Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Síða 11

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Síða 11
11 óðali Keldum, hún sat eftir landlaus, með menn sína á mölinni, þá er áttu á Keldum að vinna „að jurtakynbótum, jarðvegsrannsóknum, jurtasjúkdómarannsóknum o. fl.“. Hér ber að nefna, þar eð það skiptir miklu máli, að á Keldum var myndarlega að unnið, þar var staðsett og byggð stofnun með haus og hala. Þar er allt á einum stað, bú- skapur og peningshús, skrifstofur og rannsóknastofur og framleiðsla lyfja. Þar býr bústjóri að sjálfsögðu, en þar býr einnig forstöðumaður stofnunarinnar. Ber mjög að virða það og þakka hvernig hefur verið þar við vikist um þessa hluti. Það er rökrétt að álykta eftir því, sem síðar er fram komið, að ef á Keldum hefði verið stofnað til búskapar og rannsókna á vegum Búnaðardeildar, hefði þessu verið öðru vísi háttað. Þá hefði ekki verið annað á Keldum en peningshús og tilraunareitir og í besta lagi bústjóri, en forstöðumenn hefðu búið við malbikaðar götur sem næst miðbæ Reykjavíkur, og þar hefðu verið staðsettar þær rann- sóknastofur og skrifstofur, sem með þurftu. Keldur hefðu orðið selstaða, eða beitarhús búvísindanna, höfuðvígið hefði orðið vel verndað frá fjósalykt og öðru íllu, sem leiðir af miklum samvistum við búþörf bóndans. Að Keldum hefði aðeins verið farið til húsvitjana og aðdrátta á hráefni til vísindaiðkana. VI. Síðan fyrirheitna landið á Keldum glataðist, hafa for- ráðamenn Búnaðardeildar verið í sífeldri landaleit, víða áð, en hvergi náð bólfestu. Sauðfjárkynbæturnar einar riðu sín- um Hesti frá Paradísarmissinum og sitja hann enn við góða aðbúð, eftir því sem um er að gera í tilraunamálum land- búnaðarins. Víða hefur verið borið niður, og má segja að óskir og fyrirætlanir hafi verið ýmist í ökla eða eyru. Hér hefur mest verið um að ræða Jurtakynbótadeild búnaðar- deildar og þarfir hennar fyrir jarðnæði. Eitt sinn var

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.