Dagblaðið - 06.08.1981, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1981.
27
B
Sjónvarp
<§
Útvarp
LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 20,05:
LIFIÐ ER VEGASALT
—ef þú ferð ekki eftir kokkabókum yf irvalda
Leikritið f kvöld heitir „Lífið er
vegasalt” eftir Sómalíumanninn
Nuruddin Farah. Fjallar það um lög-
reglurlki og gang þess. Prófessor
nokkur situr inni fyrir að hafa ekki
hugsað og talað eftir kokkabókum yfir-
valda. Stjórnarskipti verða I landinu og
liðsforingi úr hinni nýju stjórn
heimsækir prófessorinn í fangelsið og
býður honum „góða stöðu”.
Nuruddin Farah er fæddur 1945 í
Sómaliu og starfaði í menntamála-
ráðuneyti lands slns. Eftir að hafa
lokið háskólanámi i Mogadishu,
höfuðborg Sómalfu, fór hann í fram-
haldsnám í London. Býr Farah nú á
Ítalíu og kennir við háskóla í Vestur-
Þýzkalandi, jafnframt þvi að skrifa
jöfnum höndum á sómölsku, ensku og
ítölsku. Sjálfur segist hann vera i
„löngu frii” frá heimalandi sinu þar
sem harðstjórinn Barre ræður ríkjum,
enda á hann yfir höfði sér fangelsisdóm
ef hann snýr heim. Eftir að bók hans,
Sæt mjólk og súr, sem er harðorð á-
drepa á stjórnarfar þar í landi, ásamt
því að vera spennandi skáldsaga, kom
út sá Farah sér ekki annað fært
en að fara i útlegð. Skáldsögur hans eru
nú orðnar fjórar og hefur þeim verið
vel tekið á Vesturlöndum. Afstaða hans
er einkum að skrifa á móti einræði,
kúgun og niðurlægingu í Afríku.
Nuruddin var staddur hér á landi i
april og hélt þá fyrirlestur um afriskar
bókmenntir i Norræna húsinu.
Með hlutverkin í „Lifið er vegasalt”
fara þeir Árni Tryggvason og Sigurður
Karlsson. Þýðinguna annaðist Heba
Júlíusdóttir. Leikstjóri er Hallmar
Sigurðsson og tæknimaður Ástvaldur
Kristinsson. Flutningur leiksins tekur
um 40 minútur.
-LKM.
Edda Erlendsdóttir er ungur, upprennandi pfanóleikari sem hefur haldið tónleika hér á landi og I París. í kvöld verður fluttur
pfanóleikur hennar I útvarpssal.
DB-mynd Gunnar Öm.
PÍANÓLEIKUR EDDU ERLENDSDÓTTURIÚTVARPSSAL
— útvarp kl. 20,45:
AÐEINS SEX ÁRA BYRJAÐI
HÚN AÐ UERA A PIANO
1 kvöld verður fluttur píanóleikur
Eddu Erlendsdóttur í útvarpssal. Á
efnisskrá er sónata op. 1 eftir
brautryðjandann Alban Berg, tilbrigði
op. 27 eftir Anton Webern og Þrír
pianóþættir op. 1 eftir Arnold
Schönberg.
Edda Erlendsdóttir, sem nú býr
með syni og eiginmanni í París, byrjaði
aðeins sex ára að læra á píanó. En það
var ekki fyrr en eftir að hún tók
stúdentspróf að hún Iagði píanóleikinn
eingöngu fyrir sig. Þá lauk hún einleik-
araprófi frá tónlistarskólanum hér og
fór síðan í t ónlistarháskólann í París f
fimm ár og lauk þaðan prófi 1979.
Edda hefur síðan haldið tónleika
bæði í París og hér heima. Siðustu
tónleikar hennar, áður en hún fór aftur
til Parísar, voru að Kjarvalsstöðum i
byrj un janúar. -LKM.
Nuruddin Farah — Hann dvelst I „sjálfviljugri” útlegð frá heimalandi sinu Sómaliu,
enda á hann yfir höfði sér fangelsisdóm ef hann snýr heim.
DB-mynd: Einar Ólason.
VIDEO
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Sa/a — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — bimi 15480.
Skólavörflustíg 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
GARÐYRKJUÁHÖLD
í ÚRVALI
Kolsýruhledslan s.f.
Seljavegi 12 — 121 Reykjavík — Síml 13381