Dagblaðið - 13.08.1981, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981.
r . ................ ..............
Hasar f ommanna f estur á f ilmu:
dSU TOK MANNINN
SUNDUR í MIÐJUNNI
Kvikmyndun Útlagans, sögu kapp-
ans Gísla Súrssonar, er lokið. Gróf-
klipptri vinnukópíu af myndinni var
rennt í gegnum vélar eins kvikmynda-
húss höfuðborgarinnar í fyrri viku.
viðstaddir voru starfsmenn tsfílm,
fyrirtækisins sem framleiðir Útlag-
ann, og leikarar. Að sögn var mann-
skapurinn dável hamingjusamur með
árangur strits sins undanfarna
mánuði.
Fyrir liggur að fullvinna Útlagann.
Heildarsýningartíminn er áætlaður
110 minútur og frumsýningardagur-
inn ákveðinn sunnudagurinn 13.
nóvember. í vetur er einnig ráögert
að sýna myndina i nágrannalöndun-
um. Gnda þarf hún aö spjara sig vel á
alþjóöamarkaöi til aö bústinn
skuldapúkinn í rjáfri ísfilm horist og
rýrni. Vonazt er til að megrunin
gangi fljótt og vel fyrir sig. Ekki
verður öðru trúað en Útlaginn fái
góöa aðsókn. Myndin er langviða-
mesta fyrirtæki íslenzkrar kvik-
myndagerðar hingað til — og um leið
dýrasta.
Meðfylgjandi myndir tók Helgi
Már Halldórsson þegar unnið var að
kvikmyndun Útlagans í sumar.
Sumar myndanna eru teknar i Móru-
dal á Barðaströnd. >ar var reistur
bær Auðar, heittelskaðrar konu
Gísla Súrssonar. í Gíslasögu er
Auðarbær í Geirþjófsfirði, inn af
Arnarfirði. Þar leyndist Gisli gjarnan
stund og stund þegar hann var á
flótta undan óvinum sinum. Eða eins
og segir á einum stað:
„Þegar er vorar, fer Gisli aftur 1
Geirþjófsfjörð og má þá eigi lengur
vera í brott frá Auði, konu sinni; svo
unnast þau mikið; og er nú þar um
sumaríð á laun og til þess, er
haustar.”
Enginn má við margnum. Og í
sögulokin ná þrjótarnir Eyjólfur grái
Gfsli Súrsson og þræll hans, ÞArflur hinn huglausi (Doddi skrasfa) mað taumhald á burðarklárum sfnum. Amar
Jónsson leikur Gfsla, Gestur E. Jónasson laikur Þórfl.
Útlaginn
frumsýndurí
Reykjavík
15. nóvember
og menn hans að vinna á Gísla. Þaö
gekk þó ekki andskotalaust. í úrslita-
bardaganum nær Gisii að drepa
mann og annan og særa fleiri. Mætti
sérhver úrbeiningamaður í sláturhús-
um nútimans vera hreykinn, kynnu
þeir að bregða jafn listilega sveðjum
og kappinn Gisli: „Hann snarar í
móti Helga og reiðir upp sverðið og
rekur á lendarnar, svo að sundur tók
manninn i miðju, og fellur hvor
hluturinn ofan fyrir kleifarnar.”
Þannig afgreiddi Gísli Súrsson,
Njósnar-Helga. Skömmu siðar gerist
þetta:
„Maður er nefndur Sveinn, er
fystur réðst í móti Gísla. Gisli heggur
til hans og kiýfur hann í herðar niður
og fleygir honum ofan fyrir hamar-
inn. Nú þykjast þeir eigi vita, hvar
staðar næmi manndráp þessa
manns.”
Auður lagði bónda sínum lið í bar-
daganum. Eyjólfur grái ætlaði að
laumast að Gísla. Auði bar þar að og
lamdi á klær Eyjólfi með lurki.
Hrataði hann ofan af klettinum
aftur. Þá varð Gísla að orði:
„Það vissi ég fyrir löngu, að ég var
vel kvæntur, en þó vissi ég eigi, að ég
væri svo vel kvæntur sem ég er.”
Gaman er að lesa um fornmanna-
hasarinn í bókum. Ekki verður síður
gaman að sjá hann á hvíta tjaldinu.
-ARH.
Karl Ágúst Úlfsson, nýútskrífaflur úr Leiklistarakóla rikisins, lelkur sjálft
Hergilseyjarfiflífl, son Ingjalds og Þorgerflar I Hergllsey. „Helgl hát sonur
Ingjalds og var afglapi sem mestur mátti vera og fHI; honum var sú
umbúfl veitt, afl raufarsteinn var bundinn vifl hálslnn, og beit hann gras
úti sem fánaður og er kallaflur Ingjaldsfifl," segir sagan. Rflifl er mafl
hattkúf á hausnum; þess tíma höfuflbúnafl — afl minnsta kosti fyrir af-
glapa.
Tímarnir
tvennir
í höfuðbúnaði
Nútimalegri höfuflbúnaflur. Ökunnir geetu haldifl afl hár vssri kominn
friskíegur liðsmaður frelsissamtaka Palestfnumanna — PLO. Vifl nánari
skoflun kemur I Ijós afi svo er ekki. Þetta er bara hann Alan Whibley, ráfl-
gjaf i ísfilmmanna I taeknibrellum I Údaganum.
Jón Þórisson, leifltogi leikmynda-
gerflarmanna, vifl Auðarbeeinn
fullbyggðan. Kristján Hjartarson
frá Tjöm húkir I dyragnttinni.
Jeppinn i baksýn tilheyrir afl vfsu
ekki búi Auflar og Gfsla en er
góflur samt til síns brúks.
Bær
byggður
handa
Auði
V