Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 22

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 22
22 deildarinnar: Tilraunabú frá grunni (kaupa land og byggja) með öllum byggingum og tækjum, rannsóknastofur og skrif- stofur, með aðstöðu fyrir kennslu o. fl. Fjárhagslega er hug- myndin um að flytja Búnaðardeildina að Hvanneyri því enganvegin óhagstæð. — Ég endurtek því það, sem ég sagði 1951: „Ef leiðandi menn fengjust til þess að athuga þetta mál með víðsýni og af gaumgæfni, efast ég ekki um, að þeir kom- ist fljótlega að þeirri niðurstöðu, að flutningur Búnaðar- deildarinnar að Hvanneyri hafi svo margt til síns ágætis, að agnúarnir á slíkum flutningi eru smámunir einir á móti því, sem vinnst." Og við þetta vil ég bæta, og segja við búvísindamenn- ina og aðra, sem finnst það vera of mikill útlegðardómur að ætla vísindamönnum að vinna „upp í sveit“ — á Hvann- eyri: Vér erum ekki að ræða um augnablikslausn á smámáli, vér erum að ræða um framtíð stórra hluta. Vér erum að ræða um hlutina og viðhorfin eins og þau blasa við þegar ungur búvísindamaður, sem nú er að taka til starfa, er búinn að vinna vel og lengi. Og hvað blasir þá við? — Þjóðin er orðin yfir 300 þúsund manns. Höfuð- borgin Reykjavík er orðin 125—150 þúsund manna borg, Akranes, í 40 mínútna fjarlægð frá Hvanneyri, 15 þúsund manna bær. Borgarnes, í 20 mínútna fjarlægð frá Hvann- eyri, 5—10 þús. manna þorp, og Hvanneyri með umhverfi 1000 manna þéttbýli. Frá flugvellinum á Hvanneyri verður þá 15 mínútna flug á heimaflugvöllinn í miðri Reykjavík o. s. frv. Til þess að átta sig á þessu máli, þarf svo sem ekki að hugsa stórt né horfa hátt, það þarf ofur einfaldlega aðeins að hugsa rétt og horfa beint fram.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.