Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Page 24

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Page 24
26 Árið 1940 voru þessir nemendur: Þráinn Sigurðsson, Siglufirði, yfir vorið. Guðrún Sigurmundardóttir, Akureyri, alt sumarið. Helga Guðjónsdóttir, Eyrarbakka, alt sumarið. Sumarið 1939 var einn búfræðingur frá Hólum í verk- legu námi: Rögnvaldur Guðjónsson frá Reykjum í Bisk- upstungum. Um fræðslustarfsemina er ekki mikið meira að segja. Nokkura fyrirlestra hefi eg flutt, t. d. á bændanámskeið- um þeim, sem haldin voru hér við Eyjafjörð síðast á ár- inu 1940. Þá hafa margir heimsótt stöðina eins ög áður. Af meiri- háttar heimsóknum má nefna, að vorið 1939 komu hér í stöðina nemendur og kennarar frá báðum bændaskólun- um, bændur frá Búnaðarfélagi Reykdæla í S.-Þing o. fl. Síðastliðið sumar heimsótti stjórn Búnaðarfélags íslands ásamt búnaðarmálastjóra stöðina, ennfremur, skólastjóri garðyrkjuskólans á Reykjum ásamt nemendum skólans og bændur og húsfreyjur úr Hrafnagilshreppi. IV. KÚABÚIÐ. Um það er fátt að segja. Það hefur skilað líkum arði undanfarin ár. Þó hefur mjólkin líklega minkað eitthvað tvö síðustu árin, er höfuðástæðan lítil fóðurbætisgjöf og hefur því tilkostnaður minkað tilsvarandi. Taðan 1939 var mjög góð og átti því að vera hægt að komast af án mikils fóðurbætis, en svo var ekki auðvelt að fá hentugan fóðurbæti, svo horfið var að því að gefa hann sem allra minstan. Hvort þetta er rétt búskaparlag skal eg ósagt láta, það hentar sumum kúm sæmilega, en getur verið mjög óhagstætt fyrir bestu kýrnar.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.