Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Síða 34

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Síða 34
34 máli frá niðurlægingu, ef ríkisvöldin gugna á því að gera það bezta, að koma búvísindunum að Hvanneyri og byggja þar fullkomna búfrceðistofnun. Læt ég svo lokið umræðu um staðsetningu búvísindanna. Vona ég sú heill fylgi málinu, að allar umræður um aðra staði en Hvanneyri reynist ónauðsynlegar. Segja má að ég hafi þá veikt góðan málstað minn, með því að ræða svo ýtarlega um annað staðarval, en hér verður að búa sem á bæ er títt og gera sér ljóst, að því miður er búnaðarmálum vorum ekki þannig skipað né stjórnað, að það sé einhlítt að einbeita sér í góðu máli og stefna að besta árangri, án þess að líta til annara og oft lakari úrræða. Þess vegna hef ég ritað á þann hátt sem orðið er. XVI. Enn er órætt um þann þátt tilraunamálanna, er ég hér að framan minnti á með þessum orðum: „Ákveða þarf starfssvið tilraunabúanna fjögurra, sem nú starfa aðallega að tilraunum í jarðrækt, annarsvegar, og hins nýja tilrauna- bús Búnaðardeildar hins vegar. Samstarf þessara aðila og verkefni." Kostur tilraunabúanna á Akureyri, Sámsstöðum, Reyk- hólum og Skriðuklausri er minni en skyldi. Hér hefur verið ráðist í meira en efni og vilji leyfði. Tvö elstu og fyrst- nefndu tilraunabúin voru engan vegin viðunandi búin til starfa, né viðunandi að þeim búið, þegar ráðizt var í að bæta við tveimur nýjum tilraunabúum, vestra og eystra. Sú nýja framkvæmd var því mjög vafasöm. Eðlilegra hefði verið að gera gömlu tilraunabúin fyrst vel úr garði, áður en hærra var reist, koma svo upp einu búi til viðbótar og ganga frá því um stofnframkvæmdir, áður en fitjað var upp á því fjórða. Þannig hefði verið farið að í nágrannalönd- unum. Jafnvel orkar tvímælis, hvort hin eiginlegu tilrauna-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.