guðni Halldórsson, KR, varð
annar með 17,21 m og Helgi Þ. Helgason úr Húna-
vatnssýslu þriðji með 15,36 m. f kúluvarpi kvenna
setti Guðrún Ingólfsdóttir, KR, nýtt meistaramóts-
met. Varpaði 13,49 m. fris Grönfeldt, UMSB,
varð önnur með 11,55 m, sem er nýtt Borgar-
fjaröarmet. Dýrfinna Torfadóttir, ÍR, þriðja með
10,91 m. í spjótkasti kvenna sigraði fris. Kastaðj
45,09 m og bætti meistaramótsmetið um tvo og
hálfan metra. Dýrfinna varð önnur með 44,14 m
og.Bryndis Hólm, ÍR, þriðja með41,09 m.
Aðrir keppendur í spjótkastinu hjá körlum féllu
í skuggann vegna stórárangurs Einars Vilhjálms-
sonar. Öskar Thorarensen, KR, varð annar með
58,89 m og Unnar Garðarsson, HSK, þriðji með
56,32 m. Ungir kastarar sem stórbætt hafa
árangur sinn í sumar. Norðmaðurinn Harald
Lorentsen keppti sem gestur og kastaði 64,15 m.
Hann var hér á árum áður einn bezti spjótkastari
Norðurlanda og hreifst mjög af árangri Einars 1
gær. - hsim.
Þróttur og ÍBV
leika íkvöld
Þróttarar mæta Eyjamönnum i undanúrslitum
bikarsins kl. 19 i kvöld en ekki kl. 20 eins og áður
hefur veriö sagt frá. Þessi tvö lið berjast um sæti i
úrslitunum gegn Fram sem ielkur sinn þriðja úr-
sUtaleik i blkarnum á þremur árum en úrsUtin
verða 30. ágúst á LaugardalsveUinum.
Eyjamenn eru öUu sigurstranglegri i leiknum f
kvöld en ekld má gleyma þvi að Fylkismenn stóðu
vel og lengi i Frömurum áður en þelr urðu að láta i
minni pokann. VaUargestir, athugið hins vegar að
leikurinn hefst kl. 19 i kvöld.
Fimm leikmenn dæmdir í leikbann:
NJÁLL EIÐSS0N
í 2JA LEIKJA BANN
Tveir leikmenn úr 1. deUd, Viðar
Halldórsson, FH, og NjáU Eiðsson,
Val, voru dæmdir i keppnisbann á
fundi aganefndar KSÍ á þriðjudag.
Viðar var kominn með tiu refsistig og
fékk eins leiks bann. Leikur þvi ekld
með FH I Vestmannaeyjum á laugar-
dag.
íþróttir
Njáll var kominn með 15 refsistlg.
Fékk þvi tveggja leikja bann og það
gengur i gildi á laugardag. Njáll getur
þvi ieikið með Val á Akureyri, gegn
KA, á föstudag en missir leiki Vals vlð
Vestmannaeyinga 16. ágúst og Breiða-
blik 20. ágúst.
Þá voru tveir leikmenn úr 2. aldurs-
flokld dæmdlr i eins leiks bann, Karl
Hjálmarsson, Val, og Birgir Guðjóns-
son, Val. Karl fyrir brottrekstur og
þeir yngstu sluppu ekki heldur. Heimir
Guðjónsson, KR, sem leikur i 5.
aldursflokki, var dæmdur i eins leiks
bann vegna brottrekstrar af velli. - hsim.
Lárus Guðmundsson
oglékíBelgíu
Ungi miðherjinn i Vfkingsliðinu,
Lárus Guðmundsson, dvaldi i fimm
daga í boði belgiska félagsins Hasselt i
Belgfu við æfingar og keppni. Fór utan
sl. föstudag, 31. júlf, og kom heim á
þriðjudagskvöld aftur. Forráðamenn
Hasselt, sem er skammt frá Brússel,
báru hann beinlfnis á höndum sér.
Lárus æfði með leikmönnum félagsins
og tók þátt i einum æfingaleik við lið úr
1. deild. Hasselt sigraði 6—1 i leiknum.
Lárus skoraði ekki i leiknum en lagði
upp nokkur markanna og Belgfumenn-
irnir hrifust mjög af ieikni hans og hafa
hug á þvf að fá Lárus til sfn þó siðar
verði.
Lárus hyggur þó ekki á atvinnumennsku í knatt-
spyrnu strax. Hann á eftir nokkra mánuði í stúdents-
próf, verður stúdent um áramótin. Hefur enn ekki
ákveðið framhaldsnám. Þá má geta þess, að þýzki
umboðsmaðurinn Reinke, sem kom Atla Eðvalds-
syni og Magnúsi Bergs til Dortmund, hefur haft
samband viö Lárus. -hsím.
HlOlreidamaður er illa
varinn ef eitthvert óhapp
hendir. Því er
nauösynlegt að reiðhjóliö
sé gott og öruggt en ekki
skröltandi járnahrúga. —
Bls. 8.
ÍllÉ
14.00: Ómar hringi'" í
Davíð.
15.00: Ómar hring.r
Davíð
16.30: Ómar hrinc r enn
Davíð — en það e** eks
nema brotabrot a- þv
sem Ómar gerði þennan
daginn!
Sjá bls. 20.
Margir eru ánægðir með
myndir ef þeir geta bent
á einhvern díl og sagt:
Þetta er Siggi og þetta er
Gunna. En meira þarf til
að gera Ijósmynd góða.
Ljósmyndaskóli Vikunnai
kennir myndbyggingu
á bls. 12.
Það sem þykir topptíska i
dag missir gildi sitt á
morgun og kannski
grænt sé litur morgun-
dagsins ?
Bls. 2S
*
. *
* %
* *#■
l*ir-
8Í1Í20
Fæddur að Hrakhólum í
Öldudal 16. september og
Hitler hætti samstundis
við að ráðast inn í
England — segir Finni
frík á bls. 31 og hann er
líka í miðri Viku.
—W* f >-
& Á V.**’! IM M I * -
módelið sem við kynnum
á bls. 6.
Það þykir sæta furðu ef
maður með engin teljandi
drykkjuvandamál neitar
víni í boði. Þá verður
hann að bera fram viður-
kennda skýringu á því
hvers vegna hann neitar.
Meira um það á ‘s