Dagblaðið - 13.08.1981, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981.
Svava Johansen um for sína til Manila:
Hélt mig væri að dreyma
— en ferðin var ógleymanleg, fékk tilboð frá kvik
myndafyrirtœki fyrir nokkrum dögum
„Þessi ferð mín til Manila er
ógleymanleg og ég myndi ráðleggja
öllum stúlkum sem þess eiga kost að
taka þátt í þessari keppni,” sagði
Svava Johansen, 17 ára, í samtali við
Fólk-síðuna. Svava er nýlega komin
heim frá Filippseyjum þar sem hún
tók þátt í keppninni Miss Young
International. Eins og DB skýrði frá
hlaut Svava einn eftirsóknarverðasta
titilinn, sem veittur er fyrir aðal-
keppnina, Miss Talent. Þá lenti hún í
sjötta sæti aðalkeppninnar. „Ferðin
tók alls þrjár vikur og voru tveir
dagar af þeim tíma í London. Ég fór
þetta svo óvænt að í fyrstunni hélt ég
að mig væri að dreyma. Landið sjálft
minnti mig á Ameríku og þá sérstak-
lega Hawaii,” segir Svava. „Þarna
töluðu allir ensku og sjónvarpið var
mjög amerískt.”
Kom f ram í
auglýsingum
í sambandi við keppnina voru
stúlkur notaðar í auglýsingamyndir
og var Svövu boðið að vera í aug-
lýsingu fyrir Flugfélag Filippseyja.
afsalaði sér titlinum. Það var vegna
þess að hún hafði gert einhvem
samning við fyrirtæki 1 Paris en
stúlkumar mega ekki vera samnings-
bundnar. Ég veit ekki hvemig þetta
fór, þar sem ég fór heim daginn eftir
keppnina,” segir Svava.
Ef hún hefði afsalað sér titlinum
hefði Svava farið sjálfkrafa í fimmta
sæti keppninnar. En Svava hlaut titil-
inn Miss Talent — hvemig fór það
fram?
Ætlaði aldrei
að vera með
„Það voru 30—35 stúlkur sem
tóku þátt í þeirri keppni og upphaf-
lega ætlaði ég alls ekki að vera með.
Við réðum því sjálfar. Próf fór
fram tveimur dögum fyrir keppnina
og ég var ekki með. Allt í einu
langaði mig þó að spreyta mig en það
var sama daginn og keppnin átti að
fara fram. Fyrst var sagt að það
væri orðið of seint en allt í einu var
mér sagt að koma i próf. Þarna
komst ég í sjónvarpsþátt þvi sjö
atriði úr keppninni vora sýnd 1
peningana mína. Sem betur fór var ég
með eitthvað á mér þegar töskunni
var stolið en hún var í herbergini'
minu. Ég kærði strax þjófnaðinn og
öryggisverðir komu og leituðu um
allt en ekkert fannst. í heildina kom
þó ekkert leiðinlegt fyrir. Fólkið
þarna var mjög skilningsrfkt og vina-
legt. Blöðin og sjónvarpið sýndi
okkur einnig mjög mikinn áhuga og
mér fannst eins og miklu meira væri
gert úr þessari keppni i öðrum
löndum heldur en hér. Ungfrú
Holland kom með kort sem hún gaf
öllum en á það var ritað nafn hennar
og heimilisfang auk þess sem mynd
var af henni. Mér fannst það mjög
sniðugt,” segir Svava. Þess má að
lokum geta að Unnur Steinson, sem
stóð sig mjög vel í þessari sömu
keppni í fyrra, fór utan með Svövu
og krýndi m.a. hana Miss Talent.
-ELA.
Unnur Steinson, sem tók þátt f keppninni f fyrra, óskar Svövu til hamingju með
titilinn „Ungfrú hæflleiki”. Hægra megin er kynnir keppninnar, Eddie Macardo.
Svava Johansen, fulltrúi Islands I keppninni um „Miss Young International”
kemur fram I sjónvarpsútsendingu i Manila á Filipseyjum: „Hélt mig væri að
dreyma.”
„Þetta voru margs konar auglýsingar
allt frá ís-auglýsingum upp í flug-
félagsauglýsingar. Keppnin stóð yfir
allan tfmann á meðan ég var úti.
Samkomulag milli stúlknanna, sem
voru 43, var einnig mjög gott. Engin
öfund var sjáanleg og við vorum allar
góðar vinkonur. Annars héldu stúlk-
urnar sig frekar í hópum eftir því frá
hvaða heimshluta þær voru. Til
dæmis vorum við frá Norðurlöndun-
um mikið saman,” sagði Svava.
Var í svitabaði
— Hvernig leið þér í sjálfri keppn-
inni?
„Hún var ofsalega spennandi. Ég
var i svitabaði allan timann. Fyrst
komum við fram í þjóðbúningum og
kynntum okkur og síðan í sam-
kvæmiskjólum. Eftir það voru valdar
15 stúlkur í úrslitakeppnina. í milli-
tíðinni var sýnd mynd á sjónvarps-
skermi sem tekin var daginn áður,
þar sem við voram á sundbolum.
Eftir að valdar höfðu verið 15 stúlkur
komu þær síðan fram á sundbolum.
Stúlka númer eitt var frá Ítalíu og
kom um tíma til greina að hún
honum. Ég sýndi dans, sem ég samdi
ásamt systur minni, og við nefndum
Bleika pardusinn,” segir Svava.
Eftir keppnina fékk hún sex tilboð
um margvísleg sýningarstörf og hefur
hún í hyggju að taka einhverju þeirra,
næsta sumar. Þá var hringt heim til
Svövu nú fyrir nokkrum dögum og
henni boðið að koma í reynslukvik-
myndatöku hjá ameriska kvikmynda-
félaginu Everest. „Þeir buðu mér að
koma út núna í september en ég ætla
ekki að fara. Ef mig langar til að
koma þá þarf ég ekki annað en að
hringja og þeir senda mér farseðil-
inn.”
Það er augljóst að heilmikil ævin-
týri fylgja keppnisferð sem þessari en
kom ekki neitt leiðinlegt uppá í ferð-
inni?
Handtösku meö
peningum stolið
„Jú, við vorum til dæmis alltaf
með lífvörð með okkur, gátum ekki
einu sinni farið á klósett án hans. Svo
var ýmsu stolið, það var stolið af mér
handtösku þar sem ég geymdi
Nýr töfrateningsmethafi:
Jafhvel fullorðnir
gripnir af œðinu
— segir Kjartan Halldórsson, nýkominn
frá Luxemborg, sem raðaði
teningnum á 1 09 mín.
„Töfrateningurinn er nú orðinn
vinsælasti leikurinn í Luxemborg.
Það er óhætt að segja að annar hver
krakki eigi svona tening, og jafnvel
fullorðnir era gripnir af æðinu”.
Þetta sagði Kjartan Halldórsson,
17 ára, en hann er nýkominn frá
Luxemborg og kom beinustu leið til
okkar á Dagblaðið í því skyni að
bæta töfrateningsmetið. Sem honum
Síðasta metið var sett af Indriða
Björnssyni, 13 ára á 1:45,5 mínútum.
í fyrstu tilraun tókst Kjartani hins-
vegar að slá metið með 1:40,0 mínút-,
um og þeirri siðustu með 1:09
mínútum.
„Ég hef þó raðað honum á 0:55
minútum heima, en það virðist alltaf
ganga bezt heima hjá sér,” sagði
Kjartan ánægður.
FÖLK
Vatnsgeymirinn
á Homafirði
Stór og mikill vamsgeymir gnæfir
yftr Höfn í Hornaftrði. Ekki er langt
síðan hann var reistur. Auglýsendur
hafa rennt hýra auga til hans enda er
hann mjög áberandi. Segir sagan að
forráðamenn fyrirtækis eins sem
flytur inn vatnslagnir haft boðið
bæjaryftrvöldum á Höfn greiðslu
fyrir að fá að mála auglýsingu á
vatnsgeyminn.
Þegar sú beiðni spurðist út er sagt
að herstöðvaandstæðingar haft
brugðizt hart við og boðið betur en
fyrrnefnda fyrirtækið. Hugðust her-
stöðvaandstæðingar mála áletrunina
„fsland úr Nato, herinn burt” á
vatnsgeyminn.
Ekki er vitað til þess að vatns-
geyminum eftirsótta hafi enn verið
úthlutað til auglýsenda.
Golfmenn
úr ISl?
Verðlaun í golfmótum hérlendis
hafa löngum þótt vera á mörkum
þess sem áhugamannareglur ÍSÍ
heimila. Bílar, utanlandsferðir, gos-
drykkir, fatnaður o.fl. hafa verið í
boði. Golfmenn hafa hins vegar
varað sig á því að stíga til fulls fram
fyrir áhugamannareglurnar, með því
að bjóða hrein peningaverðlaun, allt
fram til síðustu helgi. Þá vora í hinu
svokallaða Grant’s Open-golfmóti,
sem fram fór á Nesvellinum,
peningaverðlaun í boði fyrir þann
sem tækist að fara holu í höggi.
Námu þau verðlaun 1.000 krónum en
ekki er okkur kunnugt um að nokkr-
um haft tekizt að vinna til þeirra.
Hestamönnum hefur verið haldið
utan ÍSÍ fyrst og fremst vegna
peningaverðlauna á hestamótum. Nú
virðist sem stjórn ÍSÍ haft fengið
ástæðu til að endurskoða aðild Golf-
sambandsins að heildarsamtökum
íþróttamanna.
Mogginn
úti að aka
Talsverðar breytingar hafa orðið á
stöðunni í blaðaheiminum að undan-
förnu, þótt ekki haft allt farið hátt.
Ekki er hér átt við Alþýðublaðsdeil-
una, sem kemur blaðamennsku
ekkert við, heldur fyrst og fremst
breytinguna á Timanum, sem þykir
hafa tekist býsna vel. Að minnsta
kosti neyðast nú fréttamenn til að
lesa Tímann, sem í nýja forminu
hefur reynst prýðilegt fréttablað. Því
miður er ekki hægt að segja það sama
um helgarblað Tímans, sem menn eru
nokkuð sammála um að sé glóralaust
rugl.
önnur breyting hefur orðið í
blaðaheiminum og hún ekki litil.
Eftir að menn neyddust til að lesa
Tímann daglega hafa æ fleiri blaða-
menn treyst sér til að hætta að lesa
Morgunblaðið, sem virðist vera stein-
hætt að fylgjast með í fréttum.
Stöðnunin á Mogga stendur í beinu
sambandi við miklar breytingar, sem
gerðar voru á forystuliði ritstjórnar-
innar i vor. Þá voru þrír beztu frétta-
menn blaðsins gerðir að fréttastjór-
um og þar af leiðandi óvirkir í sjálf-
um fréttaskrifunum. Afleiðingin er
sú, að hending virðist ráða því
hvenær Morgunblaðið nær að vera
fyrst með fréttir — eða „skúbba”,
eins og það er kallað á blaðamanna-
máli. í því heldur Dagblaðið foryst-
unni eins og undanfarin sex ár.