Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 36

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 36
36 verulegra tilrauna með þeim hætti, að það væri einfalt verk fyrir hvaða aðstoðarmann, sem er, á einhverju tilraunabú- inu, að annast þá framkvæmd við eftirlit tilraunastjóra, húsbónda síns, sem æfingu í tilraunastarfi. Tilraunastjór- arnir telja þetta jafnvel vel farið, að vísindamennirnir í Bún- aðardeild létti þannig af tilraunabúunum einföldum störf- um og vandalitlum, sem þeir (tilraunastjórarnir) yrðu ella að eyða sínum knappa tíma til að vinna. Með þessu er ekki sagt, að starfsmenn Búnaðardeildar séu eða eigi að vera meiri búvísindamenn en tilraunastjórarnir, aðeins meira sérhæfðir. Þetta eiga allt að vera jafn réttháir búvísinda- menn. Þetta fyrirkomulag er óhæft með öllu; mun ég vikja bet- ur að því síðar. Það, sem mest ríður á að gera tilraunabú- unum til eflingar, er, að þegar í slað verði svo mönnuð búin d Sdmsstöðum og Akureyri, að auk tilraunastjóra, sem fyrst og fremst sinnir tilraununum og stjórn þeirra, sé á hvoru búi einn fullmentaður aðstoðarmaður, sem um leið getur verið bústjóri eða verkstjóri. í starfi sínu mentast þessir aðstoðarmenn til þess að verða tilraunastjórar síðar meir, er röðin kemur að þeim. Hið sama er auðvitað fram- undan á Reykhólum og Skriðuklaustri, þótt segja megi, að þau bú þoli fremur bið með að verða fyllilega mönnuð til að rækja hlutverk sitt. XVII. Þegar tilraunabúin fjögur verða gerð starfhæf mótast verkaskiptingin milli þeirra og tilraunabús Búnaðardeildar auðveldlega og skynsamlegar en nú er. Sumir spyrja, þarf Búnaðardeildin nokkurt tilraunabú? Getur hún ekki notað tilraunabú í jarðrækt, sem til eru. til að koma fram rannsóknum sínum og tilraunum? Ef eitthvert hinna fjögurra tilraunabúa hefði verið nær vett-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.