Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 2
2
áður en ég sný að því, sera í raun og veru er aðalefni
þessarar greinar.
Saga bændaskólanna er nú orðin 76 ára, og eldri skól-
inn af þeim tveimur, sem starfandi eru, Hólaskóli, er nú
75 ára. Bændaskólamir hafa ekki verið tilrauna- og rann- «
sóknastofnanir, nema í mjög takmörkuðum mæli, og þó
var stofnun þeirra og skólahald mikil tilraun, til þess að
vekja bændur og þoka búnaði áleiðis, og svo er jafnvel ^
enn, þótt margt skorti á um fullkominn búnað skólanna
og hafi löngum skort, til þess að þeir væru ávallt í farar-
broddi.
Eitt af því, sem mjög hefur háð bændaskólunum og
búnaðarkennslunni, er einmitt vöntun á innlendum til-
raunum og rannsóknum. Þetta var mönnum snemma ljóst,
og ýtti mjög undir að efna til raunverulegrar tilraunastarf-
semi, fyrst með því að koma upp tilraunastöðvum og síðar
tiiraunabúum, sem tilraunastöðvanafnið loðir enn þá við,
í lögum og líka í daglegu máli, þó fremur sé það til ama
og afdráttar um hag og fremd tilraunabúanna.
II.
Það er athyglisvert að fyrsti bændaskólinn er einkafyrir-
tæki úrræðamanns, sá næsti, Hólaskóli, er metnaðarfyrir-
tæki Skagfirðinga, á erfiðum tímum harðæris, en þó við
skýjarof. Hvorugur var landsskóli, eða ríkisskóli, eins og
það myndi nú vera kallað. Eins fór að, er tilraunastarfsemi
hófst. Búnaðarfélag íslands, sem þá var félag meðlima sinna,
en ekki ríkisstofnun, eins og nú er í raun og veru, stofnaði
Tilraunastöðina í Reykjavík 1899 og hélt þar uppi til-
raunastarfi í jarðrækt alla tíð, unz götur Reykjavíkur
gleyptu gróðurinn 1932. En Búnaðarfélagið stofnaði til-
raunabúið á Sámsstöðum 1927 og tók það við, þar sem I
stöðina í Reykjavík þraut. En nú sækir brátt í það horf
4