Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 10

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 10
10 ilaði í fjárlögum ársins 1943: „Að setja á stofn sauðfjár- ræktarbú á mæðiveikisvæðinu og verja til þess allt að 100.000 kr. úr ríkissjóði." — En það var, eins og Halldór Pálsson segir um málið, „til stofnunar tilraunabús í bú- fjárrækt á vegum Búnaðardeildar. Var fyrst og fremst gert ráð fyrir, að á búi þessu yrðu gerðar ræktunar- og kynbóta- tilraunir með sauðfé. Þá var þegar búið að koma á fót vísi að hrossakynbótabúi á Hólum í Hjaltadal, en ekki var talin ástæða til þess að setja upp tilraunabú í nautgriparækt“. Ennfremur segir hann réttilega í sambandi við þessa ráð- stöfun og kaupin á Keldum: „Ekki var talið fært að hafa sama jarðnæði fyrir búfjár- kynbætur og búfjársjúkdóma.“ Jörðin Hestur í Borgarfirði var valin fyrir tilraunabú í sauðfjárrækt, svo sem kunnugt er og enn er. En Adam búvísindanna var ekki lengi í Paradísinni á Keldum. Er til kom reyndist það ekki nógu svipmikið að fást við rannsóknir á búfjársjúkdómum sem búnaðarmál. Rannsóknarstofnun háskólans i húfjármeinafræði var komið upp á Keldum, og svo nefnd í bráðabyrgðalögum 4. júní 1946 og í lögum 9. okt. sama ár. Orðið búfjármeina- frœði, þótti þó fljótt of búskaparlegt, og var nafni stofn- unarinnar því með þriðju lögunum, í frumvarpi, sem lagt var fram á Alþingi 13. des. 1946, breytt í „Tilraunastöð háskólans í meinafræði“. (Lög nr. 11, 28 febr 1947). Jafn- framt var með þessari þreföldu löggjöf starfsemi þessi og stofnun lögð læknadeild háskólans að fullu og öllu, og er hún ekki í neinum tengslum við atvinnudeild háskól- ans. Er tekið fram, að „ákvæði laga nr. 64, 7. maí 1940, gilda ekki um stofnun þessa“. Láðst mun hafa að taka fram, að lög nr. 68, 7. maí 1940, um náttúrurannsóknir, gildi heldur ekki um stofnunina á Keldum. Stofnunin á Keldum er mentamál, ekki búnaðarmál. Með þessu öllu var Búnaðardeild svift sínu fyrirheitna

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.