Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Side 9
11
Fl. kr. 35600.00
6. Ársritið ................................. — 1500.00
7. Æfifélagatillög .......................... — 200.00
8. Námsskeiðið .............................. — 1200.00
9. Efnarannsóknir ........................... — 330.00
10. Áhöld og viðgerðir ....................... — 800.00
11. Ýms gjöld ................................ — 270.00
Samtals kr. 39900.00
Áætlun þessi var borin upp og samþykt með samhljóða
atkvæðum.
6. Kosningar. Formaður félagsins, Sig. Ein. Hlíðar, end-
urskosinn í stjórn félagsins, til næstu þriggja ára, í einu
hljóði.
Þá voru og endurkosnir til eins árs endurskoðendur
reikninga félagsins, þeir Hólmgeir Þorsteinsson, Hrafna-
gili og Davíð Jónsson, Kroppi.
7. Stefán Stefánsson á Svalbarði spurðist fyrir um
hvað liði með sýningu garðávaxta, sem í ráði mundi vera
að halda í ár eða næsta ár og fé hefði þegar verið heitið
til af sýslusjóði Eyjafjarðarsýslu,
Framkvæmdastjóri, Ólafur Jónsson, svaraði fyrirspurn-
inni og skýrði frá, að málið hefði í fyrstu verið flutt á
síðasta aðalfundi K. E. A. og þar hefði verið kosin nefnd
til að vinna að málinu og leita aðstoðar annara félaga,
sérstklega með fjárframlög til væntanlegrar sýningar.
8. Framkvæmdastjóri skýrði frá, að félagið hefði keypt
túnið á Krókeyrinni fyrir kr. 1100.00 og væri ætlunin að
nota það til ræktunartilrauna.
Fundargerð upplesin og samþykt.
Fundi slitið.
Sig. Ein. Hlíðar.
Arni Jóhannsson
Afmann Dalmannsson