Dagblaðið - 13.08.1981, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981.
[( Erlent Erlent Erient Erlent
- -
Erf iðleikamir í f luginu úr sögunni?
Búizt við eðlilegrí
flugumferö nú í dag
— Dregið hef ur mjög úr stuðningi við verkf allsmenn f
Bandaríkjunum — Alþjóðasamtök f lugumf erðarstjóra
þinga í Amsterdam í dag
Reiknaö er með að flug yfir
Norður-Atlantshaf geti að mestu
orðið með eðlilegum hætti í dag eftir
tveggja daga öngþveiti á flugvðllum
beggja vegna Atlantshafsins sem
skapaðist vegna þeirrar ákvörðunar
kanadiskra flugumferðarstjóra að
afgreiða ekkert flug til eða frá
Bandaríkjunum.
Framvinda málsins kann að ráðast
á fundi alþjóðasamtaka flugum-
ferðarstjóra sem hefst ( Amsterdam í
dag. Alls eiga 59 lönd aðild að
samtökunum.
Höfuðviðfangsefni þessa fundar er
talið munu verða spurningin hvort
öryggi flugvéla i lofthelgi Bandarikj-
anna sé nægilega tryggt eftir að tólf
þúsund flugumferðarstjórar hófu
verkfall þar í landi fyrir ellefu
dögum.
Þúsundir farþega voru stranda-
glópar beggja vegna Atlantshafs
þegar flugumferðarstjórar á Gander
á Nýfundnalandi neituðu að stýra
flugi yfir Atlantshafið, á þeim for-.
sendum að öryggi flugvéla í lofthelgi
Bandaríkjanna væri ekki nægilega
tryggt-
Sá flöskuháls hvarf í gærmorgun
þegar kanadísk yfirvöld hétu því að
kanna öryggismálin.
Síðar tilkynnti bandarisk flugum-
ferðarstjórnin, FAA, um 189 flug-
ferðir i morgun með alls um 65
þúsund farþega.
Lynn Helms, formaður FAA,
sagðist reikna með að seinkun á flugi
yfir Atlantshaf yrði ekki meira en
hálftími en aðrir héldu því fram að
seinkunin yrði um þrjár klukku-
stundir.
Lewis, samgönguráðherra Banda-
ríkjanna, ítrekaði í gær þá stefnu
Reagn-stjórnarinnar að neita að
semja við verkfallsmenn og sagði sem
fyrr að verkfallsmenn yrðu ekki
endurráðnir.
Drew L. Lewis samgönguráðherra og Lynn Helms, yfirmaður bandarisku flug-
málastjórnarinnar, FAA, á fundi með fréttamönnum.
Getum boðið MF gröfur
frá Svíþjóð á ótrúlega hag-
stæðu verði.
Traktorsgröfur
Karl og Diana ganga um borð i Britai níu i Gibraltar þar sem brúðkaupsferð þeirra hófst.
SADA T BOÐIÐ UM BORÐ í BRITANNÍU
— Egyptalandsforseti snæddi kvöldverð með Karli og Dionu um borð
ísnekkju þeirra
Upplýsingar hjá
K. Jónsson & Co,
símar 12452 - 26455.
FJÖLRITUN
LJÓSRITUN
VÉLRITUN
STENSILL
ÓÐINSCÖTU 4 -REYKJAVÍK - SIMI24250
Brit-umía, snekkja þeirra Karls prins
og Diónu prinsessu af Wales, sigldi í
nótt frá Port Said i Egyptalandi dl
óþekkts áfangastaðar. Snekkjan sigldi
suöur Súezskurðinn i átt til Rauða
hafsins.
Meðan snekkjan hafði viðdvöl buðu
ungu hjónin Sadat Egyptalandsforseta
til kvöldverðar um borð. Það er fyrsta
opinbera móttakan þeirra frá því að
þau voru gefin saman í London fyrir
hálfum mánuði. Sadat veitti Karli
prins lýðveldisorðuna, æðsiu orðu sem
Egyptar veita útlendingum sem ekki
eru þjóðhöföingjar.
Mikil flugeldasýning var haldin í
höfninni í Port Said til heiðurs Karli og
Díönu. Síðan lék hljómsveit
snekkjunnar lög til heiðurs Egypta-
landsforseta. Karl prins og Díana
BANDARÍKJAMENN
A MÓTISAMNINGI
UM AFVOPNUN í
HIMINGEIMNUM
Bandariskir embætdsmenn sögðu í anna, í gær. Þar varaði Gromyko við
gær aö stjórn Reagans myndi nær því að hættan á hernaði úti í
örugglega hafna tillögum Sovét- geimnum hefði nýverið aukizt.
manna sem geröu ráð fyrir samningi Árið 1967 undirrituðu bæði Sovét-
er bannar öli vopn úti í geimnum. menn og Bandaríkjamenn samkomu-
Andrei Gromyko, utanríkisráð- lag þar sem lagt var bann við að
herra Sovétríkjanna, setd tillöguna kjarnorkuvopnum eða öðrum gjör-
fram í bréfi til Kurt Waldheims, eyöingarvopnum yrði komið fyrir úd
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- ígeimnum.
prinsessa kysstu Sadat bæði í kveðju-
skyni og var ekki annað að sjá en ákaf-
lega vel hefði farið á með þeim.
Brúðkaupsferð sína meðBritanníu
hófu þau Karl og Díana í Gíbraltar.
Þaðan sigldu þau framhjá Sardiníu og
um grísku eyjarnar.
Karl prins sendi Constandne
Karamanlis, forseta Grikklands, skeyti
þar sem hann þakkaði honum fyrir þær
ánægjulegu stundir sem þau hjónin
hefðu átt á siglingu hjá grisku
eyjunum. „Við áttum mjög friðsama
og ánægjulega daga og við kunnum
stórvel að meta velvilja gríska flotans
og lögreglunnar,” sagði í skeydnu.
í öðru skeyti til Georges Rallis, for-
sædsráðherra, sagði Karl prins að hann
og kona hans myndu ætið minnast
brúðkaupsferðar sinnar í grískri
landhelgi með mestu ánægju.
Ekki samið um
nif teinda-
sprengjuna
Embættismenn bandaríska utan-
ríkisráðuneydsins sögðu í gær að sú
ákvörðun Bandaríkjastjórnar að hefja
framleiðslu nifteindasprengju yrði ekki
hluti af því sem samið yrði um í
viðræðum stórveldanna um takmörkun
kjarnorkuvígbúnaðar í Evrópu.
„Það var leiðinlegt að við gátum
ekki fengið þig um borð meðan á
siglingu okkar stóð í grlskri landhelgi,
en við skiljum ástæðurnar fyllilega,”
sagði í skeytinu.
Rallis hafnaði boði þeirra Karls og
Díönu vegna þess að hann hafði þegar
ráðstafað tíma sínum. Rallis var
viðstaddur brúðkaup Karls og Díönu í
London í stað Karamanlis forseta, sem
sagður var veikur. Grískir fjölmiðlar
sögðu hins vegar að Karamanlis hefði
ekki viljað fara til London vegna þess
að Konstantín, fyrrverandi konungi
Grikklands, var einnig boðið.
20 ára afmæli
Berlínarmúrsins í dag:
Ólík
viðbrögð
Berlínarbúa
Berlínarbúar minnast þess í dag að
tuttugu ár eru liðin frá því að Berlínar-
múrinn var reistur. Þessa atburðar er
minnzt með mjög ólíku mótí sitt
hvorum megin múrsins. í A-Berlín er
flaggað og hátíðahöld en í V-Berlín er
múrinn kallaður fangelsisveggur en
austan megin múrsins er hann nefndur
„varnarveggur gegn fasistum”.