Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Side 4
4
Þegar þetta skeður, og sérstök fjárveiting til tilrauna-
starfsemi í þágu landbúnaðarins er fengin, er tilrauna-
starfsemin um leið gengin úr greipum Búnaðarfélags ís-
lands og Ræktunarfélags Norðurlands, hún er orðin ríkis-
fyrirtæki, en býr sem leiguliði á jarðeignum og í húsum »
félaganna á Sámsstöðum og Akureyri. Er svo enn nyrðra,
en árið 1952 kaupir ríkissjóður Sámsstaði af Búnaðar-
félagi íslands, (að því leyti sem hann var þá ekki að kaupa ^
sína eigin eign). Á Akureyri hefur ríkið einnig eignast hús
og nokkurt land, sem notast til tilraunanna, og er nú
hluti af tilraunabúi því, sem þar er og enn er löngum kennt
við Ræktunarfélag Norðurlands.
Með sérstökum lögum er 1944 ákveðið að stofna til-
raunabú á Reykhólum í Austur-Barðastrandarsýslu, sem svo
er stofnsett 1946, en á Austurlandi er efnt til tilraunabús
á grundvelli laganna frá 1940, fyrst að Hafursá 1945 og
síðar á Skriðuklaustri 1949. Nú eru tilraunabú ríkisins, sem
aðallega leggja stund á jarðræktartilraunir, því fjögur, en
á þeim öllum er þó einnig búið við búfé og á Skriðuklaustri
er eitt af stærstu fjárbúum á landi hér.
III.
Tilraunir í búfjárrækt, sem samkvæmt lögunum frá 1940 •*
átti að gera á búum bændaskólanna, hafa mjakast hægt
áleiðis, og þeim hefur ekki verið sá sómi sýndur, er gerði
bændaskólann að höfuðvígi búfjártilraunanna, ber margt
til þess. Sveigðust tilraunir í búfjárrækt þannig nokkuð í
aðra átt, þótt hlutur bændaskólanna í því máli sé tölu-
verður. Búnaðardeild atvinnudeildar háskólans kemur sér
upp tilraunabúi í sauðfjárrækt á Hesti í Borgarfirði 1943,
svo sem síðar mun að vikið. Sambönd nautgriparæktarfélaga
á Suðurlandi hefjast handa um að koma upp tilrauna- og I
kynbótabúi fyrir nautgripi í Laugardælum við Selfoss, en