Dagblaðið - 13.08.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981.
G
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
REUTER
Foreldrar unga
flóttamanns-
ins eru
farnir heim
Foreldrar þrettán ára gamals skóla-
drengs frá Úkraínu, sem varð valdur
að millirikjadeilu er hann neitaði að
snúa heim frá Bandarikjunum til
Sovétríkjanna, hafa nú haldiö heim til
Moskvu án sonar síns.
Foreldrar drengsins, Michael og
Anna Polovchak, flugu frá Washing-
ton til Moskvu í gær með sovézkri
Aeroflot-flugvél. Þau flutti til Chicago
i janúar 1980 en þeim féll ekki lífið í
Bandaríkjunum. Þegar þau ákváðu að
snúa aftur heim vildi sonur þeirra ekki
fara heim með þeim og bað um hæli í
Bandaríkjunum sem pólitískur flótta-
maður.
Sovézk yfirvöld hafa sakað Banda-
ríkjamenn um að halda drengnum sem
gísl. Lögfræðingur foreldra drengsins
segir að foreldrarnir muni halda áfram
tilraunum sínum til að fá yfirráð yfir
drengnum þannig að honum verði gert
að halda heim til Sovétrikjanna.
Suður-Afríka:
Sprengingar
og óeirðir
Fjórar öflugar sprengjur sprungu
nærri herstöð við Pretoríu í Suður-
Afríku í gærkvöldi, að því er talsmaður
varnarmálaráðuneytis landsins skýrði
frá.
Áður hafði lögreglan beitt táragasi
til að dreifa um eitt þúsund manna
hópi blökkumanna sem staðið haföi
fyrir óeirðum í Höfðaborg.
Verkamenn vilja vinna átta laugardaga kauplaust:
Eining friðmælist
við ríkisstjómina
— Kaþólska kirkjan fengin til að miðla málum í deilu
st jórnvalda og óháðu verkalýðsf élaganna
Eining, samband hinna óháðu
verkalýðsfélagaí Póllandi, hefurrétt
út sáttahönd gagnvart stjómvöldum
landsins og hvatt til þess að endi
verði bundinn á verkföll og mótmæli
í landinu vegna matvælaskortsins.
Stjórn Einingar, sem kom saman
til fundar í Gdansk i gær, hvatti tíu
milljónir félaga í samtökunum til
þess að fórna átta af frídögum
sínum á laugardögum og leggja
þannig lið baráttunni gegn efnahags-
öngþveitinu f landinu.
Að undanförnu hefur Eining sætt
harðri gagnrýni frá stjórnvöldum
fyrir aö auka á erfiðleikana í landinu
með því að standa fyrir stöðugum
mótmælum. Jafnframt hafa stjórn-
völd gefið Einingu að sök að ætla sér
að verða pólitískt afl sem tekið gæti
við völdum i landinu.
Stanlislaw Kania, formaður
pólska kommúnistaflokksins, gekk í
gær á fund Jozefs Glemp, hins nýja
yfirmanns kaþólsku kirkjunnar í
landinu eftir að hafa óskað eftir þvi
að kirkjan reyndi að miðla málum i
deilunni.
Stjórnvöld hafa að undanfömu
lagt áherzlu á nauðsyn þjóðareining-
ar og sagt að ella kunni sjálfstæði
þjóðarinnar að vera í hættu og hefur
það almennt verið túlkað á þá leið að
stjórnvöld vari verkalýðshreyfinguna
við því að ef haldið verði áfram á
sömu braut kunni að koma til
sovézkrar íhlutunar í Póllandi.
Lech Walesa, leiðtogi Einingar,
sagði að verkalýðsleiðtogarnir væru
þeirrar skoðunar, að nú væri þýðing-
armest aö bæta lífskjörin i landinu,
býðingarmeira heldur en aö vinna að
auknum réttindum verkamanna.
En jafnframt því sem Eining rétti
út sáttahönd þá varaði hún stjórn-
völd alvarlega við því að halda áfram
áróðri gegn óháðu verkalýðs-
hreyfingunni og hótaði ella tveggja
daga verkfalli prentara í næstu viku.
Kania, formaður pólska kommúnistaflokksins, og Jaruzelski forsætisráðherra. Eining hcfur nú rétt þeim sáttahönd.
Bandarískur hermaður á verði við herflugstöðina 1 New Hampshire. Þar eru banda-
rísku F—16 herþoturnar sem stjórn Reagans hefur margsinnis að undanförnu frestað
að afhenda ísraelsmönnum vegna óánægju með harðlinustefnu Begins, forsætis-
ráöherra ísraels.
Noppy
Heilsubó
gefur yöur ótal möguleika til notkunar, eru góðar fyrir heilsu yóar, þær má
nota heima, í sundlaugunum, ígufubaði, í garöinum, á ströndinni o.s.frv.
Töfflumar eni léttar og laga sig eftir fætinum, örva blóö-
rásina og auka velKðan, þola olíur og fitu, auðvelt að
þrífa þær.
Fáanlegar í 3 litum: Gult, rautt, blátt
Stærðirnr. 33—44
PÓSTSENDUM
Verð kr. 79,70
Skóverzl Þórðar Péturssonar,
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181.. Laugavegi 95. sími 13570