Dagblaðið - 13.08.1981, Qupperneq 1
7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981. — 180. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022.
Alþýðublaðsdeilan leystogritstjórn hefurstörfað nýju:
„KJARTAN HEFUR VAXIÐ
STÓRLEGA í MÍNUM AUGUM”
—segir Jón Baldvin Hannibalsson ritstjóri um þátt flokksformannsins
„Samkomulag náöist og við
snúum til vinnu í dag. Ritstjómin er
óbreytt frá því deilur hófust, enda
lýstu allir samstarfsmenn mínir yfir
að þeir vildu starfa áfram undir
minni stjórn,” sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, ritstjóri Alþýðu-
blaðsins í morgun.
Alþýðublaðsdeildan var sett
niður á fundi flokksstjórnar Alþýðu-
flokksins í gærkvöldi. Samþykkt var
tillaga Kjartans Jóhannssonar for-
manns mótatkvæðalaust til lausnar
deilunni. Slegið er föstu að
blaðstjórn beri að halda blaðaútgáfu
áfram, itrekað umboð flokksstjórnar
til blaðstjórnar og ritstjóra.
Flokksmenn og Alþýðublaðsmenn
hvattir til að halda áfram baráttu við
lýðræði í verkalýðshreyfingunni. Þá
er óbeint sagt að verkalýðsmála-
skrifin séu í samræmi við stefnuskrá
Alþýðuflokksins.
„Einn maður hefur vaxið stórlega
í mínum augum fyrir hans þátt í
lausn deilnanna. Það er Kjartan
Jóhannsson,” sagði Jón Baldvin.
Hann sagði samkomulagið fela í sér
að engin eftirmál yrðu vegp^
deilnanna. Þar á meðal það að blaða-
mennirnir eru teknir í sátt að nýju og
fá greidd laun frá þeim tíma er þeim
var sagt upp störfum.
Vilmundur Gylfason lýsti yfir á
fundinum í gær, að í tillögu Kjartans
felist stuðningur við áframhaldandi
störf hans á Alþýðublaðinu — og
stuðningur við ritstjómarstefnu hans
í sumar. Jón Baldvin sagði í morgun
að Vilmundur myndi vinna með rit-
stjórninni áfram um óákveðinn tíma.
Geir Gunnlaugsson flutti á
fundinum tiUögu tU stuðnings flokks-
forystunni. Hún var samþykkt
mótatkvæðalaust en Karvel Pálma-
son sat hjá á þeirri forsendu að ein-
hverjir „baksainningar” sem honum
mislíkuðu, hefðu verið gerðir miUi
striðandi fylkinga flokksins.
Þá flutti Guðmundur Haraldsson,
formaður Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur, tillögu þa sem sneitt
var talsvert að Vilmundi. Lagt var að
Guðmundi að draga tiUöguna til
baka svo friðarumleitanir fæm ekki
út um þúfur. Það gerði hann síðar á
fundinum.
Þingmennirnir Eiður Guðnason
og Jóhanna Sigurðardóttir vom
þungorðir í garð Vilmundar í ræðum
sínum. Ámi Gunnarsson var hins
vegar varkár og reyndi að bera klæði
á vopn. Eini ræðumaðurinn sem
eindregið lagðist á sveif með
Vilmundi var Jón Sæmundur
Sigurjónsson, deUdarstjóri í
heUbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu.
Fundarmenn sem DB ræddi við
sögðu Kjartan formann hafa varast
að minnast einu orði á ásakanir
VUmundar í hans garð undanfarna
daga. Tónninn í fundarmönnum var
misgóður þegar upp var staðið eftir
fundinn. „Algjör VUmundarsigur!”
sögðu ákveðnustu andstæðingar
VUmundar, allt annað en ánægðir.
-ARH.
Spjótið f ló í gegnum kappann
Svona fór fyrír þeim sem reyndu aö vera vondir við Gisla Súrsson þegar kappinn sá
var og hét. Gísli stakk óvini slna meö lagvopni eöa klauf í herðar niður. Spjótfló t
gegnum mann úrliði Eyjólfsgráa, eins og meðfyigjandi myndsýnir. Sá œtiaðiað vega
Gísla en Gísli stytti honum aldur I staðinn! Myndin er úr einu atriði (Jtlagans,
kvikmyndar ísfllm um Glsla Súrsson. Leikarinn heitirBjörn Ingvarsson, starfsmaður
Osta- og smjörsölunnar. Unnið er að frágangi Utlagans til sýningar.
Frumsýningardagur íReykjavlk erákveðinn 15. nóvember.
-ARH / DB-mynd: Helgi Már Halldórsson.
— sjá nánar á bls. 16-17
Stjómarfundur Flugleiða í dag um Atlantshafsflugið:
MEIRA ÁLAG LEGGST Á HINA
—ef einn rekstrarþáttur fellur út, segir Örn 6. Johnson
„Það’ er Ijóst að hver þáttur
rekstrarins er látinn bera fastan
kostnaö. Ef einn fellur út leggst
meira álag á hina,” sagði örn Ó.
Johnson, stjómarformaður
Flugleiða, í samtali við DB. Hann var
spurður hvað hæft væri i frétt
Tímans í morgun um að meira tap
yrði hjá Flugleiðum án Atlantshafs-
flugsins, svo næmi 2 milljónum
dollara.
„Ég hef nú ekki lesið þessa frétt
Timans og hef ekki neinar tölur fyrir
framan mig þannig að ég get ekki
dæmt um hvað hæft sé í henni,”
sagöi örn.
Stjómarfundur f Flugleiðum hófst
nú skömmu fyrir hádegi. J kjölfar
þess fundar verður skýrsla um
Atlantshafsflugið ásamt rekstrará-.
astlun send ríkisstjórninni. Ríkis-
stjórnin mun i framhaldi af því taka
ákvörðun um frekari stuðning vegna
Norður-Atlantshafsflugsins. .KMU.
É%
Löngnótt
áKeflavíkur-
flugvelli
— sjá bls. 10-11
Reykjavíkurleikamir:
KR-ingarslógu
30áragamalt
Íslandsmetí
lOOOmboðhlaupi
— sjá íþróttir í opnu
Fannstmig
veraaö
dreyma
— segirSvava
Johansen um
þátttöku í keppninni
„Miss Young
International”
— sjá viðtal
á FÓLK-síðu bls. 20