Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Side 35

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Side 35
35 bú hefðu átt að vera nema tvö, á Suðurlandi og Norður- landi, með útibú á Vesturlandi og Austurlandi. Nú var hin leiðin farin og stofnun tveggja nýrra tilraunabúa hiifð undir í einu, samhliða endurbótum á gömlu búunum. Olli þessu vafalaust nokkuð reipdráttur milli landshluta og metn- aður. Allt hefur þetta orðið til þess, að seint og treglega hefur gengið að fá tilraunabúin gerð sæmilega úr garði. Hitt er verra, að framkvæmd tilrauna hefur orðið minni en vera ætti og minni en bændur hafa viljað gera kröfur til. Meinið stærsta er, að tilraununum er ekki ætlaður meiri hlutur en svo, að einn tilraunastjóri á hverju búi er jafn- framt bústjóri og allt í öllu og getur því eigi sinnt tilrauna- málunum nema að hálfu leyti. Auk hins beina óhagnaðar, sem af þessu stafar, fylgir því sá mikli ókostur er enginn er aðstoðarmaður á neinu tilraunabúi, að enginn ungur maður kynnist tilraunamálunum, né þjálfast til að geta tekið við sem tilraunastjóri, þegar eldri maður fellur frá eða hættir starfi. Sem nýja tilraunastjóra verður því alltaf að ráða unga menn, algerlega óþjálfaða og ókunnuga mál- um og staðháttum. Þörf er að átta sig vel á þessu öllu, þegar ræða skal við- horf Búnaðardeildar til tilraunabúanna. Það hefur óefað mótast töluvert til hins verra, einmitt fyrir þær sakir, hve kostur tilraunabúanna er lítill um fræðilega forsjá, og tæki- færi tilraunastjóranna til að sinna sérgrein sinni, tilraun- unum, af fullum krafti og í samræmi við getu sína. Þetta hefur meðal annars orðið til þess, að vísindamennirnir við Búnaðardeildina hafa farið að eyða sínum lærdómi og dýra tíma í að fást við einfalda hluti, sem að öllu leyti eru í verkahring tilraunabúanna, og sem ekki þarf neina Bún- aðardeild til að fást við. Jafnframt hafa tilraunastjórarnir látið sér þetta vel líka og jafnvel þau ósköp, að í Búnaðar- deildinni, á tilrauna landi hennar, er verið að gera einföld- ustu athuganir og tilraunir til undirbúnings áríðandi og »*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.