Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Side 46

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Side 46
46 stundafjölda mestmegnis bókleg fræði. Bændaskólarnir verða aldrei hlutgengnir við tilraunir, né sæmilega sam- starfshæfir við aðrar tilraunastofnanir, fyrr en þessari van- skipan verður breytt til batnaðar. Auðvitað eiga kennarar bændaskólanna að vera ársmenn skólanna og vinna þeim að öllu leyti alveg eins og skólastjórarnir. Hver kennari á að hafa sínum skyldustörfum að gegna við sinn skóla, auk kcnnslunnar. Með því móti verða skólarnir full starfshæfir, bæði sem kennslustofnanir, tilraunabú og kennslubú, fyrr ekki. Verður það mikla mál eigi rætt hér nánar. Af störfunum, sem bíða Búnaðardeildar, skal fátt eitt nefnt. Þar ber jurtakynbœturnar hœst. Því starfi hefur mið- að lítið áleiðis, enda engin sanngirni að ætlast til að mikið hafi verið að gert. Engar aðstæður hafa verið fyrir hendi til þess. Nokkuð mun hafa verið að því gert að safna mismun- andi stofnum og einstaklingum íslenzkra fóðurjurta. F.r það þýðingarmikið og þarft verk. Hér er til mikils að vinna. Hugleiðum aðeins hinn mikla vanda og úrlausnarefni að gera snarrótina, melgrasið og húsakornpuntinn að ræktuð- um túngrösum. Þá má einnig nefna íslenzka hávingulinn. í sambandi við sandgræðslu og skógrækt er mikil jurta- ræktarrannsóknaverk að vinna. Margt er það annað, sem að réttu ráði er beinlínis í verkahring jurtaræktarsérfræð- inga Búnaðardeildar, en eigi við hæfi tilraunabúanna, og ný verkefni koma alltaf fram, hversu vel sem er unnið, og jafnvel því fremur sem betur er unnið. Vinnurannsóknir margvíslegar verða mikilsvert og eril- samt starf í Búnaðardeildinni, þegar eðlileg samvinna og samsteypa er komin á. Best fer á að þeim sé stjórnað þaðan og auðvitað að verkfæratilraunum meðtöldum. Loks er að nefna eitt atriði mjög mikils vert, sem mjög snertir stórbætta samvinnu og verkaskiptingu milli tilrauna- búanna og Búnaðardeildar. Vísindamenn Búnaðardeildar hafa ólíkt betri aðstöðu til þess að fylgjast vel með út á

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.