Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 37
37
vangi heldur en er, hefði auðvitað mátt samræma þetta
þannig, að starf Búnaðardeildarmanna yrði að fullum not-
um. Svo er ekki, og verður því að horfast í augu við þá
staðreynd, að Búnaðardeild komi sér upp fimmta tilrauna-
búinu, vegna tilrauna margvíslegra, aðallega á sviði jarð-
ræktar, svo sem rætt hefur verið um, og ég gengið út frá
sem sjálfsögðu í þessari grein minni.
Vandinn er ekki að renna stoðum undir og sanna að
þessa sé þörf, heldur sá, að fá tilrauna- og vísindamenn
Búnaðardeildar og aðra til að líta nægilega stórt á þetta
mál og fylgja því fram af sannfæringu og með stórhug og
metnaði.
Það er grundvallaratriði, sem menn hafa ekki gert sér
nægilega ljóst, að hér skal ekki og þarf ekki að stofna fimmta
tilraunabúið, til þess að fást við sömu verkefni og á sviþ-
aðan hátt, eins og hin búin fjögur hafa með höndum.
Hér þarf að stofna 5. tilraunabúið vegna visindastarfa í
búnaðardeildinni, til þess að þar sé hœgt að gera tilraunir
og rannsóknir, sem ekki er aðstaða til og ekki er gert ráð
fyrir að verði aðstoða til að gera á búunum fjórum, sem til
eru; er þar fyrst og fremst um að ræða jurtakynbætur.1)
Til þessa virðist hafa ráðið mjög óheppileg stefna í þessu
máli. Á tilraunalandi því, sem Búnaðardeild hefur haft,
hafa hálærðir vísindamenn verið að fást við verkefni, sem
eru algerlega í verkahring tilraunabúanna, sem áður voru
starfandi, og Garðyrkjuskóla rikisins. Auk þess sem þetta
er misnotkun á dýrum mannafla og fé, hefur það rýrt mjög
trú marga góðra manna á það, að þess væri raunverulega
þörf, að Búnaðardeildin komi sér upp sérstöku tilraunabúi.
Þetta hefur einnig orðið til þess að rýra trú manna á til-
raunabúunum og getu þeirra; er hvort tveggja illa farið.
1) Jurtakynbætur eru víða um heim gerðar á tilraunastöðvum eða
tilraunabúum, hliðstæðum tilraunabúunum hér, t. d. í Danmörku. Til
þess þarf aðeins starfskrafta, hentugt land og byggingar. — Ó. J.