Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Blaðsíða 47
47
við en tilraunastjórar tilraunabúanna, þó að auðvitað verði
þeir líka að gera það. Búnaðardeildin getur verið og á að
vera einskonar sjónauki tilraunabúanna allra, til þess að
fylgjast með og koma auga á allt það utan landsteinanna,
er að gagni má verða, og sem til mála getur komið að reyna
á tilraunabúunum. Búnaðardeildin á einnig að hjálpa til að
fá plöntur og fræ o. fl. til tilrauna, ef það fæst ekki að eðli-
legum verzlunarleiðum. Þetta á Búnaðardeildin að gera,
án þess að gerast neinn hjálparkokkur við undirbúnings-
athuganir og byrjunartilraunir, eins og deildin gerir nú,
vegna óeðlilegrar verkaskiptingar, svo sem ég hef nefnt
margsinnis hér að framan.
Þetta vökustarf Búnaðardeildarinnar getur orðið mjög
mikilsvert, ef vel er á haldið. Verkefnin bíða deildarinnar,
mikil og stór. Hvert ár, sem líður, áður en skipað er til
starfa á heppilegan hátt og við sem bestar aðstæður, er
stórkostlegt tap fyrir bændur í öllum sveitum lands vors,
og um leið fyrir þjóðina alla.
XXI.
Lokaorð. — Það sem mest riður á að hafa i huga.
1. Atvinnudeild háskólans mun liðast sundur og verða
lögð niður. Við það má miða tillögur um framtíð Bún-
aðardeildar. Við Jfer tillögur verður einnig að hafa í
huga framtíð Framhaldsdeildarinnar, sem nú er á
Hvanneyri.
2. Hið bezta úrrœði og hið eina, sem fyllilega samrýmist
hagsmunum og virðingu búskapar og búfræða, er að
flytja Búnaðardeildina að Hvanneyri, og sameina Bún-
aðardeild og Framhaldsdeild o. fl. i eina stofnun.
Þannig verði komið upp fullkominni búnaðarstofnun
á Hvanneyri.
3. Nothæft úrræði, en hvergi nærri eins heppilegt né