Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Side 45
45
sé sannast og réttast í þessum málum, og verið berorður
um hlutina, má því búast við að mikið skorti á, að öllum
líki vel. Slíkt skiptir engu, samanborið við nauðsyn þess,
að afdráttarlaust sé á tekið, án þess að semja við seinagang-
inn og sinnuleysið, án þess að selja frumburðarréttinn fyrir
málsverð, og málstaðinn fyrir hægindi líðandi stundar.
XX.
Verkin, sem Búnaðardeildin þarf að vinna, eru mikil og
mörg, þau blasa við, þó hætt sé þar að vinna að smámun-
um, sem falla undir eðlileg störf tilraunabúanna. Ég ræði
enn mest um jurtaræktina. Að jarðvegsrannsóknum er unn-
ið á þann sjálfstæða hátt, sem eðlilegt er, og í samráði við
tilraunabúin á jafnréttisgrundvelli, með gagnkvæmu til-
raunastarfi. Um búfjárrcektina er svipað að segja, nema að
þar eiga bændaskólamir og tilraunabúið í Laugardælum
hlut að máli. Rannsóknir jurtasjúkdóma eru ekki fyrir-
ferðarmiklar og eiga vafalaust eftir að færast í aukana, þær
eiga að styðja tilraunabúin, bændaskólana og Garðyrkju-
skóla ríkisins í starfi, með því að annast þá hlið og þau
atriði slíkra tilrauna, sem þessar stofanir geta eigi annast
að fullu, en mikið samstarf er og verður að vera þar á milli.
Ekkert af þessu, sem er nefnt, virðist hafa lent á vem-
legum krókagötum, þó að alstaðar sé þörf aukinna aðgerða,
meira starfs. Eitt ber þá að nefna, sem mjög torveldar
allt tilraunasamstarf við bændaskólana. Það er hin losara-
lega og óhæfa kennaraskipun við skólana um starfstíma og
starfsskyldur kennaranna. Viðurkennt er með þögninni og
undansláttarseminni að kennararnir séu 9 mánaða menn
með þriggja mánaða sumarfríi. Og þessa níu mánuði, sem
stundum styttast niður í 8, virðist sú venja á góðri leið með
að verða að reglu, að kennararnir hafi engum skyldum að
gegna við stofnunina, skólann, nema að kenna sinn ákveðna