Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Qupperneq 7
7
„Landbúnaðardeildin skal hafa með höndum þessi verk-
efni:
1. Jarðvegsrannsóknir.
2. Jurtakynbætur og frærannsóknir.
3. Rannsókn jurtasjúkdóma.
4. Fóðurrannsóknir og fóðrunartilraunir.
5. Búfjárkynbætur.
6. Rannsókn búfjársjúkdóma.
Við stofnunina skulu framvegis starfa sérfræðingar í þess-
um fræðigreinum, og skipar ráðherra í stöðurnar, að fengn-
um tillögum viðkomandi tilraunaráðs, eftir því sem fé er
veitt til þess í fjárlögum.“
Og ennfremur: „Landbúnaðardeildin skal gera hvers-
konar athuganir og rannsóknir fyrir tilraunastöðvarnar, til-
raunabú bændaskólanna og bændur.“
Og loks: „Landbúnaðardeildin skal fá jarðnæði til afnota
á hentugum stað nærri Reykjavík, þar sem hægt er að rann-
saka nauðsynlegustu þætti varðandi: Fóðrun, búfjárkyn-
bætur, búfjársjúkdóma, jurtakynbætur og jurtasjúkdóma.“
Þessi lagaákvæði eru í raun og veru enn í gildi óbreytt,
en þó voru á sama þingi, sem gekk frá þeim, samþykkt
tvenn lög önnur, sem grípa inn í tilraunalögin og jafnvel
stangast við þau. Það eru lög nr. 41, 12. febr. 1940, um
breyting á lögum um rannsóknarstofnun i parfir atvinnu-
veganna frá 1935, sem fyrr voru nefnd. Breyting þessi
skapar hina svonefndu rannsóknanefnd ríkisins. Hin lögin
eru lög nr. 68, 7. maí 1940, um náttúrurannsóknir. Þau
nema úr gildi tvenn lög, sem máli skipta í þessu sambandi,
lögin frá 1935, um rannsóknarstofnun í þarfir atvinnuveg-
anna og hin nefndu lög frá 12. febr 1940. í þessum lögum,
um náttúrurannsóknir, er rannsóknanefndin orðin að
rannsóknaráði.
Þriðji kafli laganna um náttúrurannsóknir er um