Dagblaðið - 06.08.1981, Síða 28
........
....... *
Deilumar
um
Alþýöublaððð:
-
„Trúi að deilan leys-
ist innan skamms”
—segir Vilmundur Gylfason ritstjóri
— Málið er i biðstöðu en við á
Alþýðublaðinu gerum okkur góðar
vonir um að þessi deila leysist innan
skamms þannig að Alþýðublaðið
komi út að nýju, sagði Vilmundur
Gylfason ritstjóri Alþýðublaðsins er
DB hafði samband við hann í
morgun.
Vilmundur sagði að hann sem rit-
stjóri Alþýðublaðsins gæti ekki tekið
uppsagnarbréfin sem blaðamönnum
Alþýðublaðsins bárust í gær alvar-
lega. — Svo virðist sem að þessi
ákvörðun hefði verið tekin i fljót-
ræði, sagði Vilmundur.
Eins og greint hefur verið frá í DB
settu ritstjóri og blaðamenn Alþýðu-
blaðsins það skilyrði fyrir frekari
störfum að þeim bærist traustsyfir-
lýsing frá framkvæmdastjórn Alþýðu-
flokksins. Þessi traustsyfirlýsing
hafði ekki borizt er DB ræddi við Vil-
mund Gylfason i morgun. Formaður
framkvæmdastjórnar Alþýðuflokks-
ins, Bjarni P. Magnússon, hefur látið
hafa það eftir sér að samkomulagið
sem náðist um útgáfu Alþýðublaðs-
ins sl. föstudag hafl I raun verið
traustsyfirlýsing á ritstjóra og blaða-
menn. Hann standi ekki í því að
semja við ritstjórnina um það hvort
henni sé treystandi á hverjum degi.
Um þetta hafði Vilmundur Gylfason
það að segja að hann væri góður
vinur Bjarna P. Magnússonar og því
bæðist hann undan þvl að svara
honum í smáatriðum. — Alþýðu-
flokkurinn er lýðræðisflokkur, og
þar tala menn saman, sagði Vilmund-
ur og ítrekaði þá skoðun sína að þetta
mál myndi leysast innan skamms.
-ESE.
segirformadur
framkvæmdastjómar
Alþýðuflokksins
blaðsins þá væru þeir búnir að rifta
vinnusamningum sínum og þvf ekki
lengur I vinnu hjá blaðinu, a.m.k.
ekki á meðan störf lægju niðri.
Jón Baldvin Hannibalsson ritstjóri
er væntanlegur úr sumarfríi 10.
ágúst og á þá að leysa Vilmund
Gylfason af hólmi. -ESE.
EKKIBJARTSÝNN
— Ég get í fljótu bragði ekki séð
neina lausn á þessu máli og yfirlýs-
ingar Jóns Baldvins Hannibalssonar
ritstjóra Alþýðublaðsins gefa heldur
ekki tilefni til bjartsýni, sagði Bjarni
P. Magnússon formaður fram-
kvæmdastjórnar Alþýðuflokksins I
samtali við DBI morgun.
Bjarni sagði að deilurnar um
Alþýðublaðið hefðu nú þegar valdið
Alþýðuflokknum miklu tjóni, bæði
fjárhagslegu tjóni og eins tjóni sem
ekki væri mælt I peningum. Fram-
kvæmda stjórn Alþýðuflokksins liti
svo á að á meðan blaðamenn Alþýðu-
blaðsins störfuðu ekki að útgáfu
Aukinn tímaritalestur
ísjónvarpsleysinu
Tlmaritaútgáfa hefur staðið I miklum blóma I júlimánuði — þeim sjónvarpslausa. 1
stað þess að sitja fyrir framan imbann hefur landinn gripið til lesmálsins. Á laugar-
daginn gengur sjónvarpsöld f garð á nýjan leik og I framhaldi af þvf má búast við
að upplag hasarblaðanna mjatlist hægar úr hillunum.
DB-mynd Gunnar Örn.
„ Jákvætt að aðilar skyldu setjast niður og ræða málin,” segjr Hjörleifur iðnaðarráðherra:
Fríðsemd og spekt
á súrálsf undinum
r
—engin óvænt tíðindi
en nýr fundur boðaður
ínóvember
„Verulega jákvætt skref er þegar
aðilar að allharðri deilu setjast niður
og ræða ágreiningsmálin opinskátt
og I fullri hreinskilni. Ég held að eng-
inn hafi búizt við að á þessum fundi
yrði skrifað upp á einhvers konar
samkomulag,” sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra I
morgun um niðurstöður fundar um
súrálsmálið í gær. Ákveðið var að
efna til nýs fundar í Reykjavík 4.
nóvember næstkomandi. Þá munu
liggja fyrir endurskoðaðir reikningar
ÍSAL fyrir árið 1980. Margumrætt
fyrirtæki, Coopers & Lybrand,
vinnur að endurskoðuninni.
Ekkert óvænt gerðist á fundi
íslenzku viðræðunefndarinnar og
Alusuisse/ÍSAL I ráðherrabú-
staðnum. Aðilar gaukuðu formlega
gögnum hver til hins og skýrðu I
rólegheitum afstöðu hvor annars til
súrálsdeilunnar. Af íslands hálfu var
lögð fram ályktun ríkisstjórnarinnar
um súrálsmálið frá 16. júlf. Einnig
var kynnt ósk ríkisstjórnarinnar um
að álsamningurinn skuli endur-
skoðaður I heild.
Alusuissemenn lögðu fram við-
bótarupplýsingar um lagalega túlkun
fyrirtækisins á samningsbundnum
skyldum sínum gagnvart ÍSAL. For-
maður Islenzku viðræðunefndarinnar
telur þær engu breyta um stöðu
íslands gagnvart stórfyrirtækinu.
-ARH
Upphaf súrálsfundar: Hjörleifur iðnaðarráðherra við borðsendann. Vinstra megin
sitja m.a. Halldór H. Jónsson stjórnarformaður ÍSAL, Weibel forstjóri Alusuisse
og Ragnar Halldórsson forstjóri ÍSAL. DB-mynd Gunnar örn.
frjálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST1981.
íslendingurinii íMarokkó:
Sektinskal
greidd innan
attamánaða
„Samkvæmt þeim takmörkuðu upp-
lýsingum sem við höfum situr allt við
hið sama i þessu máli,” sagði Gunnar
Snorri Gunnarsson sendiráðsritari I
utanríkisráðuneytinu I morgun er hann
var spurður að því hvort eitthvað nýtt
væri að frétta af íslendingnum Ólafi
Bragasyni sem dæmdur var í átta
mánaða fangelsi I Marokkó nýverið.
Sektin sem Ólafur var dæmdur til að
greiða hefur ekki verið greidd enda
mun ekki liggja á að greiða hana fyrr
en átta mánaða fangelsisvist hans er
liðin. Sektin mun nema um 14 þúsund
krónum.
Þá sagði Gunnar Snorri að utanríkis-
ráðuneytinu væri enn ekki kunnugt
um hvort sá mánuður sem íslendingur-
inn sat í fangelsi I Marokkó áður en
dómur var kveðinn upp í máli hans
kæmi til frádráttar hinum átta mán-
uðunum eða hvort hann yrði að sitja í
fangelsiíáttamánuðiíviðbót. . SA
Jpi»| aw-s l J mmm
Q ö
UHI m NIN ;ur
í VIKU HVERRI
ÍDAG
ER SPURNINGIN:
í hvaða dálki, á hvaða blaðsíðu er
þessi smáauglýsing I blaðinu í dag?
Til sölu Cavaler ’74 hjólhýsi, kr.
25 þús., og Skoda ’74, kr. 1500.
Einnig til sölu fólksbflakerra.
Uppl. I sfma 26973 eftir kl. 19.
Hver er auglýsingasfmi Dag-
blaðsins?
SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU
BLAÐSINS Á FÖSTUDAG
Vinningur vikunnar:
Tíugíra
reiðhjól frá
Fálkanum hf.
Vmningur I þessuri viku er 10
gira Raleigh reiðhjói fró Fólkan-
um, Suðuriandshraut 8 I Reykja-
vík.
1 dag er birt ó þessum stað í
blaðinu spurning, tengd smóaug-
lýsingum blaðsins, og nafh heppins
óskrifanda dregið út og birt I smó-
auglýsingadólkum ó morgun.
Fylgizt vel með, óskrifendur, fyrir
ntestu helgi verður einn ykkar
glœsilegu reiðhjóli rikari.
hressir betur,