Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Side 56

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Side 56
61 hestum meira en búfjáráburðurinn, og þó við tökum það til greina, verður vaxtarauki, sem má telja eftirverkanir búfjáráburðarins, 17.0 hestar, næsta ár er hann 18.1 hest- ur, 1936 15.6 hestar og síðasta árið 10.3 hestar. Á svipaðan hátt getum við fundið, ef við gerum sam- anburð á búfjáráburðarliðnum, sem engin breyting hefur- verið gerð á, og þeim liðnum, sem fær búfjáráburð á eftir tilbúnum áburði, hve ört frjóefnaforðinn safnast, þar sem búfjáráburður er notaður. Fyrsta árið (1934) samsvarar þetta 12.7 heyhestum, 2. árið 12.8, 3. árið 6.9 og 4. árið 0.1 heyhesti og má þá heita, að jafnvægi sé náð. Þá er líka aftur komið svo, að sá mikli vaxtarauki, sem tilbúní áburðurinn orsakaði á búfjáráburðarliðnum, er genginn mjög til þurðar og er líklegt, að hann hefði horfið að mestu eða öllu á næsta ári. Þegar víkur að fornræktinni, sjáum við, að breyting- arnar, sem áburðarskiftin valda, eru að vísu hliðstæðar breytingunum í nýræktinni en miklu minni. Uppskeran stígur á búfjáráburðarliðnum við það, að hann fær tilbú- inn áburð, en nær þó tæplega því, sem hún er sömu árin á liðnum, sem altaf fær tilbúinn áburð og er aðeins örlítið hærri heldur en á hliðstæðum lið í nýræktinni. Nokkuð hliðstæð verður breytingin á liðnum, sem fær búfjár- áburð á eftir tilbúnum áburði. Uppskeran lækkar nokk- uð, en er þó fullkomlega eins mikil og af liðnum, sem fær altaf búfjáráburð. Þetta verður ekki útskýrt til hlýtar, en ekki er ósenni- legt, að það standi í einhverju sambandi við vaxtarrýmið. Það er eftirtektarvert, að vaxtaraukinn af tilbúna áburð- inum umfram búfjáráburðinn, eftir áburðarbreytinguna, er nær einvörðungu á sáðsléttunni. Breytingin frá búfjár- áburði til tilbúins áburðar veldur mestum vaxtarauka á sáðsléttunni. (Sjá töflu III, IV og VI). Á það má líka benda, að uppskerurýrnunin er langminst á sáðsléttunni, þegar breytt er frá tilbúnum áburði til búfjáráburðar.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.