Dagblaðið - 06.08.1981, Page 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
Hafsteinn Jónsson fréttaritari
Dagblaösins á Hellissandi og Rifi:
Indriði
uppi og
mðri
Indriði G. Þorsteinsson rithöf-
undur er oft ómyrkur bæði 1 máii og
skrifum sínum i dagblaðið Vísi.
Skömmu fyrir forsetakosningarnar
síðustu birti Vfsir skoðanakönnun
sem var heldur óhagstæð fyrir Albert
Guðmundsson, frambjóðanda
Indriða. Þá lét Indriði þau orð falla á
prenti í hita leiksins að Vísir ætti að
láta af birtingu skoðanakannana sem
gerðar væru eingöngu með hag
annarra frambjóðenda en Alberts
fyrir augum.
Við þessi orð reiddust mjög við-
kvæmir aðstandendur Vísis og var
brottrekstur Indriða frá blaðinu
orðaður um tíma. Nú hefur Indriði
sett heldur betur undir þann leka með
því að gerast stjórnarformaður
útgáfufélags Vísis. Ef ritstjórar Vísis
vilja í framtíðinni hirta strákinn
Indriða fyrir hortugheit er sjálfum
stjórnarformanni blaðsins að mæta i
sama stól. Er nema von að blaði
þessu haldist illa á ritstjórum!
Það eru margar hliðar á video-deil-
unni. íbúarfjölmargrafjölbýlishúsa í
Reykjavfk og raunar viðar hafa nú
komið sér upp innanhússjónvarps-
kerfi og er viða setið fram eftir öllum
kvöldum — jafnvel fram undir
morgun — við að horfa á kvik-
myndir, misjafnlega sómasamlegar.
Ekki er það þó alls staðar — um eina
fjölbýlishúsastöðina i Breiðholti
heyrðum við nýlega að um leið og
sjónvarpið lokaöi vegna sumarleyfa
hafi allar kvöldsendingar verið lagðar
niður. Annaðhvort er sjónvarp eða
ekki!
Þá gerist það í litlum þéttbýlis-
kjarna á Suðurlandi að kvikmyndir
eru sýndar eftir að dagskrá lýkur á
laugardagskvöldum. Er aukasýning-
unum venjulega lokið klukkan tæp-
lega tvö eftir miðnætti. Um það bil
mfnútu fyrir tvö spilar heimastöðin
fyrri hluta Rolling Stones-lagsins
„Satisfaction”, sfðan er sýnd vel
valin ,,blá” kvikmynd og að henni
lokinni er spilaður sfðari hluti Satis-
faction.
.... Og bræðurmr Mike og Danny Pollock eru farmr að hugsa hvor fyrir sinni
sólóplötunni.
DB-myndir.
M 1 \
úr Viðey
Haraldur Blöndal, lögfræðingur af
Engeyjarætt, kom þar að um daginn
þar sem Eirikur Ketilsson stórkaup-
maður og Finnur Torfi Stefánsson
lögmaður sátu og ræddu nýlega
skoðunarferð Alþýðuflokksins út í
Viðey. — Þeir Eirfkur og Finnur
Torfi eru báðir meiriháttar jafnaðar-
menn. — Haraldi þótti þetta ferðalag
Alþýðuflokksins skrýtið i miðri
súrálstíð og spurði því hvað f
ósköpunum kratar vildu sjá úti f
Viðey.
— Jú, sjáðu til, svaraði Eirfkur
með fsköldu augnaráði. — Frá
Viðey sjáum við niðurlægingu
Engeyjar frá alveg nýju sjónarhorni.
Ekki er öll
videovitleysan
eins
„Lífið snýst að
mestu um fisk”
„Ég er Reykvfkingur og fyrst var maður alltaf á leið í bæinn
Kvenf ólagið er
eitt hið elzta á landinu
„Félagslff á staðnum er talsvert og
má nef na kvenfélag, eitt af þeim elztu
á landinuog verkalýðs- og ungmenna-
félag,” sagði Hafsteinn ennfremur.
„Þá er hér starfandi Lionsklúbbur
sem er móðurklúbbur annarra slfkra
klúbba á Snæfellsnesi. Ungmenna-
félagið er að hressa upp á fþróttalffið
en það sem menn gera helzt í
tómstundum sinum er að dytta að
húsum sfnum. Hér búa allir í einbýlis-
húsum, annar máti þekkist ekki.
Helzta framkvæmd hreppsfélags-
ins hefur verið bygging skólahússins.
Þrfr efstu bekkir grunnskólans hafa
verið í félagsheimilinu Röst. en þeir
fara út fyrir fullt og allt f haust þegar
skólahúsið verður tekið f fulla
notkun.
Þá er verið að ljúka byggingu
tveggja raðhúsaíbúða í Rifi. Frá Rifi
eru gerðir út 6—7 stórir bátar með
yfirbyggt dekk þannig að þeir geta
sótt langt. Þá er og talsverð trilluút-
gerð.”
-JH.
Utan-
- Bubbi, Mikki;
Danni og
Utangarðsmenn með
nýjar plötur
Því ekki að bregða sér í bíó í Röst
Hellissandi? Það væri margt vitlaus-
ara sértu á ferð um Snæfellsnes. Og
kfkirðu í bfó þá sérðu Hafstein Jóns-
son sem sýnir myndina og selur þér
sætindi í hléi. Hafsteinn er einnig
fréttaritari Dagblaðsins á staðnum,
þannig að í leiðinni gætirðu gaukað
að honum frétt. Hann kæmi henni
rétta boðleið og þú sæir hana svarta á
hvftu næsta dag.
,,Ég hef verið alla vetur á Hellis-
sandi frá 1957 og alveg haft fasta
búsetu hér frá árinu 1965,” sagði
Hafsteinn er blaðamaður DB leit til
hans í bfó f Röst. Hasar var mikill í
bíóinu, enda blóðug lögreglumynd í
gangi og skothvellir glumdu f eyrum.
Ekki var annað að heyra á bíógestum
er þeir komu út en að vel hefði þeim
likað.
Fyrst alltaf á leið
íbæinn
„Ég er Reykvíkingur og fyrst var
maður alltaf á leið I bæinn. En konan
min er héðan og ég kynntist henni
hér, þannig að ég festist. Hún heitir
Ingveldur Sigurðardóttir og rekur
fataverzlunina Ingu á Hellissandi.
Við eigum fjögur börn á aldrinum
6—15 ára. Maður hefur komið
nálægt ýmsu á þessum árum og um
sjö ára skeiö vann ég á vöktum við
lórantækin í Lóranstöðinni á Gufu-
skálum.
Mannlff á Hellissandi er eins og
gengur og gerist í sjávarþorpum.
Lífið snýst að mestu um fisk og vinnu
í fiski. Þó er það að mfnu mati til
batnaðar að fólk er í auknum mæli
farið að taka sér sumarfrí og fer
mikið til útlanda. Það víkkar sjón-
deildarhringinn.”
Kfkirðu í bló i Röst þá hittirðu
Hafstein Jónsson fréttaritara DB á
Hellissandi.
DB-myndir Jónas Haraldsson.
Fullt af plötum frá
garðsmönnum
— Við eigum alveg óþrjótandi
efni og eina vandamálið er raunveru-
lega að við hendum miklu fleiri
lögum en við nokkurn tfmann
notum, sagöi Ásbjörn Kristinsson
Morthens, öðru nafni Bubbi
Morthens meðal annars er hann
kynnti nýútkomna sólóplðtu sína,
„Plágan” íÖðaliádögunum.
Varla er hægt annað en að taka
undir méð Bubba f þessum efnum.
Því að auk sólóplötunnar hans er
Mike Pollock með plötu f vinnslu.
Danny Pollock mun hugsa sér til
hreyfings á sólóplötuvettvangnum og
allar Ifkur eru á að Utangarðsmenn
hreiðri um sig í Hljóðrita með
haustinu og leiki þar inn á nýja plötu.
Plata Bubba hefur verið nokkuð
kynnt að undanförnu og mun nú
seljast grimmt í hljómplötuverzlun-
um. Færri sögur hafa farið af plöt-
um þeirra bræðra, Mike og Danna.
Þeir sendu að vfsu frá sér litla plötu
undir titlinum Dirty Dan’s project,
sem útleggst verkefni Danna sóða á
fslenzkri tungu, en síðan munu þeir
hafa haldið hvor í sfna plötuáttina.
Mike ætlaði að gera hreina kassa-
gftarplötu, en sfðan fékk hann Sigurð
Rúnar Jónsson, eða Didda fiðlu, til
liðs við sig og er sfðast fréttist höfðu
bætzt við bassi og trommur f þrem
laganna á plötunni. Minna er vitað
um gjörðir Danna bróður hans, en
hann mun þó vera með áform uppi
um aö gera rokkplötu, enda er hann
hreinræktaður rokkari fram í tær og
fingurgóma, eins og Bubbi orðaði
það.
Af framangreindu má sjá að Utan-
garðsmenn eru ekki hættir.
-ESE
FÓLK