Dagblaðið - 13.08.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981.
3
N
„Áskirkja trónir nú i Laugarásnum eins og ofvaxinn fleygur, skip að sökkva eða öfugur skiðastökkpallur”. DB-mynd Ragnar Th.
ERU MÖGULEIKARNIR Á
EILÍFRISÆLU í RÉTTU HLUT-
FALLIVID KIRKJUSTÆRD?
—eru önnur verkefni guöi þöknanlegri en kirkjubyggingar?
Kleppshyltingur skrifar:
Nýlega hefur mikið veriö fjallað
um biskupskjör í fjölmiðlum og leiðir
það hugann að stöðu kirkjunnar yfir-
leitt. Hver er hún og hvert er mark-
miö hennar?
í Reykjavik virðist markmiðið tví-
mælalaust vera kirkjubyggingar og
þær sem stærstar og mest áberandi.
Óneitanlega minnir þetta fyrirbæri á
aflátsbréfin forðum. Skyldu þessir
söfnuðir halda að möguleikarnir á
eilifri sælu „fyrir handan” séu í réttu
þjónustu hjá
Bifreiða-
verkstæði
Ragnars
íBorgarnesi
— „gerðu við bflinn og
skiluðu frábæru verki
Hjörlelfur Einarsson, Torfufelli 27,
skrifar:
Ég vil koma á framfæri þakklæti
fyrir frábæra þjónustu sem mér var
veitt í Borgarnesi á Bifreiðaverkstæði
Ragnars, föstudaginn 7. ágúst.
Þannig var að ég og fjölskylda mín
vorum að koma norðan frá Ákureyri,
á leið til Reykjavíkur. Er við áttum
stutt eftir í Borgarnes komum við á
grýttan vegarkafla. Einn steinninn
reyndist vera í stærra lagi fyrir mína
belgsíðu „Impölu” og gataði hann
bæði sjálfskiptinguna og bensíntank-
inn.
Ég neyddist til þess að auka
hraðann svo að við kæmumst niður í
Borgarnes áður en bensintankurinn
tæmdist. Það haföist á 5 minútum og
50 lítrum af bensini að komast á
smurstöð Esso.
Þar hitti ég góðan mann sem benti
mér á verkstæði steinsnar frá og
þangað komst ég á síðustu dropun-
um. Þar sagði ég Ragnari Jónssyni,
er rekur verkstæðið, mínar farir ekki
sléttar. Þrátt fyrir það að klukkan
var 15 á föstudegi og Ragnar og
aðstoðarmaður hans ætluðu að fara
að hætta, þá tóku þeir mér með alúð,
gerðu við bilinn og skiluðu frábæru
verkiá4tímum.
Einnig vil ég þakka starfsmannin-
um á Esso fyrir hans viðbrögð, því
hann sagði mér að koma til sin aftur
ef alltannað þryti.
Á meðan viðgerðin stóð yfír
notuðum við tækifærið og
skoöuðum Borgarnes sem er fagur
staður og margt þar að sjá. Klukkan
rúmlega 19 um kvöldið héldum við
áfram ferð okkar með biltnn í topp-
standi og vonum við að Ragnar og
aðstoðarmaður hans hafi notið
góðrar helgar.
Við óskum þeim báðum gæfu og
gengis i framtiðinni.
hlutfalii við kirkjustærð? Eftir því
sem líkurnar minnka þarf þvi stærri
kirkju til þess að bjarga málunum.
Söfnuðir Hallgrímskirkju og Ás-
prestakalls virðast hafa álitið sig
þurfa mun meiri kirkjubákn en
gengur og gerist hjá öðrum.
Kristni boðar kærleik, bræðralag
og samheldni en ég hef hvergi séð
neina áherzlu lagða á samkeppni i
fasteignum, né að tröllauknar kirkjur
séu guði þóknanlegri en svo margt
annað.
Ef trúræknin felst þarna að baki,
væri þá ekki nærri lagi að söfnuðirnir
sameinuðust um kirkjur sinar, sem
/-■...........
hvort eð er standa tómar nema á stór-
hátiðum? Þá þyrpist fólk til messu,
rétt eins og þegar jafnvel níðingarnir
voru „góðir” við munaðarlaus börn,
niðursetninga og aðra umkomulausa
um jól hér i fyrndinni. Ágætt íslenzkt
orð lýsir þess háttar trúrækni og ná-
ungakærleik og þaö er: hræsni.
Áskirkja trónir nú i Laugarásnum
eins og ofvaxinn fieygur, skip aö
sökkva eöa öfugur skiðastökkpallur.
Hefði nú ekki verið meiri og sannari
kristindómur fólginn 1 því að deila
kirkju með Laugarnesi eða Langholt-
inu og láta þetta fé renna til geö-
sjúkra eða vangefinna? Ekki skortir
peningana þegar eitthvað fáránlegt
bruðl er á ferðinni og vafalaust hefði
mátt vinna margvísleg verkefni guði
þóknanlegri en t.d. Áskirkju.
Meðal annars hefði sjúkrahús fyrir
aldna verið drottni veglegri kirkja —
og líklegagildara „aflátsbréf’.
Raddir
lesenda
Þaö bezta og hent-
ugasta fyrir þig og
barniö þitt er hinn
viðurkenndi Snuglit
buröarpoki.
VERZL.
MÓÐURÁST
HAMRABORG 7
KÓPAVOGI
SMI 45288
ðpurmng
dagsins
Hvað finnst þór um
deiluna vegna
útkomu grfnblaðs
Alþýðublaðsins?
Rlchard Þorgeirsson umboösmaour
Mér finnst hún stórkostlega skemmti-
leg. Vilmundur er ekkert blávatn.
Hann er alltaf skemmtilegur.
Pálmi Sigurðsson húsasmiður: Mér
finnst óeðlilegt að beita slikri rit-
skoðun.
Katrin Jónsdóttir húsmóðir: Mér finnst
að það hefði átt að koma út athuga-
semdalaust.
Elnar Guðnason bilamálari: Það hefði
verið allt í lagi að þaö kæmi út athuga-
semdalaust.
Karl H. Björnsson kennari: Mér finns’
hún bara hlægileg. Blaðið hefði átt aó
fá að koma út athugasemdalaust.
Jón Stefánsson rennlsmiður: Mf
finnst hún hlægileg. Sennilega verðu
hún til þess að kljúfa Alþýðuflokkinn