Dagblaðið - 13.08.1981, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981.
<§
Utvarp
27
8
Sjónvarp
LEIKRIT VIKUNNAR ÓVÆNT HEIMSÓKN - Útvarp kl. 20.20:
UNDIR FELLDU YFIRBORÐIFJÖL-
SKYLDULÍFSINS ER ÝMISLEGT ROTIÐ
Óvænt heimsókn gerist skömmu
fyrir heimsstyrjöldina íyrri. Birling
verksmiðjueigandi og fjölskylda hans
eru að halda upp á trúlofun heimasæt-
unnar Sheilu og veizluborðið er hlaðið
kræsingum. Mannsefni Sheilu er þó
sonur keppinauts Birlings, Gerald
Croft. Þegar gleðin stendur sem hæst
ber lögreglufulltrúi að dyrum. Ung
starfsstúlka i verksmiðju Birlings hafði
framið sjálfsmorð og er verkefni lög-
reglufulltrúans að rannsaka tildrögin
að því. Kemur þá í ljós að undir sléttu
og felldu yfirborði fjölskyldulífsins er
ýmislegt rotið. Ekki er allt sem sýnist.
Leikritið var áður flutt í útvarpi
í nóvember 1975 og tekur eina klukku-
stund og 40 min. í flutningi. Valur
Gíslason annaðist þýðingu, en leik-
stjóri er Gísli Halldórsson. Meðal leik-
enda eru Ævar R. Kvaran, Steinunn
Jóhannesdóttir, Sigmundur örn Am-
grímsson og Valur Gislason. J.B.
Priestley er höfundur leiksins, sem
heitir á ensku An Inspector Calls.
John Boynton Priestley er fæddur í
Bradford í Yorkshire 1894. í byrjun
stundaði hann verzlunarnám, en fór
síðan í Cambridge háskólann til að
læra m.a. bókmenntasögu. Eftir að
hafa skrifað nokkrar skáldsögur fór
Priestley að fást við leikritagerð og
Sigmundur örn Arngrimsson.
hefur skrifað fjöldann allan síðan. Eitt
af fyrstu leikritum hans frá árunum í
kringum 1930, Hættulegt horn, var
flutt í útvarpi á sínum tima.
Þjóðfélagsvandamál eru yfirleitt
Stelnunn Jóhannesdóttir.
Valur Gislason.
Ævar Kvaran.
uppistaðan í leikritum Priestleys. Svo
er einnig um Óvænta heimsókn, þar
sem aðaláherzlan er lögð á samábyrgð
mannsins eða samsekt gagnvart með-
bræðrum sínum. Þetta leikrit samdi
Priestley i stríðslok, og það var frum-
sýnt í London 1946. Þjóðleikhúsið
sýndi það fyrir 30 árum. Indriði Waage
lék þá lögreglufulltrúann af mikilli
snilld.
Af öðrum þekktum verkum hans má
nefna Gift eða ógift, Ég hef komið hér
áður og Tíminn og við.
- LKM
ÞAÐ HELD ÉG NÚ - Útvarp kl. 22.35:
Uppákomur og háttemi fólks um verzlunarmanna-
helgi
Um verzlunarmannahelgina fór
Hjalti Jón Sveinsson austur i Þjórsár-
dal vegna vinnu sinnar í Útideild
Félagsmálastofnunar. En þeir sem
vinna í Útideildinni fara oft á þau
svæði sem unglingar safnast saman á
og reyna þá gjarnan að kynnast þeim
og fá gott yfirlit yfir líf þeirra og
líðan.
Eflaust hefur þessi ferð Hjalta
orðið kveikjan að næsta þætti Það
held ég nú, sem verður í útvarpinu í
kvöld.
„Þátturinn er aðeins 25 mínútur að
þessu sinni, þess vegna hef ég hugsað
mér að blaðra svolítið sjálfur, í stað
þess að taka einhvern i viðtal. Verður
þá um nýliðna verzlunarmannahelgi
að ræöa. Ég ætla þá að tala um það
hvort mikil umferð um verzlunar-
mannahelgina sé orðin að einhvers
konar náttúrulögmáli á ísiandi.
Einnig er hægt að spekúlera í hinum
ýmsu uppákomum og hátterni fólks
um þessa helgi,” sagði Hjalti Jón.
„Fólk breytir töluvert siðum sínum
og jafnvel gjörbyltist, bara af því að
verzlunarmannahelgin er f algleym-
ingi. Það er nokkuð áhugavert, já
þaðheldégnú.” -LKM
Uppákomur fólks um verzlunarmannahelgina eru on rarouiegar. pao er onætt ao segja, að fólk brcyti siðum og venjum og
jafnvel gjörbyltist i algleymi hátiðarinnar.
ÚT í BLÁINN - Útvarp kl. 14.00:
Á meðan Sigurður Sigurðsson fer út í
bláinn, sér Örn Petersen um undir-
spiliö og skellir nokkrum islenzkum
dægurlðgum á fóninn. Þeir Jónas I.
Ketilsson og Jón Halldór Jónasson,
sem báðir vinna hjá Áföngum, hjálpa
svo Sigurði að skjótast úr Kerlingar-
fjöllum inn í Þórsmörk og lenda á
Hornströndum. Þá segja þeir Jónas og
K
Jón ýmsar endurminningar úr ferða-
lögum sem þeir hafa farið, en þau ku
hafa verið mörg. Garparnir sem eru
alltaf á flakki ættu að geta sagt okkur
sem heima sitjum heilmikið um hið
fagra ísland.
-LKM
Sigurður Sigurðsson lýsir m.a.
náttúrufegurð Hornstranda
i þættinum Út i bláinn.
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr. 14 - S 21715, 23515
Reykjavik: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
Frá Kerlingarfjöllum inní Þórs-
mörk með Hornstrandir f huga